Nýtt Helgafell - 31.12.1957, Page 16
SIGURÐUR NORDAL:
ALSNJÓA
Fáeiimr athugasemdir um lítið kvœði eftir Jónas Hallgrímsson
Almennt mun litið svo á, að kvæði Jón-
asar Hallgrímssonar séu ekki einungis
„lipur og létt“, heldur einföld og auðskilin,
enda á það vafalaust við um þau, sem al-
kunnust eru. Samt er ekki víst, nema jai'n-
vel sum þeirra kvæða þurfi að lesa með
engu minni gaumgæfni, ef allt á að skilja
til hlítar, en ýmis kvæði annarra skálda,
sem miklu myrkari virðast við fyrstu sýn.
Jónas hefur sjálfur skrifað við eitt kvæði
sitt, Suðursveit: „Hér þarf útskýring, ef
nokkur á að skilja“, — án þess að láta þó
þá skýringu fylgja. Lesendum ljóðmælanna
er varla láandi, þótt þeir fari fljótlega yfir
þess háttar kveðskap hans, — brot af
ófullgerðum kvæðum og tækifæris- og gám-
anvísur, þar sem vitneskja um atvik og
tildrög er nauðsynleg til skilnings, — og
hverfi til annars, sem er í senn ljósara og
l'ullkomnara. En til eru líka dæmi þess, að
kvæði, sem virðist bæði vera fullgengið
frá og bera vitni um dýpstu hugðarefni
skáldsins, séu nokkuð óljós, og er eitt þeirra
tilefni þessara athugasemda. Því fer fjarri,
að eg þylcist geta brotið það svo til mergj-
ar, að allt liggi í augum uppi. En ef þessar
línur gætu beint athygli einhverra unn-
enda Jónasar að kvæði, sem þeir hafa ekki
áður sinnt að neinu ráði, og ef til vill að
fleira í ljóðmælunum, sem er torráðnara en
þeir hafa gert sér íulla grein fyrir, þá eru
þær ekki til einskis ritaðar.
★
A L S N J Ó A.
Eilífur snjór í augu mín
út og suður og vestur skín
samur og samur út og austur;
einstaklingur, vertu nú hraustur!
Dauðinn er lireinn og hvítur snjór.
Hjartavörðurinn gengur rór
og stendur sig á blæju breiðri,
býr þar nú undir jörð í heiðri.
Víst er þér, móðir, annt um oss,
aumingja jörð með þungan kross
ber sig það allt í ljósi lita,
lífið og dauðann, kulda og hita.
Þetta kvæði er til í tveimur eiginhandar-
ritum Jónasar. Annað þeirra sendi hann
félögum sínum í Höfn, og er það nú í safni
Jóns Sigurðssonar í Landsbókasaíni. Hitt
er í skrifbók hans, sem enn er geymd í
safni Konráðs Gíslasonar í Árnasafni, og
er kvæðið þar nákvæmlega eins og það
er prentað hér að framan. En í fyrra hdr.
er sá orðamunur, að 1) strikað er yfir út
í 3. línu 1. erindis og 2) þar stendur í 1.
línu 2. erindis: hvítur er snjór. Eins lík-
legt er, að útstrikunin í 1. er. sé ekki gerð
af Jónasi, heldur annaðhvort Biynjólfi eða
Konráði, sem liafi þótt miður fara á því
að endurtaka út í tveimur vísuorðum,
hvoru á eftir öðru, og hafi ætlað að biðja
Jónas að breyta því. En það hefur ekki