Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Blaðsíða 8
„Þetta er hrein og bein pólítísk ref-
skák,“ segir Valur Ásmundsson sem
safnar undirskriftum gegn deili-
skipulagstillögu um að byggja eigi
níu hæða byggingu í miðbæ Hafn-
arfjarðar.
Valur gagnrýnir lélega auglýsingu
á kynningarfundi sem var haldinn
í Hafnarborg í gær klukkan fimm á
vegum skipulagsráðs Hafnarfjarð-
ar. Halda átti fundinn í fyrrakvöld
en því var breytt skyndilega að sögn
Vals. Hann segir einu auglýsinguna
sem barst um breyttan fundartíma
hafa birst í atvinnublaði Morgun-
blaðsins. Honum þykir það léleg
vinnubrögð og gagnrýnir að auglýs-
ingin hafi ekki birst víðar.
Sætta sig við fimm hæðir
Húsið sem Hanzahópurinn hyggst
reisa verður verslunar-, þjónustu- og
íbúðarhúsnæði. Það verður alls níu
hæðir en átti upprunalega að vera
tólf hæðir. Því var breytt þar sem tal-
ið var að skuggamyndun yrði of mik-
il. Hópurinn sem andmælir byggingu
hússins segja það enn of hátt og vill
að það verði fjórar til fimm hæðir. Að
sögn Vals mun húsið ekki passa inn
í bæjarmyndina vegna hæðarinnar.
Hann gagnrýnir einnig hugsanlegan
vindstreng sem gæti myndast vegna
hæðar hússins en því hefur Hanza-
hópurinn hafnað.
Náttúrulega ryksuga
„Vindurinn verður eins og ryk-
suga,“ segir Valur um hugsanlegan
vindstreng sem mun stafa frá hárri
byggingunni. Hann segir einnig
skuggamyndun eiga eftir að taka sinn
toll af miðbænum í Hafnarfirði og því
vill hann hafa það lægra. Að sögn Vals
gengur undirskriftasöfnunin nokk-
uð vel. Valur segist ánægður með að
seinkað var fresti til þess að skila inn
athugasemdum við skipulagið. Upp-
haflega átti fresturinn að renna út
þann 3. ágúst. Því var frestað til 22.
ágúst vegna þess hversu margir voru
í sumarleyfum eða utanbæjar.
Þremur metrum hærra
„Húsið verður þremur metrum
hærra en turnarnir á Firði eins og til-
lagan gerir ráð fyrir núna,“ segir Sig-
rún Þorgrímsdóttir, framkvæmdar-
stjóri Hanzahópsins.
Hún segir að upplýsingaflæði
megi vera betra varðandi deiliskipu-
lagstillöguna og bendir á að götu-
myndin verði léttari ef tillagan verð-
ur samþykkt. Húsnæðið er hannað
með það í huga að hleypa meiri birtu
inn á Strandgötuna að sögn Sigrún-
ar. Því telur hún skuggavarp ekki
verða til teljandi vandræða. Þá er
Hanzahópurinn í samstarfi við batt-
erí ehf sem sér um veðurfarsskoðun
og spornað verður við vindi vegna
byggingarinnar.
Innspýting í bæjarfélagið
„Bygging hússins verður mik-
il innspýting í bæjarlífið,“ segir Sig-
rún sem trúir því að húsnæðið muni
styrkja miðbæinn í sessi en verslun-
um á eftir að fjölga verði deiliskipu-
lagið samþykkt.
Hún bendir einnig á að íbúð-
irnar, sem verða á fjórðu til níundu
hæð, séu hannaðar með þarfir eldri
borgara í huga. Þá mun útsýnið vera
frábært og ákjósanlegur staður til
þess að búa á. Einnig verður innan-
gengt í heilsugæsluna í Firðinum frá
húsnæðinu og því mun staðsetning-
in verða mjög ákjósanleg fyrir þann
hóp.
„Það er mikil vinna sem ligg-
ur þarna að baki og við vonumst til
þess að gera þetta í sátt og samlyndi
við bæjarbúa,“ segir Sigrún.
föstudagur 17. ágúst 20078 Fréttir DV
Harðvítugar deilur eru fram undan í Hafnarfirði út af fyrirhugaðri byggingu níu hæða verslunar- og íbúðar-
húss í miðbænum. Valur Ásmundsson vill lægra hús og segist sætta sig við fjórar til fimm hæðir. Framkvæmda-
stjóri Hanzahópsins sem reisir húsið segir það verða gríðarlega innspýtingu í bæjarlíf Hafnfirðinga.
PÓLITÍSK REFSKÁK UM HÚS
Valur grettISSoN
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Ströndin Húsnæðið hefur verið nefnt ströndin og trúir framkvæmdastjóri Hanza-
hópsins því að bygging þess styrki verslun í bænum.
Valur Ásmundsson safnar undirskrift-
um gegn deiliskipulagi um byggingu níu
hæða þjónustu- og íbúðarhúsnæðis.