Sagnir - 01.04.1981, Side 78
76
andi einkunn:
Kjarval er einkennilegastur
allra íslenskra máiara og all-
ar myndir hans eiga sammerkt
í því, að þær færa áhorfandum
eitthvað nýtt, eitthvað, sem
honum hefir ekki dottið í hug
áður. . . . Myndirnar hans eru
verk hugans, eigi síður en
handarinnar. 8
Er þessi dómur var birtur
hafði sýningin aðeins staðið í
tvo daga og þegar voru 6-7 mynd-
ir seldar þannig að draga mætti
þá ályktun að viðtökurnar hafi
verið nokkuð góðar ef miðað er
við að Kjarval virðist ekki hafa
verið mjög þekktur á meðal al-
mennings. ÞÓ verður að hafa
það hugfast að líklegt er að
vinir og styrktarmenn hafi verið
fyrstir til að kaupa verk eftir
listamanninn. Sagan hefur líka
sýnt það að yfirleitt er þorri
fólks hræddur við nýjungar og oft
hefur svokölluð "einkennileg"
list ekki átt upp á pallborðið
hjá almenningi. Nefna mætti mörg
dæmi þessu til stuðnings.
Grein eftir Ríkharð jónsson í
Tímanum 7. júní 1919 bendir ein-
dregið til þess að ekki hafi
Kjarval haft meirihlutafylgi á
meðal fólks. Ríkharður reyndi að
halda uppi vörnum fyrir list
Kjarvals :
Mér virðist enginn vafi leika
á því, að Kjarval er að verða
einn af fremstu listamönnum
íslands, a.m.k. hvað snertir
meðferð lita. Sum af verkum
Kjarvals og margra annara nu-
txmamálara eru þannig, að þau
virðast ekki jafnauðskilin
eins og t.d. venjulegar lands-
lagsmyndir. - Um slík verk
segja sumir menn, að þannig
megi ekki búa til listaverk.
En þar kennir þröngsýni all-
mikillar „
Fagurlega ^samstilltir lit-
ir og línur í listaverkum
haía lik áhrif á mig og fögur
tónaröðun. Ég get ekki sagt
það um mig, að óg skilji til
fulls mörg tónlistaverk, sem
ég hef heyrt, og sama hugsa
ég að fleiri geti sagt. . .
Væri nokkurt vit í að segja,
að þetta væri tónskáldunum að
kenna? Ég held ekki. Alveg
sama er að segja um önnur
listaverk, það er ekki lista-
mönnunum að kenna, þó að suma
vanti eiginleika til að taka
á móti þeim áhrifum, sem list-
in hefir að bjóða. Vel sé
Kjarval fyrir það, sem hann
hefir þegar gert, og vel sé
hverjum þeim, sem reynir að
skilja áður en hann kveður
upp hina hörðu dóma yfir þeim,
sem skapa nýja fegurð í heim-
inum.
f sömu grein sagði:
'Kjarval er einskonar tón-
skáld í litum, málverk hans
eru einkennileg og ævintýra-
leg, hann syngur hinni dular-
fullu fegurð lof með pensli
sínum. í því er frumleikur
hans mest fólginn.
í fríhöfninni. 1918
_ Þetta eru orð listamannsins
Rikharðar Jonssonar og ætla má