Nýtt Helgafell - 31.12.1957, Page 27

Nýtt Helgafell - 31.12.1957, Page 27
RITHÖFUNÐAÞÆTTIR 169 nota slíkt orð um hin önnur höfuðskáld Breta. svo að tekin séu nálæg dæmi. Spenser er hátíðlegur, Shakespeare er eitt í dag og annað á morgun: fullur ólíkinda. Og manni stendur ógn af Milton. Chaucer er félagi lesandans og vinur, hann er svallbróðir hans eða skriftafaðir eftir atvikum og ævinlega reiðubúinn að hafa ofan af fyrir honum með viðeigandi frásögn, lærdómi, eftirhermu, kerskni, góðlátlegu skopi, heimspekilegri rök- ræðu eða kristilegri hugleiðingu. Hann talar ekki sem skáld við lesandann heildur eins og maður við mann. Og hann er lítillátastur allra viðmælanda. Ef tala má um viðmót skálds, þá er Chaucer ákaflega notalegur í viðmóti. Og maður kynnist einmitt „viðmóti" hans meir en flestra annarra skálda. Það er aftur ytra borð á óþrotlegu umburðalyndi, sem er eitt höfuðeinkenni hans. Manni kann að fljúga í hug, að Chaucer beri ofurlítinn svip Mefistófelesar, hins góðviljaða, umburð- arlynda, léttlynda Mefistófelesar sem ein- stöku sinnum bregður fyrir í sögum miðalda. Miðaldamaðurinn (og kveðskapur Chaucers heyrir til lokaskeiði miðalda) var í einu kristn- ari og veraldalegri en við. Chaucer virti kristnar dygðir og elskaði þær, en honum þótti líka innilega vænt um breyskleika manna, af því að hann leit svo á að það væri einmitt breyskleikinn, sem gerði menn mannlegasta. Síðari tíma mönnum hefir hins vegar einatt tekizt að aðskilja dyggðir og ■ breyskleika svo rækilega, að venjulegu fólki hefir reynzt við hvorugt búandi. Chaucer var Lundúnabúi. Forfeður hans höfðu verið vínkaupmenn hver fram af öðr- um, svo að hann taldist vera af borgarastétt, en gekk snemma í konungsþjónustu og var orðinn hirðsveinn sautján ára. Nítján ára gamall fór hann í stríð, því að þá vóru Englendingar að berjast við Frakka um Artois og Picardy, og var hertekinn af Frökk- um, en konungur, Játvarður þriðji, leysti hann út með gjaldi. Einhvemtíma eftir heim- komuna gekk hann í þjónustu konungsson- ar, John frá Gaunt, hertoga af Lancaster, sem var honum jafnan innan handar síðan. En þegar hertoginn féll í ónáð um skeið, versnaði hagur Chaucers að sama skapi. Á efstu árum sínum virðist hann hafa orðið að þola fátækt og sumir telja, að hann hafi lítið sem ekkert ort eftir 1394 og kenna basli hans um, að hann skyldi ekki ljúka við Kantaraborgarsögumar. Allt er þó fremur óvíst um þetta, en til er frá þessum árum konungsbréf, sem veitix Chaucer grið fyrir skuldheimtumönnum. En ctrið sem hann deyr, 1400, kemur til valda í Englandi Hinrik IV, sonur hertogans af Lancaster og þá fær Chaucer uppreist, rétt fyrir dauða sinn, og hlýtur aftur embætti sín og laun. Á vel- gengnistímum sínum fyrir 1390 hafði Chau- cer gegnt margs konar embættum í þjón- ustu ríkisins. Hann var lengi í utanríkis- þjónustu konungs og fór margar diplomatísk- ar sendiferðir til Frakklands, ítalíu og Niður- landa. Hcmn þáði snemma föst árslaun af konungi. Um alllangt skeið var hann toll- stjóri í London og heyrðu undir hann tollar af víni, ull og skinnum. Árið 1385 leggur hann niður þetta embætti, en gerist um svip- að leyti fulltrúi til enska þingsins fyrir hér- aðið Kent. Síðan var hann um skeið um- sjónarmaður með eignum konungs í Windsor, og eftir að hann lét af því starfi er frá því greint, að hann var skipaður eftirlitsmaður með veiðiskógi konungs í Somerset. Þó að Chaucers sé allvíða getið í opinber- um heimildum frá þessum tíma, eins og gefur að skilja, þar sem hann gegndi svo mörgum embættum, er fátt vitað um manninn sjálfan eða einkalíf hans. Hinsvegar er einstaklega mikið samræmi milli þess, sem vitað er um æviferil hans og þess sem lesa má um mann- inn útúr skáldskap hans. Flestir menn láta sér reyndar skiljast, að það er yfirleitt held- ur fánýt iðja að vera að búa sér til mynd af einhverjum manni eftir forskrift kvæða hans og stutt yfir í fjarstæðurnar, saman- ber t. a. m. kenningar þeirra, sem halda því fram, að Shakespeare „geti" ekki hafa verið höfundur leikrita sinna. En auðvitað skiptir ekki svo litlu máli um hvers konar skáldskap er að ræða. Og meðan kvæði eru ort af

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.