Sagnir - 01.04.1980, Side 55

Sagnir - 01.04.1980, Side 55
breytingar orðið varðandi náms- matið. T.d. eru sumir háskólar farnir út á braut svokallaðs símats. Þá er öll vinna nem- enda metin jafnóðum. En það er einkennandi fyrir sagnfræðinám í Bretlandi að mikil áhersla er lögð á ritgerðasmíðina. angri á ári„ í M.A.-náminu eru mjög strangar kröfur um afköst, en þær eru ekki eins strangar í B.A.-náminu. í M.A.-náminu er t.d. ekki um það að ræða að vera hálfu ári lengur en gert er ráð fyrir samkvæmt kerfinu Allt er bundið við ákveðinn tíma . Ritgerðir eru alltaf í gangi jafnt og þétt, allt frá upphafi náms til loka. árangur í rit- gerðasmíð ræður miklu um það hverjir komast á M.A.-stig. Þá er og lögð áhersla á skrifleg próf og að mínu áliti hefur • víða verið lagt of mikið upp úr skriflegum prófum £ námsmati borið saman við ritgerðavinn- una. En þetta er að breytast og hlutur ritgerðanna að verða stærri. Það er rökstutt með þvi að færni í ritgerðasmxð sýni vel hvernig nemandinn sé í stakk búinn til sagnfræðiiðk- ana, hvað hann hafi fengið út úr náminu þegar hann hefur starfsferil að námi loknu. Þess vegna sé eðlilegt að meta námið sem mest á þessum grund- velli. Hvernig er námshraða háttað? Gerðar eru skýrar kröfur um námshraða og að fólk skili til- teknum lágmarksafköstum og ár- Hvaða kennsluform eru ríkj- andi? Eru þau svipuð og hér? Taka verður tillit til þess hve mikill stærðarmunur er á H.í. og mörgum háskólum erlend- is, þ.á.m. Edinborgarháskóla. í Edinborg eru miklu fleiri sagnfræðinemar en hér og framan af námstímanum er mikið um mjög fjölmenn námskeið. Það geta verið allt að þrjú hundruð manns á sama námskeiðil Við slíkar aðstæður fer kennslan að miklu leyti fram í fyrirlestrum en jafnframt eru vikulegir um- ræðutímar sem skylt er að sækja. Kennari sem annast til- tekinn umræðuhóp fer jafnan yf- ir ritgerðir nemenda í þeim hópi. Miðað er við að ekki séu fleiri en tíu nemendur í hverj- um umræðuhópi. Þegar fram í sækir verða námskeiðin sér- hæfðari og fámennari og þá er kennslan að mestu leyti £ seminarformi. Á fámennustu námskeiðunum eru stundum aðeins tveir - þrír nemendur. Hvað er háskólaárið langt í Edinborg? Því er skipt í þrjár annir og á fyrstu tveimur árunum er yfirleitt prófað í lok hverrar annar. Haustönn byrjar snemma í október og stendur fram undir jól. Vorönn byrjar um lo. jan- úar og stendur fram í miðjan mars. Páskaleyfið er lengra en jólaleyfið - en reyndar vinna nemendur oftast að verkefnum í leyfum - og sumarönn byrjar um miðjan apríl og þá er kennt í sex vikur. Vorpróf geta svo staðið fram yfir 2o. júní.

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.