Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Blaðsíða 48
föstudagur 17. ágúst 200748 Helgarblað DV
Umsjón: Sigga Ella og Ása Ottesen. Netfang: tiska@dv.is
Tíska
Sæt og seiðandi
Elettra rosellini er alltaf með puttann á púlsinum og veit hvernig á að haga sér eins og stjarna. Hún er
dóttir Isabellu rossellini og Jons Wiedemann og er mjög heit í fyrirsætubransanum þessa dagana en
hún er andlit nýjustu herferðar snyrtivörufyrirtækisins Lancôme.
Heimasíðu-
kóngurinn
Nafn? „gylfi Blöndal.“
Hvað ert þú að gera? „sit við
tölvuna og svara þessum
spurningum, annars er ég
skemmtanastjóri á nýjum
tónleika- og skemmtistað sem
heitir Organ og er í Hafnarstræti
1-3. Við opnuðum með pomp
og pragt á Innipúkanum við
rífandi stemningu.“
Hverju mælir þú með?
„Bæjarferð á skemmtilega
tónleika, nýju plötunni með
fujia & Miyagi, transparent
things, og litlu glasi af fernet
Branca eftir matinn.“
Í Reykjavík er gott að vera af
því að... ? „fólkið er frábært og
tónlistin er framúrskarandi góð.“
Heimasíða vikunnar?
„Internetið er bara bóla.“
Þetta eru
gullin mistök
Það er gull hjá okkur og glamúr-
stemming en það geta ekki allir
unnið eða hvað? Hér eru þær
stöllur rose Mcgowan og Car-
men Electra sem hafa fallið fyrir
sama kjólnum og bera hann
misvel. stundum er erfitt að
vera frægur og í sviðsljósinu.
Glamúr og gersemar
Þetta er svo sannarlega tíminn til að vera glansandi fínn enda Menningarnótt og bærinn sem og
við skreytt frá toppi til táar. Skellið ykkur í glamúrgírinn og sprellið smávegis.
Þeir eru
geggjaðir
strigaskórnir sem eru að trylla
lýðinn fást í Kronkron á Vitastíg
og eru kokteilblanda frá Melissu
og Herchcovitch. Þeir eru úr
gúmmíefni sem þolir nánast allt
sem og rúskinni sem þolir
kannski ekki alveg allt. En hvað
um það, þeir eru svo fallegir og
skemmtilega hressandi. farið og
kíkið því þetta er eitthvað sem
flestir ættu að kaupa sér.
litapallettan kom á óvart
skemmtileg útfærsla hjá Missoni þar sem fötin voru
prýdd hinum ýmsu mynstrum. Pastelflísar í sama mynstri
voru í bakgrunninn og á sýningarpallinum sjálfum. án
þess að maður blindaðist varð útfærslan alveg hreint
dásamleg.
HHH
trílógía, 36.000 kr.
Nakti apinn, 19.900 kr.
rokk og rósir, 4.950 kr.
rokk og rósir, 1.100 kr.
rokk og rósir, 1.450 kr.
glamúr, 1.750 kr.
glamúr, 4.450 kr.
glamúr, 2.450 kr.
Kronkron, 2.100 kr.
Kronkron, 6.500 kr.