Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Blaðsíða 24
föstudagur 17. ágúst 200724 Helgarblað DV
að er blíðskaparveð-
ur í borginni þegar
blaðamaður hittir
Guðjón Þórðar-
son og sest nið-
ur með honum
í morgunkaffi á
Hótel Borg. Kom-
ið er að leikjum
þrettándu umferð-
ar í deildinni og Guð-
jón er brattur þótt Fylk-
ir hafi rofið tuttugu leikja samfellda
sigurgöngu hans sem þjálfara í
bikarkeppninni fyrir skömmu.
Nú er komið að því að hefna
ófaranna, enda á ÍA að mæta Fylki í
deildinni um kvöldið.
Þegar gluggað er í ferilskrá Guð-
jóns í knattspyrnunni má sjá að ár-
angur hans er einstakur. Hann lék
400 leiki með ÍA og varð fimm sinn-
um Íslandsmeistari og fimm sinn-
um bikarmeistari. Hann náði einum
A-landsleik og fjórum leikjum með
yngri landsliðum. Sem þjálfari hef-
ur hann unnið fjóra Íslandsmeist-
aratitla, fjóra bikarmeistaratitla og
deildarbikarkeppnina. Þá kom hann
Stoke City upp í 1. deild á Englandi
og vann Framrúðubikarinn með lið-
inu. Árangur hans með landsliðinu
var einnig einstakur. Af 24 leikjum
unnust 10, jafnteflin urðu 6 og töpin
átta. Markatalan var einnig athyglis-
verð. Liðið skoraði 35 mörk og fékk á
sig 23.
Ekkert væl
En úr hvaða leir er þessi sigursæli
knattspyrnuvíkingur gerður og hvað
mótaði hann?
„Ég kem úr fjölskyldu sem þurfti
að hafa fyrir hlutunum. Faðir minn
var sjómaður og móðir mín ólst upp
í sveitinni. Þau bjuggu allan sinn bú-
skap á Akranesi og ég er alinn upp í
því sjávarplássi. Á þeim tíma gengu
hlutirnir talsvert öðruvísi fyrir sig en
nú en rauði þráðurinn var: Ekkert
væl, enda hjálpar enginn þeim sem
ekki hjálpa sér sjálfir. Að sama skapi
vorum við systkinin hvött til þess að
takast á við hlutina og vera ekkert
að fela okkur. Leti var talin hin arg-
asta ómennska. Ef menn voru óvilj-
ugir til verka fengu þeir að heyra það.
Því kom aldrei annað til greina en
að við gerðum kröfu til sjálfra okkar
og það gerði ég og hef alltaf gert. Þar
af leiðandi geri ég kröfur til annarra
líka.“ Litla samfélagið á Skaganum
sem skóp Guðjón var á heildina lit-
ið þessu marki brennt. Hann fór á sjó
með föður sínum tvö sumur, 15 og 16
ára gamall.
„Fyrst var ég á trillu með honum
og seinna sumarið á línubát. Í úti-
legunni á línunni við Grænland og
norður í hafi komst maður í kynni
við lítið samfélag, sjómennina, og
var lokaður með þeim í litlum lúkar
í 12 til 14 daga. Ungir menn þurftu að
vera nokkuð harðir til þess að kom-
ast í gegnum það samfélag. Ef þeir
voru ekki harðir fyrir hörðnuðu þeir
við það.“
Guðjón er minnugur þessarar
reynslu í störfum sínum í dag. „Pabbi
lagði höfuðkapp á að skapa góðan
anda og samstöðu um borð. Það er
lykilatriði að fá fólk til liðs við sig sem
er tilbúið að vinna saman.“
Foreldrar Guðjóns, Guðjón Þórð-
arson og Marselía Guðjónsdótt-
ir, eignuðust þrjú börn sem öll eru
framarlega á sínu sviði. Systur Guð-
jóns eru Inga Jóna, forsætisráðherra-
frú og fyrrverandi oddviti sjálfstæð-
ismanna í borgarstjórn, og Herdís,
alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn í Norðvesturkjördæmi.
Frjálslyndur sjálfstæðismaður
„Við erum mikið sjálfstæðisfólk.
Inga Jóna hefur verið lengi í framlín-
unni og nú er Herdís nýorðin þing-
maður og mitt hlutverk er að brýna
þær á bak við tjöldin,“ segir Guðjón
og brosir en heyrst hefur að Guðjón
hafi einmitt stundum verið kallaður
til að hvetja menn til dáða í stjórn-
málunum. Þar hefur hann lesið yfir
hausamótunum á mönnum ekki síð-
ur en í knattspyrnunni.
„Já, ég hef verið sjálfstæðismaður
lengi. Lífssýnin hefur beinst í þá átt
þótt pólitíkin hafi vissulega breyst
talsvert og þróast. Ætli ég teljist ekki
vera frjálslyndur sjálfstæðismaður.
Sjálfstæðismaðurinn Guðjón:
„Ætli ég teljist ekki vera frjálslyndur sjálfstæðismaður. Ég tel að þeim eigi að
hjálpa sem eru hjálpar þurfi en jafnframt eigi að fara vel með og gæta aðhalds.
Þess vegna er ég ekki róttækur hægrimaður í þeim skilningi enda tel ég að
menn þurfi að temja sér umburðarlyndi á öllum sviðum í þjóðlífinu.“
„Ég vorkenni KR en
að mörgu leyti er ekki
hægt að vorkenna
þeim. KR-ingar geta
ekki kennt neinum um
nema sjálfum sér.“