Sagnir - 01.04.1981, Blaðsíða 67
65
hátt að námi, hvort heldur sem
er í almennri sögu, bókmenntum,
latínu, grísku eða öðrum hlið-
stæðum fögum, fylgir myndlista-
og menningarsaga viðkomandi
greinar. Er þá gjarnan brugðið
upp skuggamyndum eða sýndar
kvikmyndir um myndlist, bygg-
ingalist eða almenna menningu og
þjóðhætti viðkomandi tímabils.
í flestum háskólum í Bandaríkj-
unum standa nemendum opnir
möguleikar á tengingu fræði-
greinarinnar við hreint list-
nám, þannig að listfræðinemand-
inn getur jafnhliða beinu fræði-
legu námi valið sér námskeið í
málaralist, leirkeragerð, högg-
myndalist o.s.frv. Slíkt fyrir-
komulag felur þó í sér þá hættu
að nemandinn átandi að námi loknu
uppi með fjölskrúðugt samansafn
af sundurlausri þekkingu, ef
hann hefur ekki hagað vali á
námsþáttum af skynsemi. í Sví-
Þjóð er veruleg áhersla lögð á
tengsl listfræðinnar við fél-
agsvísindi, Að sjálfsögðu er
Þar kennd listasaga sem undir-
staða, en enn fremur gefst nem-
endum kostur á námskeiðum í
listgagnrýni, umhverfiskönnun,
listsálfræði og listfélagsfræði.
Háskóli íslands yrði þó vita-
skuid að sníða sér stakk eftir
vexti við uppbyggingu slíks náms.
^stæða er til að hyggja að því
hvort ekki sé æskilegt í svo
* litlu námi sem listfræðin yrði
* Sem 30 ein. aukagrein að leggja
*****************
megináhersluna á aðferðafræði,
þ.e. fræðilegan grundvöll grein-
arinnar og rannsóknartækni sem
nemendur gætu tileinkað sér.
Aðstaða til fræðilegra rann-
sókna á þessu sviði er þó engin
innan veggja Háskólans, bóka-
kostur er næsta fábreytilegur
og ærið handahófskenndur, tækja-
kostur er lítill sem enginn og
tilfinnanlegur skortur er á
skuggamyndum og kvikmyndum um
listfræði- og listasöguleg
efni, þar sem ekkert slíkt finnst
í eigu Háskólans. Hér er ljóst
að úrbóta er þörf, ef Háskólinn
hyggst í hinu minnsta rísa
undir nafni sem fræðileg stofn-
un á þessu sviði.
Ljóst er að verulegur áhugi
er meðal nemenda innan Háskólans
á námi í listasögu og listfræði.
Æ fleiri leita nú utan til náms
í þessum greinum og öðrum þeim
skyldum, s.s. safnafræði og við-
haldsfræði. Listasaga er nú kennd
við flesta menntaskólana og við
fjölbrautarskólana hefur verið
komið á listasvlðum en víða mun
skortur á kennurum. Þá hefur lista-
söfnum víða verið komið á fót út
um land - einkum í tengslum við
héraðs- og byggðasöfn en hins
vegar er skortur á sérmenntuðu
fólki til umsjónar þeirra, skrá-
setningar og viðhalds. Enginn
vafi er á því að stúdent sem
stundaði nám í listfræði við Há-
skóla íslands gæti nýtt sér nám
sitt á ýmsa vegu.
*******************
********
Island fullt af brennisteini
Heyndar er allt ísland fullt^af
hrennisteini, en annaðhvort í
iðrum jarðar eða á afskekktum
stó'ðum f jarri mannabústó'ðum, sem
engin leið er að komast að, þar
sfm há fjó‘11 og ókleif bjó’rg
tálma atrennum manna og veikum
mætti. En alltaf eru valdir úr
hópi bænda nokkrir sterkir verka-
menn, sem sendir eru í þessa erf-
iðisvinnu, jafnskjótt og jörðin
hleypir slíkum námugraftarmönnum
það er að segja þegar fjöll-
in eru orðin þurr eftir að ísa
hefur leyst. Eru þessir vesa-
lings menn að nálega nótt sem
dag við að ryðja til jarðvegin-
um og brjóta steinklappir, þar
til tíminn, sem af húsbændum er
tilskilinn til vinnunnar, er út-
runninnn og þeir hafa rðtað upp
úr jörðinni^þvíj sem þar er að
hafa, með járnkörlum, hökum og
öðrum graftólum, og er þá eftir
að hreinsa það af dreggjum, for
og ösku ur jörðinni með linnu-
lausum þvottum.
(Oddur Einarsson biskup; Is-
landslýsing, bls. 136)
**