Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Blaðsíða 31
DV Sport föstudagur 17. ágúst 2007 31
MARGUR ER KNÁR ÞÓTT HANN SÉ SMÁR
Í Landsbankadeild karla eru nokkrir knáir fótboltamenn
þótt þeir séu smáir. Hver hefur ekki heyrt í stúkunni á völl-
unum að þessi eða hinn væri kominn í atvinnumennsku ef
hann væri nokkrum sentímetrum hærri? DV valdi litla liðið
í deildinni og þar sannast hið fornkveðna
MIÐJUMAÐUR
Hans Mathisen, Fram
Er nánast jafnstór og
knötturinn en lætur
það ekki aftra sér.
Lætur vel finna fyrir
sér en eins og svo oft í
sumar hefur hann
verið í einskis manns
landi líkt og svo
margir hjá fram.
MIÐJUMAÐUR
Jónas Guðni
Sævarsson, Keflavík
Þrátt fyrir að vera ekki
hár í loftinu er Jónas
einn af betri mönnum
Landsbankadeildar-
innar. Leikmaður sem
allir þjálfarar vilja hafa
í sínu liði.
FRAMHERJI
Grétar Ólafur
Hjartarsson, KR
frábær með boltann
og þrátt fyrir dapurt
gengi Kr í sumar hefur
grétar alltaf staðið fyrir
sínu. Naskur að finna
samherja sína með
hnitmiðuðum
sendingum.
FRAMHERJI
Guðmundur
Benediktsson, Val
Hefur verið með betri
mönnum hér á landi í
hartnær áratug og
virðist bara verða betri
með aldrinum.
Hugmyndaríkur á
vellinum og Valsmenn
eru duglegir að nýta
sér það.
Þjálfari
Leifur Garðarsson,
Fylki
stóð lengi í baráttunni
í körfuboltanum sem
dómari. skemmtilegur
karakter sem er með
svör við öllu,
sérstaklega Everton.
FRAMHERJI
Gunnar Kristjáns-
son, Víkingi stundum
kallaður „speedy
gonzales“ því það eru
fáir ef nokkrir sem
hlaupa hraðar en
hann. duglegur
leikmaður og það
hefur komið fyrir að
hann vinni jafnvel
skallabolta.
Þessir komu einnig til greina
Aaron Palomares, HK, Kári Steinn Reynisson, ÍA, Baldur Bett, Val, Haukur Ingi Guðnason, Fylki, Atli
Guðnason, FH, Kristinn Steindórsson, Breiðabliki, Hafþór Ægir Vilhjálmsson, Val, Halldór Hilmisson, Fylki.