Sagnir - 01.04.1980, Síða 52
saman í tveim ríkisstjórnum
samfellt árin 1947-1953, ef
undan eru skilin þriggja mán-
aða minnihlutastjórn Sjálf-
stæðisflokksins. Kosningasigur
Þj óðvarnarflokksins 1953 var
líka á kostnað Framsóknarflokks-
ins. Að sama skapi var kosn-
ingasigur Samtakanna 1971 að
mestu leyti á kostnað Alþýðu-
flokksins, eftir tólf ára
ríkisstjórnarsamstarf hans
með Sjálfstæðisflokknum.
IMicTurlag
Þótt í fljótu bragði virð-
ist sem smáflokkarnir hafi
ekki skilið eftir sig varan-
leg spor, ber þó að varast að
vanmeta áhrif þeirra á íslensk
stjórnmál. Þeim hefur að vísu
ekki tekist að riðla því
flokkakerfi, sem hér hefur ver-
ið við lýði s.l. fimmtíu ár, a.
m.k. ekki til langframa, en
eðli þessara flokka- samkvæmt
hafa þeir reynt að ryðja nýj-
um málum braut, sem ekki voru
á dagskrá hinnar hefðbundnu
stjórnmálabaráttu. Framboð
smáflokkanna bera því vitni
um vissa undirstrauma í stjórn-
málum sem ekki hafa átt sér
talsmenn innan annarra flokka.
Það hefur hins vegar sýnt
sig að engin aðalstefnumál
smáflokkanna hafa verið þess
eðlis að þau hafi ekki rúmast
innan stefnumála þeirra flokka
sem fyrir hafa verið. A það
hefur verið bent hér að fram-
an að þingflokkarnir hafa í
raun kippt tilverugrundvell-
inum undan smáflokkunum, með
því að flytja áhersluþungann
um stund á sömu mál og þeir
eða yfirbjóða þá. Þetta á
auðvitað helst við um þá
flokka sem verulegu fjöldafylgi
hafa náð; Þjóðvarnarflokkur-
inn og Samtök frjálslyndra og
vinstri manna. Ahrifa smá -
flokkanna er því helst að
leita í stefnubreytingum
þingflokkanna.
Heimildir
Auk helstu dagblaðanna
kosningamánuðina 1942-1974
var stuðst við:
Alþýðubandalagsblaðið, 1967,
málgagn Utan-flokka Alþýðu-
bandalags.
Framtíðin, 1942, málgagn Frjáls
lyndra vinstri manna.
Frjáls þjóð, 1952-1966. mál-
gagn Þjóðvarnarflokks Islands.
Frjáls þjóð, 1967^68, mál-
gagn Utan flokka-Alþýðubanda-
lags.
Ingólfur, 1944-'45, málgagn
Þjóðveldismanna.
Lögrétta, 1967, málgagn 0-
háða 1ýðræðisflokksins.
Neisti, 12.árg.,1974, mál-
gagn Fylkingarinnar.
Ný þjóðmál, l.árg., 1974, mál-
gagn Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna.
Nýtt land, 1-2.árg., 1971-'72.
Málgagn Samtakanna.
Nýtt land-frjáls þjóð, 1969-
'7o, málgagn Samtakanna.
öíeigur, 2.-3. árg., 1945-'46,.
útg. Jónas Jónasson frá Hriflu.
Stéttabaráttan, 4.árg., 1974,
málgagn Kommúnistasamtakanna,
marxistanna-lenínistanua.
Varðberg, 1952-'55, málgagn
Lýðveldisflokksins.
Þjóðmá1,3.-4.árg., 1973-'74,
málgagn Samtakanna.
Þjóðólfur, 1941-'44, málgagn
Þjóðveldismanna.
Alþi ngiskosningar. llagskýrsl-
ur Islands.
Broddi Broddason: Þjóðveldis-
menn 1941-'45. Flokksstarf og
blaðaútgáfa. B-A ritgerð í
sagnfræði, sept. 1977.
Einar Ö. Björnsson: Hvert var
erindi H-listans til Aust-
firðinga. Neskaupstaður 1964.
Gunnlaugur Astgeirsson: Fram-
boðsflokkurinn 1971. B-A
ritgerð í sagnfræði, 1975.
Lýðræðisflokkurinn í Reykja-
vík og Reykjaneskjördæmi.
Drög að stefnuskrá, 1974.
Öiafur Ragnar Grímsson: Mið-
stöð stjórnmálakerfisins.
Reykjavík í lloo ár. Rv. 1974.
Ragnar Arnason: Þjóðvarnar-
flokkur Islands. B-A ritgerð
í þjóðfélagsfræði, sept.,1974.
Tölfræðihandbók 1974. Hag-
skýrslur Islands 11,63 , 1976.