Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.02.1964, Blaðsíða 79
HELGI HALLGRÍMSSON:
DE RHODIOLAE
,£v(efla bilaðan Ucknar kolL"
- E. Ól.
Enn minnast margir gömlu íslenzku torfbæjanna, með burnirót
milli burstanna og vallhumli á vegglaginu. Þessir bæir gerast nú
sjaldgæfir, og með þeim hverfur úr sögunni sérstakt gróðurlendi, sem
hefur lítt verið kannað. Burnirótin var ein af einkennisplöntum þessa
gróðurlendis. Hún óx oftast út úr veggstálinu, milli burstanna, mynd-
aði þar þétta brúska, sem lituðust gullrauðir er á sumarið leið. Hún
átti sinn þátt í því að fegra þessa bæi og gefa þeim líf.
Ekki eru torfbæirnir þó aðalvaxtarstaðir burnirótarinnar. Kletta-
skorur og syllur eru hennar kjörlendi, en þar að auki vex hún víða á
melum og grjótöldum til fjalla. Tilvera burnirótarinnar á torfbæjun-
um er því nokkurt undrunarefni, og varla er hún þangað komin af
eigin rammleik.
Það er gömul trú, að burnirótin varni bruna. Hefur þessi trú varð-
veizt í Noregi allt fram á okkar daga. Hérlendis mun hún að mestu
týnd. Þó er mér kunnugt um, að gamalt fólk í Þingeyjarsýslu þekkti
þessa trú og virti hana. Burnirótin í húsveggjunum er hins vegar aug-
ljós sönnun þess, að þessi trú hefur einnig verið ahnenn á íslandi áð-
ur fyrr. Burnirótin er því komin í veggina af manna völdum, hún
liefur verið gróðursett þar sem brunavörn. Skal þó ódæmt hversu vel
hún liefur valdið því hlutverki.
Prófessor Nordhagen í Oslo hefur rannsakað þetta mál og komist
að þeirri niðurstöðu, að hér sé um ruglun að ræða. Upprunalega
lirunavarnaplantan sé ekki burnirótin, lieldur sú planta sem almennt
kallast þaklaukur (Sempervivum tectorum), en hann er algengur á
torfþökum og stráþökum um sunnanverða Evrópu. Blöð þaklauksins
eru þykk og safamikil og mynda stórar hvirfingar. Þar sem mikið óx
af lauknunt á þakinu gat hann því varnað íkviknun af neistum sem
féllu á þakið. Þessu er hins vegar varla til að dreifa með burnirótina,
enda vex hún sjaldan á sjálfu þakinu heldur á veggjunum. En vegna
þess hversu sjaldgæfur þaklaukurinn er í Noregi, telur Nordhagen,
að nytjar hans hafi yfirfærzt á burnirótina.
TÍMARIT UM ÍSLENZKA GRASAKRÆÐI - FlÓra 77
L