Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Blaðsíða 2
föstudagur 17. ágúst 20072 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Yfir helmingur ísbúða sýndi ófullnægjandi niðurstöður á mæl- ingum matvælaeftirlits umhverfis- sviðs Reykjavíkurborgar á gæðum íss úr vélum. Alls féllu 19 ísbúðir á fyrsta prófinu þar sem sýni reyndust innihalda of mikið af gerlum. Í ann- arri tilraun féllu 6 afgreiðslustaðir á prófinu; Kúlan við Réttarholtsveg, N1 Bíldshöfða, Söluturninn Hraun- bergi, Ísgrillið við Bústaðaveg og tveir afgreiðslustaðir Burger King. Loka þurfti ísvélum tveggja þeirra síðastnefndu, Burger King og Ísgrillsins. Burger King hefur ákveð- ið að hætta sölu á ís eftir að hafa fall- ið á sýnatökunni þrívegis og saur- gerlar mældust í ísnum. Of mikill fjöldi kólígerla er al- gengasta orsök þess að sýni stand- ast ekki kröfur. Kólígerlar þrífast í þörmum á fólki og geta valdið alvar- legum sýkingum og niðurgangi. Þeir mynda eiturefni sem valda alvarleg- um blæðingum í þörmum. Þessi sýkill hefur einkum borist í menn með menguðu kjöti sem er soðið eða steikt á ófullnægjandi hátt. Berglind Guðmundsdóttir, heil- brigðisfulltrúi hjá matvælaeftirlit- inu, er ánægð með árangurinn að þessu sinni í samanburði við slæ- legar niðurstöður síðasta árs. Í fyrra þurfti að loka tímabundið fyrir ís- sölu 11 fyrirtækja á móti tveggja í ár. „Þetta er allt á réttri leið og við lítum á þetta sem góðar niðurstöður mið- að við í fyrra. Við fylgdum því svo eftir að þar sem niðurstöður reynd- ust ófullnægjandi var bætt úr,“ segir Berglind. Aðspurð telur Berglind nær ómögulegt að útrýma alfarið ófull- nægjandi sýnum úr ísvélum. Hún segir gerlamagn yfir mörkum sem geti reynst hættulegt. „Auðvitað ætti hlutfallið hjá okkur að vera 100% góð sýni. Það er mjög erfitt að eiga við þessa vöru og tíð starfs- mannaskipti búðanna hafa einn- ig áhrif,“ segir Berglind. „Gerlar mældust yfir gæðamörkum og það getur verið hættulegt fyrir þá sem eru viðkvæmir. Það er mis- jafnt hvernig þetta leggst í fólk og viðkvæmir geta verið óheppnir að lenda á þeim sem illa standa sig.“ trausti@dv.is Féllu á prófinu 19 ísbúðir féllu í fyrstu mælingu, 6 í annarri og 2 í þriðju mælingu. Hættulegt magn kólígerla reyndist í sýnum sem getur verið hættulegt viðkvæmum. Saurgerlar mælast í ísvélum á höfuðborgarsvæðinu: Helmingur ísbúða selur hættulegan ís Kviknaði í skemmu Slökkviliðið á höfuðborgar- svæðinu var kallað að Ránar- grund í Garðabæ seint í fyrra- kvöld. Hafði eldur komið upp í skemmu sem stóð tóm en hún er í eigu bæjarins. Skemmdir á skemmunni urðu töluverðar en tjón óveru- legt þar sem til stóð að rífa hana. Slökkviliðið sendi tvo bíla á stað- inn en einn bíll sá um að slökkva eldinn. Að sögn varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins tók um klukkustund að ráða nið- urlögum eldsins en upptök hans eru ókunn. Vatnið flæddi á Faxabraut Heitavatnslögn undir Faxa- braut í Reykjanesbæ brast um ellefuleytið í gærmorgun með þeim afleiðingum að malbikið gaf sig og vatn bunaði upp úr því. Að sögn varðstjóra lög- reglunnar í Keflavík þurfti lög- reglan að loka götunni. Viðgerðarmenn hófust strax handa við að gera við lögnina og götuna sem gaf sig vegna þrýstingsins. Vatn flæddi inn í nærliggjandi bílskúr og dældu Brunavarnir Suðurnesja vatn- inu úr skúrnum. Nokkrar skemmdir urðu á innbúinu en ekki hlaust meiri skaði af vatnsflaumnum óvænta. Brutust inn á Akureyri Tvö innbrot voru framin á Akureyri í fyrrinótt með stuttu