Flóra: tímarit um íslenzka grasafræði - 01.02.1964, Side 110
en rauðberjalyngið. Á sama hátt gæli rauðberjalyngið í Bagisárdalnum hata verið sortu-
lyng, en þess er ekki getið í listanum.
Ilelgi Hallgrímsson.
Nýir fundarstaðir gaddsveppa.
I síðasta hefti Flóru gerði ég stutta grein fyrir tveimur nýfundnum gadd- eða
broddsveppategundum, þ. e. Hydnum repandum L. ex Fr. og Sarcodon laevigatus
(Sw. ex Fr.) Karst., og hafði sú síðarnefnda þá aðeins fundizt á einum stað á land-
inu, við Mývatn.
A síðastliðnu ári var sveppavöxtur mikill, og fann ég þá Sarcodon laevigatus
skammt fyrir innan eyðibýlið Saurbrúargerði við Eyjafjörð austanverðan. Óx svepp-
urinn þar í sortulyngsmó, svipuðum þeim sem hann fannst í, í Mývatnssveitinni.
Hýdnum repandum fann ég þetta sama sumar í Asbyrgi í N.-Þingeyjarsýslu, og
loks færði Helgi Jónasson grasafræðingur ntér eintak af þessum svepp er hann
hafði safnað á Skjaldfönn í Skjaldfannardal, við norðanvert ísafjarðardjúp.
Helgi Hallgrimsson.
Eins og lesendur Flóru, sem fengu ritið í fyrra, rnunu hafa tekið eftir, stendur
á kápusíðu þess heftis, I. árgangur, I. hefti. Ef til vill hafa einhverjir skilið jtetta
svo, að von væri á öðru hefti á jtví ári. Það var þó ekki ætlunin, og framvegis sjá-
um við okkur ekki fært að gefa út nema eitt hefti á ári hverju, hvað sem síðar
verður.
Ritstj.
108 Flóra - tímarit um íslenzka grasafræði