Sagnir - 01.04.1980, Síða 43

Sagnir - 01.04.1980, Síða 43
hugsanlega fengið. Hefur stefna blaðsins, eða sérstök stefnuskrá hafi hún verið sett fram, verið í samræmi við stefnu þess flokks sem það síðar varð málgagn fyrir. Hið síðara atriði er það, að for- ystusveitir smáflokkanna, þ.e. frambj óðendur, flokksstj órnarmenn og aðstandendur málgagnsins, hafa að mestu leyti verið skipaðar mönnum sem klofið hafa sig úr eða gengið undan merkjum annarra flokka. Stundum eru framboðin eingöngu komin til af þeim sökum að klofningur með undanfarandi stefnuágreiningi hefur átt sér stað innan einhvers þingflokksins eða þá að valdaátök hafa valdið klofningi. Eina framboðið sem er undanskilið að þessu leyti er KSML. Stafar skammlífi margra flokkanna af þeim sökum, að stefnuágreiningurinn hefur ekki verið það mikilvægur að hann hafi getað klofið flokkinn í heild sinni og svift hann því fylgi er nægði smáflokknum til að koma þingmanni að. Undantekning frá þessu er að vissu leyti Þjóðvarn- arflokkurinn, en fyrst og fremst Utan flokka - Alþýðubandalags 1967 og síðar Samtakanna. Einnig ber að hafa í huga samhengið milli forystusveita smáflokkanna inn- byrðis, svo og tengslin milli ýmissa stjórnmálahreyfinga s.s. lögskilnaðarhreyfingarinnar og ýmissa samtaka andstæðinga her- námsins annars vegar og forystu- sveita smáflokkanna hins vegar. Þannig má segja að þráðurinn milli lögskilnaðarhreyfingarinnar og Þjóðveldismanna og síðar Lýðveld- isflokksins 1953 sé nokkuð sam- felldur. Einnig eru samfelld tengsl frá Þjóðvarnarfélag.inu og síðar Samtökum- liernámsandstæðinga og Friðlýsts Íands yfir til Þjóð- varnarflokksins og síðan frá Þjóðvarnarflokki yfir til fram- boðs Utan flokka - Alþýðubanda- lags og síðan Samtakanna. Mýnes- hreyfingin átti einnig aðild að framboði Samtakanna. Hér eru engin tök á að gera stefnu og sögu sérhvers flokks einhver skil, en hins vegar verður leitast við að lýsa nokkrum meginatriðum framboða smáflokkanna og lögð áhersla á: 1) hugmyndafræði og stefnu þeirra, 2) viðbrögð þingflokkanna og 3) hvaða aðstæður hafa skapað for- sendur fyrir framboðunum. Hugmyndafrœdi og stefnumál Haegri / vinstri Ef hugmyndafræði flokkanna er skoðuð með tilliti til efnahags- legrar skiptingar í hægri/vinstri má sjá, að tiltölulega mestur hluti er á miðju stefnubilinu, þ.e. sósíaldemókratískir flokkar eða miðjuflokkar, en lítið um flokka til hægri við Sjálfstæðis- flokk og til vinstri við Alþýðu- bandalag, en slíkt framboð kemur fyrst'fram 1974 (Sjá töflu I). Þegar slík skipting eftir afstöðu til efnahagsmála er gerð, verður þó að gæta að tvennu. 1 fyrsta lagi hefur stefna þingflokkanna tekið nokkrum breytingum og skipt- ingin því ekki gerð eftir föstum skorðum. Þannig eru bæði sveifl- ur í stefnu flokka á einstökum tímabilum sem m.a. fara eftir af- stöðu til ríkisstjórna, svo og hefur langtíma stefnumótun verið á þá leið að bæði Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur hafa færst heldur til hægri með tímanum en Sjálf- stæðisflokkur hins vegar til vinstri ef eitthvað væri. Sú þróun gefur hins vegar tilefni til að fram kæmi framboð til vinstri við Alþýðubandalag og til hægri við Sjálfstæðisflokk. I öðru lagi verður að gæta þess, að mat á stefnu ýmissa smáflokka til hægri eða vinstri er ekki einhlít, þar sem meginstefnumál þeirra hafa verið afmörkuð við
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sagnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.