Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Blaðsíða 18
Sigyn er alveg bit yfir nýjustu fregnum af Grímseyjarferju. Hún vissi jú að hún hefði kost-
að voðalega mikið og farið fram úr
áætlun og svona, en að hún hefði
kostað tvöfalt meira en gert var ráð
fyrir - hvorki meira
né minna en hálf-
an milljarð! Þá
tók steininn úr.
Sigyn er nefni-
lega orðin mjög
þreytt á að þurfa
sífellt að kyngja
því að á ári hverju
fari milljarðar á milljarða ofan í ein-
hver pínulítil byggðarlög úti á landi.
Ekki misskilja. Sigyn hefur ekkert á móti
byggðarlögum úti á
landi og heimsækir
þau reglulega. Hún
hefur til dæmis oft
komið til Keflavík-
ur, reyndar oftast á
leiðinni út á flugvöll, og þá eigin-
lega ekki keyrt í gegnum bæinn
eða neitt, heldur bara séð hann. En
það er sama. Svo hefur hún farið til
Akraness. Reyndar bara til að heim-
sækja vinkonu á sjúkrahúsið - en
hún keyrði samt í gegn um bæinn.
Mest heldur hún sig þó í höf-uðborginni. Eins og þorri Íslendinga. Og á hverju ári
flykkist fólk til höfuðborgarsvæðis-
ins því það vill ekki lengur búa úti
á landi. Þeir sem ennþá búa úti á
landi eru þeir sem
ekki geta selt hús-
in sín vegna þess
að þau kosta svo
lítið að það væri
ekki hægt að kaupa
bílskúr í Reykjavík fyr-
ir andvirðið. Fólk er fast.
Það vill samt fá peninga frá rík-inu. Uppbót fyrir kvótamissi, opinber störf, olíuhreinsistöð,
göng, ferjur, brýr, háskóla og þar
fram eftir götunum. Fólkið er ekki
að biðja um þetta allt saman svo
því líði betur í þorpinu sínu. Nei,
það er að biðja
um þetta allt
saman svo það
geti flutt í burtu!
Bættar samgöng-
ur, fjölgun starfa og
betri menntunartæki-
færi leiða til hærra húsnæðisverðs.
Og hærra húsnæðisverð gerir fólki
kleift að selja húsin sín og kaupa
íbúð í höfuðborginni. Sem er það
sem allir vilja.
Af hverju viðurkennum við þetta ekki bara og í stað þess að hella milljörðum
á milljarða
ofan í sam-
göngubætur,
menntunar-
úrbætur, at-
vinnuleysisúr-
bætur og því um
líkt, bjóðum við fólkinu, sem vill
flytja, bara íbúð á besta stað á land-
inu - á höfuðborgarsvæðinu. Ríkið
gæti síðan annaðhvort notað hús-
næðið úti á landi sem afdrep fyrir
afdankaða stjórnmálamenn, eða
einfaldlega selt það aftur fólki sem
vill eiga sumarbústað fjarri ys og þys
borgarinnar. Og allir græða.
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 200718 Umræða DV
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir
ritStjóri og ábyrgðarmaður:
Sigurjón m. Egilsson
fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
fréttaStjóri: brynjólfur Þór guðmundsson
aðStoðarritStjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir
auglýSingaStjóri: Valdimar birgisson
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
AðAlnÚMeR 512 7000, RiTSTjóRn 512 7010,
ÁSkRiFTARSíMi 512 7080, AUGlýSinGAR 512 70 40.
Leggjum niður krummaskuðin
SIGYN
Sigurjón M. EgilSSon ritStjóri Skrifar. Í máli þessa gamla manns er Svarti svanurinn við Rauðárstíg eina lausnin sem enn hefur fundist á knýjandi vanda hans.
Svarti svanurinn
LeIðarI
Hann hefur átt erfitt gamli maður-inn sem Félagsbústaðir létu bera út af heimili sínu. Hann átti ekkert val, hann varð að búa á götunni og
vera háður góðu fólki um mat. Þetta er hlut-
skipti gamals manns sem kann ekki fótum
sínum forráð. Kannski hefði hann átt að verja
takmörkuðum peningum sínum með öðrum
hætti en hann gerði. Hvað um það, nú er hann
á götunni og óvíst er hvað um hann verður. Fé-
lagsbústaðir segjast ekki geta haft hann í sín-
um húsum þar sem hann borgi ekki leiguna.