millibili. Annars vegar var reynt að brjótast inn í Lundaskóla en viðvörunarkerfi fór í gang og flúðu þjófarnir af vettvangi áður en lögregla komst á staðinn. Stuttu síðar var reynt að brjótast inn í tannlæknaheildsölu við Laufásgötu á Eyrinni. Þjófarn- ir náðu ekki að stela neinu en komust í burtu. Til að komast inn brutu þjófarnir rúðu en að sögn lögreglu er málið í rannsókn og enginn verið handtekinn. Tveir teknir með fíkniefni Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu handtók í gærmorg- un tvo menn í Skaftahlíðinni sem grunur leikur á að hafi ekið undir áhrifum fíkniefna. Voru mennirnir stöðvað- ir því eitthvað óeðlilegt þótti við aksturslag ökumannsins. Lögregla vildi ekki gefa upp frekari upplýsingar um málið en staðfesti þó að tveir menn hefðu verið handteknir. Að sögn lögreglu koma slík atvik upp á hverjum degi. „Ég á bara ekki pening. Þær litlu fjár- hæðir sem ég fæ fara allar í skuldahala og uppihald ásamt því að lána vin- um mínum aur við og við þannig að þeir geti keypt sér mat,“ segir Ingólfur Sigurgeirsson, 72 ára ellilífeyrisþegi. Hann býr á götunni eftir að honum var nýverið vísað úr þjónustuíbúðum aldraðra við Lönguhlíð 3. Þjónustuíbúðirnar eru ætlaðar fólki sem þarf meiri aðstoð og stuðn- ing en hægt er að veita í heimahúsi en heilsufar þess er ekki orðið það slæmt að þörf er fyrir hjúkrunar- heimili. Félagsbústaðir leigja þjón- ustuíbúðirnar út og á þeim bænum töldu menn fullreynt að innheimta húsaleigu af Ingólfi. Eftir að hafa hlotið úrskurð dómara var ákveðið að vísa honum úr íbúðinni . Að sögn Sigurðar Friðrikssonar, framkvæmdastjóra Félagsbústaða, er afar fátítt að grípa þurfi til þess neyðarúrræðis. Hann segir einfald- lega ekki hægt að leyfa fólki að búa í íbúðunum án þess að greiða leigu. „Hann var borinn út vegna skuldar. Það er svo einfalt að hann borgaði ekki leiguna og reglurnar ætlast til þess. Þetta er nánast einsdæmi að bera þurfi leigjendur út úr þjón- ustuíbúðum fyrir aldraða og áður en til slíkra ráða er tekið er það kannað til fullnustu hvort viðkom- andi eigi að geta borgað leiguna,“ segir Sigurður. Í basli eftir að konan lést Ingólfur er verulega vonsvik- inn yfir að hafa verið kastað á göt- una og segir taka verulega á að sofa undir berum himni. Hann segist hafa verið tilbúinn að vinna upp í húsaleiguna. „Ég bjó áður með kon- unni minni og við vorum að reyna að kaupa íbúð saman. Hún dó því mið- ur, blessunin, og upp úr því hef ég verið í basli vegna skulda við íbúða- kaupin. Ég á ekki neitt og átti bara ekki fyrir leigunni. Það er ömurlegt að lenda síðan í því að vera borinn út og ég gef lítið út á þá herramenn sem stóðu fyrir því,“ segir Ingólfur. „Það er rosalega kalt að sofa úti en ég hef þurft að gera það nokkrar næt- ur í vikunni. Ég hef þá stundum far- ið niður á Umferðarmiðstöð en þeir opna klukkan 4 og þar hef ég fengið heitt kaffi. Ég veigra mér ekki við því að taka upp tuskuna og hefði verið til í að skúra upp í leiguna. Mest væri ég til í að komast aftur á sjóinn en ég er bara orðinn of gamall til þess.