Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Blaðsíða 59
Vill endurgera
Escape from
New York
Kvikmyndagerðarmaðurinn Len
Wiseman, sem leikstýrði kvikmynd-
inni Live
Free or Die
Hard sem
kom út fyrr
á árinu, er í
samninga-
viðræðum
við
framleið-
endur um
að
endurgera
hina
klassísku
kvikmynd
Escape from New York frá árinu
1981. Kurt Russell fór eftirminnilega
með hlutverk Snake Plissken í
upprunalegu útgáfunni sem og í
framhaldinu, Escape from L.A, sem
kom út árið 1996. Leikarinn Gerard
Butler hefur hins vegar lýst yfir
áhuga á að fara með hlutverk
Plissken í endurgerðinni.
Endurgerir
Fantastic Voyage
Þýski leikstjórinn Roland Emmerich
ætlar að endurgera vísindaskáld-
skaparmyndina Fantastic Voyage frá
árinu 1966. Myndin fjallar um
vísindamann sem er að deyja úr
blóðtappa. Eina leiðin fyrir hann til
að lifa er að minnka fimm samstarfs-
félaga sína og senda þá inn í
blóðrásina. Emmerich er enginn
nýgræðingur og hefur áður gert
myndir eins og Stargate, Independ-
ence Day, Godzilla og The Day After
Tomorrow.
föstudagur 17. ágúst 2007DV Bíó 59
Sprengingar
og læti
Mikið er lagt í alla umgjörð við gerð
nýjustu Batman-kvikmyndarinnar,
The Dark Knight. Um þessar mundir
er kvikmyndatökuliðið að fylla
fjögurra hæða byggingu af sprengi-
efni og bensíni og er ætlunin að
sprengja hana í loft upp í einu af
spennuatriðunum. Sprengingin mun
eiga sér stað tuttugasta og níunda
ágúst í Chicago en byggingin sem um
ræðir er gömul sælgætisverksmiðja.
Einnig er orðrómur á kreiki um að
þetta sé ekki eina sprengingin sem
muni eiga sér stað við gerð
myndarinnar.
Heldur áfram
að leika
Áhættuleikkonan Zoe Bell, sem lék
sjálfa sig í myndinni Death Proof eftir
Quentin
Tarantino,
ætlar að
halda
áfram að
leika. Hún
mun leika í
væntan-
legri
hasarmynd
frá
framleið-
andanum
Marco
Weber sem hefur enn ekki hlotið
nafn. Zoe mun leika hermann sem
kemur heim frá Írak. Hún ákveður að
hjálpa ungri konu og þá hefst
hasarinn. Það er Sarah Thorp sem
skrifar handritið en hún hefur áður
skrifað handritið að myndinni
Twisted með þeim Samuel L.
Jackson, Ashley Judd og Andy Garcia.
Leikarinn og óskarsverð-
launahafinn Tom Hanks hefur
verið kosinn einn af varafor-
setum bandarísku kvik-
myndaakademíunnar eða
Óskarsakademíunnar. Þetta
var tilkynnt á miðvikudaginn
en kvikmyndaframleiðandinn
Sid Ganis var kosinn forseti
akademíunnar þriðja
kjörtímabilið í röð. Áður var
Hanks yfirmaður leikara
innan akademíunnar og er
þetta því skref upp á við fyrir
kappann.
Varaforseti
óskarsaka-
demíunnar Leikkonan Cameron Diaz, sem
hætti með Justin Timberlake í
janúar síðastliðnum eftir langt
samband og hefur verið orðuð
við Jude Law, virðist nú vera að
slá sér upp með söngvaranum
John Mayer. Það sást til þeirra
láta vel að hvort öðru þegar þau
snæddu saman kvöldverð fyrir
skemmstu. Ekki er langt síðan
John Mayer var með söngkon-
unni Jessicu Simpsons en það
samband endaði ekki á góðu
nótunum. Hin 34 ára Cameron er
um þessar mundir stödd í New
York við tökur á myndinni What
Happens in Vegas.
Komin
með nýjan?
gott. Tucker lék svo í Rush Hour árið
1998 og má segja að það hafi ver-
ið það besta og um leið það versta
sem kom fyrir kvikmyndaferil hans.
Vegna þess að einu myndirnar sem
að Tucker hefur leikið í síðan þá eru
Rush Hour 2 og núna Rush Hour 3.
Hann hefur þó ekki hætt að koma
fram sem grínisti og kemur iðulega
fram á góðgerðarsamkomum og
eyðir miklum tíma í að vekja athygli
á fátækt og hungri í Afríku.
Þrátt fyrir að lítið hafi verið að
gera síðustu ár hjá Tucker þarf hann
ekki að hafa áhyggjur af peningum
þar sem hann skrifaði upp á 40 millj-
ón dala samning við New Line Ci-
nema um að leika í Rush Hour 3 auk
annarrar ónefndrar myndar. Með því
kemst Tucker í hinn óformlega „20
milljón dala klúbb“ en í honum eru
leikarar sem fá þá upphæð eða meira
fyrir hverja mynd og þar eru menn
eins og Brad Pitt, Denzel Washing-
ton, Tom Cruise og Will Smith.
asgeir@dv.is
Eins og köttur Jackie lætur
aldurinn ekki aftra sér.
Jackie Chan Hóf feril sinn í
mynd með Bruce Lee.
Chris Tucker Hefur
aðeins leikið í rush Hour
1,2 og 3 síðan 1998.