Sigurður Friðriksson, framkvæmdastjóri
Félagsbústaða, sagði í DV í gær: „Hann var
borinn út vegna skuldar. Það er svo einfalt að
hann borgaði ekki leiguna og reglurnar ætlast
til þess. Leigan er ítrekuð í hverjum mánuði og leigan er ekki það
há að leigjendur ráði ekki við hana. Þetta er nánast einsdæmi
að bera þurfi leigjendur út úr þjónustuíbúðum fyrir aldraða og
áður en til slíkra ráða er tekið er það kannað til fullnustu hvort
viðkomandi eigi að geta borgað leiguna. Að vel athuguðu máli
hefði viðkomandi átt að geta staðið undir greiðslubyrði leigunn-
ar. Peningunum var greinilega ráðstafað annað en hvers vegna
vitum við ekki. Það er allt reynt áður en leigj-
andi er borinn út og til þess þarf úrskurð dóm-
ara. Að fólk sé borið út úr félagslegri þjónustu-
íbúð er algjört neyðarúrræði. Það er alveg ljóst
að við getum ekki haft hjá okkur fólk sem ekki
borgar leiguna.“
Félagsbústaðir geta ekki haft þennan ólán-
sama mann hjá sér. Er það svo að þá sé gatan
eina úrræðið? Hver er samfélagsábyrgð okk-
ar? Árni Júlíusson, eigandi söluturnsins Svarta
svansins við Rauðarárstíg, hefur tekið Ingólf
undir sinn verndarvæng. Þar fær Ingólfur heitt
kaffi á morgnana og heitar máltíðir yfir daginn.
„Hann var hjá mér núna í morgun og aftur í há-
deginu. Það var hrikalegt að sjá karlinn, hann
leit ekki vel út enda svaf hann úti í nótt. Ingó
kemur iðulega til mín og borðar hér í öll mál. Hann er virkilega
ljúfur og ömurlegt að horfa upp á þetta, svona er víst Ísland í dag.
Ég geri mitt besta til að sjá um hann og á nokkra aðra slíka skjól-
stæðinga,“ sagði Árni við DV í gær. Í máli þessa gamla manns
er Svarti svanurinn við Rauðarárstíg eina lausnin sem enn hef-
ur fundist á knýjandi vanda hans. Ekki er það varanlegt og ekki
okkur hinum til sóma.
DómStóLL GötuNNar
Á einhver að segja af sér vegna grímseyjarferju?
„Vegagerðin er ábyrg og svo
ráðherrann gamli, Sturla Böðvars. Hann
ætti að segja af sér og líka út af fjölda
annarra mála. Það þarf fyrst og fremst
að koma honum af þingi, hann er
búinn að gera nógu mikinn óskunda
fyrir.“
Ásgeir Björnsson, 41 árs,
atvinnubílstjóri
„Fjármálaráðherrann á að segja af sér.
Sturla gæti sagt af sér sem forseti
Alþingis en það er þó fulllangt liðið
síðan ákvörðunin var tekinn. Svo þarf
að draga fleiri til ábyrgar líkt og
ráðuneytisstjórann frekar en
vegamálastjórann.“
Helga Jóhannsdóttir, 65 ára,
forstöðumaður
„Ég held að það sé ekki spurnig að það
sé vegagerðin sem ber mesta ábyrgð.
Það eru embættismennirnir sem taka
ákvarðanirnar sem þeir mega ekkert
taka. Svo ber ráðherrann að sjálfsögðu
endanlega ábyrgð. Annars ætti Sturla
að vera löngu búinn að segja af sér.“
Magnús Jónasson, 60 ára,
deildarstjóri öldrunarmála í
Vestmannaeyjum
„Það ættu að vera vegamálastjóri og
Sturla. Hann er ábyrguir fyrir þessu.
Annars þarf bara að hrista upp í
ráðuneytinu. Mér finnst einnig að
fjármálaráðherrann eigi að segja af sér
en báðir spila þeir saman.“
Birgir Kristjánsson, 76 ára,
ellilífeyrisþegi
SaNDkorN
n Athygli vekur hvað Kristján
Möller samgönguráðherra er
orðinn varfærinn eftir að hann
varð ráð-
herra. Fram
að stjórn-
arskiptum
hafði hann
hátt um hve
illa var stað-
ið að málum
með Gríms-
eyjarferj-
una nýju. Eftir að hann varð
ráðherra virðist hann hins
vegar ætla að fara sér hægt og
heldur nú hlífiskildi yfir for-
vera sínum í starfi. Segja sumir
þetta til marks um það hvað
harðir stjórnarandstöðuþing-
menn eru stundum fljótir að
lyppast niður þegar þeir verða
ráðherrar og verða umburðar-
lyndari gagnvart mistökum.
n Annars virðist það regla að
refsa ekki stjórnendum hjá rík-
inu sem standa sig ekki í starfi.
