Sagnir - 01.04.1980, Page 77

Sagnir - 01.04.1980, Page 77
próf í einni grein getur gert það á tvo vegu. Hann getur ann- að hvort tekið grunnfagspróf fyrst og síðan aukið við einu misseri og tekið mellomfags- próf eða farið beint í "mellom- fag" og tekið það í einu lagi. Boðið er upp á ýmsa möguleika hvað val á námsefni varðar. Nemandinn setur upp sína eigin stundatöflu á hverju misseri út frá þeirri kennslu sem boðið er upp á og ákveður sitt eigið nám. Mellomfagsnámið á að gefa nem- endum gleggri innsýn inn í hina sögulegu þróun og auk þess þau vandamál sem sagnfræðingurinn fæst við. Þetta er gert með meira námi, rannsóknum á þrengri tímabilum og rannsóknum á helm- ildum og fræðiritum sem fjalla um söguleg vandamál eða viðfangs- efni.Námsefnið fyrir"mellomfag" skiptist í tvennt: Ar.nar hlut- inn er sameiginlegur grunnfaginu en hinn hlutinn er sérstakt mellomfagsnámsefni. Af sérstöku mellomfagsnámsefni skal nemand- inn velja eitt af eftirtöldum tímabilum: 1) Grikkir og ná- búar þeirra frá um 550 til um 200 f. Kr. og Rómverjasaga frá um 200 f. Kr. til 337 e. Kr. 2) Um 500 - 1300. 3) Um 1300 - 1600. 4) Um 1600 - 1780. 5) Um 1780 - 1870. 6) Um 1870 - 1940. 7) Um 1940 - 1960. A-námsefni fyrir það tímabil, sem nemandinn hefur kjörið sér, felur í fyrsta lagi í sér allar bækurnar sem lesnar eru til grunnfagsprófs. Að auki er nem- andanum ætlað að lesa sagnfræði- leg verk upp á um 600 - 700 bls. sem viðbótarnámsefni. Kennari getur heimilað einstökum nemend- um að lesa til prófs námsefni að eigin vali sem tengist kennslunni sem er í boði. B-námsefni. Þá er lesið eitt meiri háttar sagnfræðirit sem er gjarnan ævisaga merks manns eða yfirlit yfir ákveðið tímabil í sögu einhvers stórveldis. Ef B-námsefni telst sérstaklega þungt aflestrar þarf það ekki að vera jafnlangt. 1 stað aðgreindra sérefna í almennri mannkynssögu er hægt að velja sér námsefni af samsvarandi þyngd í útálfusögu. 1 Norðurlandasögu skal nemand- inn velja eitt eftirtalinna tíma- bila: 1) Frá því um 400 f. Kr. til um 1050 e. Kr. 2) Um 1050 - 1319. 3) Um 1300 - 1600. 4) Um 1550 - 1800. 5) Um 18oo - 1884. 6) Um 187o - 194o. 7) Um 193o - 196o. 1 Norður- landasögu verða nemendur að velja tímabil sem svarar til þess sem hann valdi í mann- kynssögu. Nemandi sem velur mannkynssögu sem námsefni í útálfusögu er frjálst að velja sér tímabil í Norðurlandasögu. Auk undirstöðubókanna er lesið sem A-námsefni úrval úr sagn- fræðiritum, samtals 6-7oo bls, B-námsefni greinist í 11 skyldu- námsefni sem allir eiga aðlesa er taka umrætt tímabil, 21 val- frjálst námsefni, meiriháttar sagnfræðiverk (monografi) eða úrval úr fleiri smærri verkum (um 15o bls.). Innan sértíma- bils síns á nemandinn að kunna skil á öllum helstu heimilda- útgáfum. 1 sérefni sínu skal nemand- inn kynna sér rækilega heimild- ir og rit um afmarkað sagnfræði- legt vandamál eða viðfangsefni. Beinast þykir liggja við að velja þetta efni úr norskrisögu en þó ekki þannig að það falli saman við grunnnámsefnið. 1 próftilkynningu verður nemandinn að gera grein fyrir því námsefni sem hann hefur val- ið sér og þeirri kennslu sem hann hefur sótt. Próf eru tekin á tvennan hátt. Þeir sem taka mellomfagspróf beint, án þess að byggja á grunnfagsnámi, taka þrjú 8 tíma skrifleg próf. Eft- ir skriflegt próf er tekið munnlegt próf sem spannar yfir allt námsefnið. Þeir sem taka mellomfagspróf að undangengnu grunnfagsnámi taka eitt skrif- legt próf þar sem prófað er úr sérefni mellomfagsnámsefnis þeirra. Að afloknu skriflegu prófi er nemanda gefin einkunn til bráðagirgða og er hún síðan

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.