Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.02.1964, Page 8
Ég vil nota tækifærið, til að þakka öllum þeim, sem á einhvern hátt
Iiafa stutt að þeim rannsóknum, sem hér er frá skýrt. Fyrst Mennta-
málaráði, sem veitt liefur mér árlegan ferðastyrk, þá lilaut ég styrk frá
stjórn Fridtjov Nansens fondet norska árið 1951, sem gerði nrér kleift
að vinna úr miklu af rannsóknum sírium við góð vinnuskilyrði og bóka-
kost í grasasafninu norska, og veittu þeir Rolj Nordhagen prófessor,
og Johannes Lid konservator mér margví slega, ómetanlega fyrir-
greiðslu, sömuleiðis þáverandi bókavörður, Per Störmer. Og svo þakka
ég að lokum öllum samferðamönnum og öðrum, sem greitt hafa götu
mína á ferðalögum um fjöll og sveitir.
R ANNSÓKN ARS VÆÐIN.
Ég tel rétt að gefa örstutt yfirlit um staðhætti og landslag þeirra
svæða, sem hér ræðir lielzt um. Þau liggja öll, nema liluti af Holtavörðu-
heiði, í móbergssvæði landsins. Um loltslag verður ekkert rakið, en þess
má geta, að á þeim öllum mun úrkomusamt, nema Bárðdælaafrétti, og
ef til vill hluta af Kjalarsvæðinu.
1. Kjölur.
Hér er um að ræða landsvæðið milli Langjökuls og Hofsjökuls,
sunnan frá Hvítá og norður um Hveravelli. Gróður á þessu svæði er
sundurleitur. Mjög mikill hluti Kjalar eru blásnir melar og sandar, og
hefur uppblástur farið vaxandi fram að þessu. Þar hefur þó verið gró-
ið heiðaland fyrrum, og það til furðuskamms tíma, ]rví að enn standa
þar allvíða gróðurtorfur, 2—3 m háar á miðjum söndunum. Virðist
mér þeim þó hafa fækkað verulega síðan 1939, eins og rnjög hefur
gengið á hið samfellda gróðurlendi sunnanvert í Tjarnheiðinni. Kjal-
hraun þekur mikinn hluta þessa svæðis. Gróður er þar víðast ósam-
felldur, þó eru þar allvíðáttumiklir lyngmóar, með miklum mosa-
gróðri að vísu, mosaþembur og snjódældagróður.
Víðáttumesta gróðursvæðið er Hvítárnes. Það er óshólmamyndun
Fúlukvíslar og liggur nesið norðaustan að Hvítárvatni. Langmestur
hluti þess eru.flóar og mýrar vaxin fífu (Eriophorum angustifolium)
og gulstör (Carex Lyngbyei). Austur og norður af Hvítárnesi er Tjarn-
lieiði allvíðlent móa- og heiðasvæði.
Norður með Langjökli eru allmörg fell og fjöll. Syðst eru Hrefnu-
6 Flóra - tímarit um íslenzka grasafræði