Sagnir - 01.04.1981, Qupperneq 75
/3
OþjótTlegur listamatfur ?
Löngum hafa menn verið osam-
mála um Kjarval og á það jafnt
við um list hans sem jafnein-
faldan hlut og hvaða dag og ár
hann var í heiminn borinn. Sum-
ir segja hann fæddan árið 1882,
aðrir 5. maí 1886 en flestir
telja að hann hafi fæðst árið
1885. Thor Vilhjálmsson telur
hann fæddan það ár en tilgreinir
ekki mánaðardag. Guðbrandui-
Magnússon heldur því fram að
meistarinn hafi fæðst 7. nóvem-
ber 1885. Björn Th. Björnsson
segir það aftur á móti óyggj-
andi að Kjarval hafi fæðst 15.
október 1885. Taka verður
undir mánaðardag Björns þar eð
Guðbrandur er mjög ónákvæmur í
þeirri grein sem hann greinir
frá fæðingardegi Kjarvals, og
einkum vegna þess að 15. októ-
ber 1885 er sá dagur sem færður
er inn í ministerialbók Meðal-
landsþinga sem fæðingardagur
Kjarvals, en Kjarval er einmitt
fæddur að Efri-Ey í Meðallandi.
Sem drengur hneigðist Kjarval
fljótt að teikningu og í viðtali
árið 1935 hélt hann að hann 'iafi
verið á 8. árinu eða svo þegar
hann hafi byrjað fyrst að teikna.
Síðar eignaðist hann litastokk
og þá tóku myndir hans á sig
annan svip. En hvað varð um
myndirnar sem hann gerði á þess-
um árum? Kjarval svarar sjálfur:
"FÓlkið var alltaf að fara til
Ameríku þá. Og það vildi hafa
þessar myndir mað sér. Og ég
veit ekkert hvað af þeim varð.
ÉK gaf þeim svo myndirnar." 2
Árið 1901, þá á 16da ári, kom
Kjarval til Reykjavíkur. Hann
var á skútu á r e f t ir ár og vann
sér inn pen inga en sj áIfur segir
hann að han n hafi i málað þá ú t úr
höndunum á sér aftur. Það haf i
geng ið allt í sjálft sig. Eitt
var þó gott og það var, að^ í
Reyk javík fékkst o lía og þá gat
hann f a r i ð að mála með olíu .
A milli vertíða reyndi Kjar-
val að draga að sér þau föng sem
voru tiltæk í málaralistinni og
í ágústmánuði 1908 hélt hann sína
fyrstu málverkasýningu í Gúttó,
Lögrétta birti stutta umsögn um
syninguna þann 19, ágúst og þar
sagði G.M. að það væri einkum
tvennt sem mest bæri á, þ.e.
"eðlisgáfan og lærdómsleysið"
og í lokin spurði G.M.; "Hvað
verður nú íslandi úr þessu
listamannsefni?"
Verk eftir Kjarval aðeins 11 ára
gamlan: Þokuslæða í morgunsárið
Listamannsefnið fékk tæki-
færi vegna þess að Ungmenna-
félag Reykjavíkur, sem var
stofnað 1906, tók það upp á
arma sína og gerði vonir þess
að sínum. Ungu mennirnir x
félaginu vildu koma efninu til
náms og stóðu m.a. fyrir happ-
drætti í þeim_tilgangi. Einn-
ig gengu fjórtán ungmenna-
félagar í bankaábyrgð og aðra
aðstoð fékk Kjarval.
Eftir sína aðra málverka-
sýningu á Seyðisíirði 1911,
steig Kjarval á skipsfjöl og
hélt til London. Hann segir
svo frá: "Aldrei hefi ég málað
eins mikið eins og síðasta
manuðinn sem ég var hérna áður
en ég sigldi. Ég hafði lítinn
litakassa, sem var rétt eins
og leikfang. En ég málaði