Nýtt Helgafell - 31.12.1957, Blaðsíða 64
Æskufólk! Fylgist með þvi
sem kemur út á vegum
HELGAFELLS
Andlit
í spegli
dropans
Nýtt skáldverk
eftir
THOR
VILHJÁLMSSON
Þetta er þriðja bók höfundar, en þó er hann enn sem komið er jafnvel
kunnari fyrir önnur ritverk, ádeilupistla í tímaritinu Birtingi og ferðaþætti
er birzt hafa í Þjóðviljanum, sem vakið hafa athygli bókmenntafólks ekki
síður en almennra lesenda. Það, sem einkennir þessi bráðskemmtilegu skrif
er þó ekki fyrst og fremst hin ríka hugkvæmni, snjallar og markvissar ádeil-
ur og safamikill og karlmannlegur stíll. Höfuðeinkenni listamannsins er hin
sannanlega hlýja, sem vart á sinn líka, og ekki villir á sér heimildir um
uppruna — heitt mannlegt hjarta slær að baki —, og sú meginkrafa lífsins
til listarinnar að hún eigi hverju sinni ákveðinn hlut að endurnýjun mann-
lífsins, en þræði ekki troðnar götur.
Þeir, sem þessa nýju bók lesa og hafa jafnframt í huga hina auðlæsu
ferðapistla skáldsins, munu fljótlega átta sig á því, að hér er ekki verið að
gera tilraun til að brjóta nýjar leiðir að hætti þeirra, sem aðeins langar til
að sýnast frumlegir. Hér er um að ræða ómótstæðilega ástríðu til landnáms
í óbrotinni jörð, sem hugur listamannsins hefur heillast af.
„Andlit í spegli dropans", er síðasti bókmenntaviðburðurinn, nýjasta
Helgafellsbókin.
UnuhúS/ Helgafelli/ Veghúsastíg
Helgaíellsbækur eiga erindi við andlega heilbrigt fólk.