“ Algjört neyðarúrræði Sigurður Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Félagsbústaða, segir starfað eftir skýrum reglum og ekki sé hægt að leigja þeim sem ekki standa í skilum með húsaleigu. Hann segir að kannað hafi verið hvort Ingólfur væri borgunarmaður fyrir leigunni. „Peningunum var greinilega ráð- stafað annað en hvers vegna vitum við ekki. Að fólk sé borið út úr félags- legri þjónustuíbúð er algjört neyðar- úrræði. Það er alveg ljóst að við get- um ekki haft hjá okkur fólk sem ekki borgar leiguna,“ segir Sigurður. Aðspurður hafnar Ingólfur því alfarið að hann hunsi vísvitandi að greiða leiguna og ítrekar að hann hafi ekki átt fyrir henni. Hann tel- ur sig hafa verið plataðan út í vitl- eysu. „Þeir eru greinilega ekki góðir í að reikna og það er algjör vitleysa að ég eigi fyrir leigunni. Ég var plat- aður til að fara þarna inn og mér sagt að redda bara fyrir leigunni. Ég sagði þeim alveg frá upphafi að ég ætti ekki fyrir henni. Mér brá þess vegna mjög þegar herskari fólks mætti inn til mín og vísaði mér út. Ég varð svo reiður að mér varð óglatt. Nú reyni ég bara að þrauka hvern dag,“ segir Ingólfur. Ingólfur Sigurgeirsson, 72 ára, býr á götunni eftir að hann var borinn út úr þjónustu- íbúðum aldraðra við Lönguhlíð. Félagsbústaðir segja ástæðu útburðarins vangoldna húsaleigu. Ingólfur undrast kaldlyndi kerfisins og reynir að þrauka einn dag í einu. TrAuSTI hAFSTeInSSon blaðamaður skrifar: trausti@dv.is VILDI SKÚRA Á MÓTI LEIGU Býr á götunni Ingólfur hefur þurft að sofa undir berum himni í vikunni. Hann telur sig heppinn að eiga velgjörðarmann sem veitir honum kaffi og heitar máltíðir. Lúxuskáetur í ferjunni >>Meðal þess sem fundið er að við endurgerð Grímseyjar- ferjunnar eru lúxusvistarverur áhafnarinnar. Ríkisendurskoð- un finnst fullmikið lagt í aðbúnað sjómannanna. fréttir >> Flestir geta tekið sig á og eflt líkamann og sálina. Í DV í dag er sérblað um fólk sem hefur endur- skipulagt líf sitt og stundar holla hreyfingu og vandar sig í mataræði. DV Heilsa fimmtudagur 16. ágúst 2007 13 Heilbrigð sál Framhald á næstu opnu dv mynd ásgeir Í HrAUsTUM lÍKAMA Heilsa er forsenda þess að við getum tekist á við þær þrautir sem lífið leggur á okkur. góð andleg og líkamleg heilsa veitir okkur kraft og dug til að spila af skynsemi úr þeim spil- um sem við fæðumst með á hendi. ekki verður deilt um tengsl hreyfingar og góðrar heilsu en þrátt fyrir þessi augljósu tengsl eiga fjölmargir við heilsubresti að stríða. Í mörgum tilvik- um er óhollu mataræði og langvarandi kyrrsetu um að kenna. við töluðum við nokkra Íslendinga sem hafa sagt óheilbrigði stríð á hendur og breytt um lífsstíl. á baksíðu er rætt við Arnald Birgi Konráðsson, Bootcamp-þjálfara, sem gefur þeim góð ráð sem hafa í hyggju að ástunda heilbrigðara líferni. Umsjón: Baldur Guðmundsson. Netfang: baldur@dv.is D V M yn d Ás ge ir gamall og fátækur og á hvergi heima F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð fimmtudagur 16. ágúst 2007 dagblaðið vísir 124. tbl. – 97. árg. – verð kr. 235 fátækum gömlum manni var vísað af elliheimili: fólk >>Rétt þrjátíu ár eru frá meintum dauða Elvis Presley. Fjöldi fólks um allan heim minnist kóngsins á þessum tímamótum. >> Manchester United varði miklu fé í nýja leikmenn fyrir leiktíðina. Þrátt fyrir það er liðið aðeins með tvö stig eftir tvo fyrstu leikina í ensku deildinni. Liðið gerði jafntefli við Portsmouth í gær en sex aðrir leikir voru háðir í deildinni. Guðjón Þórðarson var valinn besti þjálfarinn í umferðum 7 til 12 í Landsbankadeild- inni og Helgi Sigurðsson besti leikmaðurinn. Lítið gengur hjá man. utd Hraust og heilbrigð félagsbústaðir vildu sitt og þar sem gamli maðurinn gat ekki borgað var honum vísað á dyr. eigandi Svarta svansins gefur gamla manninum að borða, en hann á hvergi húsaskjól. Sjá bls. 2. Kóngurinn lifir fólk sport FIMMTuDAGInn 16. ÁGÚST
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.