Sagnir - 01.04.1981, Síða 51
49
Hansakuggur. Umsvif þýskra
og enskra utgerðarmanna á
íslandi voru mikill þyrnir í
augum íslenskra valdamanna.
°g fjöldi fðlks gekk í þjðnustu
þeirra* Búðsetumenn réðu sig
á báta hinna erlendu útgerðar-
manna og lausamenn sðttu einnig
til fiskveiðistaðanna. Ætla
verður að þessu fólki hafi þannig
boðist betri kjör en hjá íslensk-
um vinnuveitendum því það virðist
hafa flykkst til hinna erlendu
u tgerðarmanna s
Bændum var skiljanlega mjög í
nöp við hin miklu umsvif útlend-
inga hér á landi„ Þeir fengu nú
ekki nægilegt vinnuafl til að
halda búskapnum gangandi og út-
vegsbændur misstu spðn úr aski
sínum er búðsetumenn kusu að
ráða sig á báta útlendinga frem-
ur en þeirra,
1 klagbréfi til konungs á
Alþingi 1480 var kvartað yfir
vetursetu hinna erlendu
mannaj sem væri mikill ósiður og
stór skaði fyrir þjððina "sakir
Þess að þeir halda hér hús og
garða við sjðinn og lokka svo
til sín þjðnustufólkið að bænd-
urnir fá ekki sína garða upp
unnið eða neina útvegu haft þá
er þeim eða landinu mega til
nytja verða.,"20)
árið 1490 var ákveðið að
spyrna við fotum með svokölluðum
Píningsdðmi3 Binda átti endi á
vetursetu erlendra manna hér á
landi, reisa skorður við búð-
setu og knýja það fðlk til hjúa-
vista, sem ekki gat uppfyllt
skilyrðin fyrir löglegri búðsetu
eða lausamennsku,
Búðsetumenn höfðu haft hæg
kjör eftir réttarbðtina frá um
1350, Stöðugt hafði fjölgað í
stéttinni en á seinni hluta 15,
aldar var búðsetan orðinn veru-
legur þyrnir í augum valdamanna,
Með Píningsdómi var ætlunin að
hindra framgang þessarar stéttar:
, , ,,engir búðsetumenn skulu
vera í landinu þeir sem eigi
hafa búfé til að fæða sig við
svo þó að þeir eigi ekki minna
en 3 hundruð svo kallar sem
konur og skyldir til vinnu hjá
bændum allir þeir sem minna
fé eiga en nú er sagt, konur
og kallar,21
Þannig var búðsetumönnum gert skylt
að eiga búfé til að nærast á og að
eiga minnst þriggja hundraða eign,
Þeim voru nú sett eignaskilyrði
eins og lausamönnum 1350, Valda-
menn vildu takmarka búðsetu vegna
sinna eigin hagsmuna, Umsvif út-
lendinga voru þeim þyrnir í aug-
um og búðsetan bar þessum umsvif-
um glöggt vitni, Eftirtektarvert
er að í Píningsdðmi er gert ráð
fyrir að konur leggi fyrir sig
búðsetu jafnt sem karlar, Bend-
ir þetta til að á þessum tíma hafi
vinnuafl kvenna verið mjög eftir-
sótt og sýnir fátt betur hversu
geysileg eftirspurnin eftir
vinnuafli var um þetta leyti, Og
ekki varð plága sú sem herjaði á
Islendinga 1494 til að auka fram-
boð a vinnuafli, Þótt ekki væri
pest þessi jafn skæð og Plágan
mikla í upphafi aldarinnar olli
hun miklum vinnufðlksskorti og
hagur landbúnaðar versnaði,22'
1 Píningsdómi er ekki minnst
á lausamenn, Réttarbótin um þá