Sagnir - 01.04.1980, Blaðsíða 78
endurskoðuð að afloknu munnlegu
prófi. Munnlegt próf er tekið
úr öllu námsefninu. Nemandi sem
hefur tekið grunnfagspróf getur
einnig tekið öll mellomfags-
prófin, vilji hann bæta eink-
unn sína.
„Hovedfagid”
Hovedfagnámið er 3-4 missera
nám sem er venjulega fyrst
tekið eftir að náð hefur verið
cand. mag. gráðu. Það byggist
á einu af hinum tveimur "mellom-
fag" til embættisprófs af lægri
gráðu og innifelur vísindalega
rannsókn (lokaritgerð) og ákveð-
ið námsefni sem skilað er til
prófs. Aðalritgerðin er sjálf-
stæð rannsókn sem nemur um það
bil loo vélrituðum síðum og
nemandinn vinnur venjulega við
í um tvö misseri að því til-
skyldu að hann sé í fullu námi.
Við vinnu að aðalritgerðinni
er nemandanum leiðbeint af
kennara.
Til þess að fá að taka "hoved-
fagspróf" verður nemandinn að
standast "mellomfagspróf" með
ekki lélegri einkunn en 2.7.
Próf er haldið í lok hvers miss-
eris. Ritgerðin er gildur hluti
af prófinu, sem að auki saman-
stendur af skriflegu og munn-
legu prófi. "Hovedfagsnámið"
á að kenna nemendum vinnubrögð
við að rannsaka frumheimildir,
til þess annars vegar að taka
sjálfstæða afstöðu til viðfangs-
efnisins og hins vegar til fram-
setningarfræðilegra rita. Með
vinnu að eigin ritgerð (aðalrit-
gerð) á nemandinn að fá skólun
sem rannsakandi við að semja sagn
fræðirit.
"Hovedfagsnemandinn" skal
fyrir byrjun prófmisseris leggja
fram aðalritgerð. Fresturinn til
þess að leggja hana inn rennur
út 15,ágúst á haustmisseri og
lð.janúar á vormisseri. Aðalrit-
gerðin skal annaðhvort vera
rannsóknarverkefni byggt á eigin
heimildakönnun eða yfirlitsrit-
gerð yfir sögulegt efni á grund-
velli annarra rannsókna. Aðal-
ritgerðin getur einnig saman-
staðið af nokkrum minni verkefnum
eftir samkomulagi.
Námsefnið krefst nákvæmra
rannsókna á úrvali sögulegra
verka, til samans minnst 2000
bls. og skiptast í minnst tvö
meginefnissvið. Námsgreinarnar
er hægt að tengja við minnst
tvö efni. Eitt efni er hægt að
tengja aðalefninu. Efnið verður
yfirleitt að liggja fyrir utan
sértímabil nemandans til "mellom-
fagsprófs". Hægt er að gera undan
tekningar frá þessu ef viðfangs-
efnið fjallar um lönd eða heims-
hluta sem ekki eru hluti af náms-
efninu til "mellomfagsprófs" eða
að efnið sé sótt til tímabils
sem liggur fyrir utan "mellom-
fagstímabilið". Þegar sérstakar
fræðilegar aðstæður mæla með því
getur sagnfræðistofnunin einnig
heimilað að eitt efnissviðið sé
innan "mellomfagstímabilsins".
Eitt af efnissviðunum getur
verið af meiði söguspeki - að-
ferðafræði eða sögu sagnaritunar.
Námsefnið skal að öðru leyti
fjalla um efni norrænnar sögu og
mannkynssögu. Námsefnið er valið
þannig að það gefi gott almennt
yfirlit yfir viðkomandi efnis-
svið og stöðu þess í stærra sam-
hengi og þannig að það sýni mis-
munandi vandamál og lausnir. Al-