Þannig fer hver ríkisstofnun-
in fram úr fjárheimildum, að
því er virðist
án þess að
nokkuð sé
gert til að
refsa mönn-
um. Ríkis-
endurskoð-
un krefst nú
enn einu
sinni þess
að stjórnvöld sjái til þess að
farið sé eftir fjárlögum en það
hefur virst mönnum ofviða
hvort sem fjármálaráðherr-
ann heitir Árni Mathiesen eða
Geir Hilmar Haarde.
n Reyndar er svo að ráð-
herrar hafa verið gagnrýndir
mikið fyrir það síðustu ár að
setja ekki fram raunhæf fjár-
lög að hausti heldur einhverja
óskalista sem sé augljóst að
ekki gangi eftir. Einn harðasti
gagnrýnandi þessarar ómark-
vissu fjár-
lagagerðar
er þingmað-
ur að austan
sem nefnist
Einar Már
Sigurðsson
sem var full-
trúi Samfylk-
ingar í fjár-
laganefnd í stjórnarandstöðu
og helsti talsmaður flokksins
í þessum málum. Nú hefur
hann verið fluttur í aðra nefnd.
n Mosfellingar standa í stór-
ræðum um helgina. Mikil
hátíð verður í Mosskógum í
Mosfellsdal á laugardag. Þar
verður meðal annars leitað að
bestu sultunni. Búist er við að
fólk víðs vegar að komi með
sultuna sína til að láta meta
og bera saman við aðrar sult-
ur. sultugerðarfólks í þessari
árvissu keppni sultugerðar-
fólks. Meðal
þeirra sem
eru þekkt-
ar fyrir að
hafa tekið
þátt eru
söngkonan
Diddú og
kvikmynda-
gerðarkon-
an Guðný Halldórsdóttir.
Lúxuskáetur í ferjunni
>>Meðal þess sem fundið er að við endurgerð Grímseyjar-
ferjunnar eru lúxusvistarverur áhafnarinnar. Ríkisendurskoð-
un finnst fullmikið lagt í aðbúnað sjómannanna.
fréttir
>> Flestir geta tekið sig á og eflt
líkamann og sálina. Í DV í dag er
sérblað um fólk sem hefur endur-
skipulagt líf sitt og stundar holla
hreyfingu og vandar sig í mataræði.
DV Heilsa
fimmtudagur 16. ágúst 2007 13
Heilbrigð sál
Framhald
á næstu opnu
dv mynd ásgeir
Í HrAUsTUM lÍKAMA
Heilsa er
forsenda þess að við
getum tekist á við
þær þrautir sem lífið
leggur á okkur. góð
andleg og líkamleg
heilsa veitir okkur kraft
og dug til að spila af
skynsemi úr þeim spil-
um sem við fæðumst með
á hendi. ekki verður deilt
um tengsl hreyfingar og
góðrar heilsu en þrátt fyrir
þessi augljósu tengsl eiga
fjölmargir við heilsubresti
að stríða. Í mörgum tilvik-
um er óhollu mataræði og
langvarandi kyrrsetu um að kenna. við
töluðum við nokkra Íslendinga sem hafa
sagt óheilbrigði stríð á hendur og breytt
um lífsstíl. á baksíðu er rætt við Arnald
Birgi Konráðsson, Bootcamp-þjálfara,
sem gefur þeim góð ráð sem hafa í
hyggju að ástunda heilbrigðara líferni.
Umsjón: Baldur Guðmundsson.
Netfang: baldur@dv.is
D
V
M
yn
d
Ás
ge
ir
gamall og
fátækur og á
hvergi heima
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
fimmtudagur 16. ágúst 2007 dagblaðið vísir 124. tbl. – 97. árg. – verð kr. 235
fátækum gömlum manni var vísað af elliheimili:
fólk
>>Rétt þrjátíu ár eru frá
meintum dauða Elvis
Presley. Fjöldi fólks um
allan heim minnist
kóngsins á þessum
tímamótum.
>> Manchester United varði miklu fé í
nýja leikmenn fyrir leiktíðina. Þrátt
fyrir það er liðið aðeins með tvö stig
eftir tvo fyrstu leikina í ensku
deildinni. Liðið gerði jafntefli
við Portsmouth í gær en
sex aðrir leikir voru háðir
í deildinni. Guðjón
Þórðarson var valinn
besti þjálfarinn í umferðum
7 til 12 í Landsbankadeild-
inni og Helgi Sigurðsson besti
leikmaðurinn.
Lítið gengur
hjá man. utd
Hraust og
heilbrigð
félagsbústaðir vildu sitt og þar sem gamli
maðurinn gat ekki borgað var honum
vísað á dyr. eigandi Svarta svansins
gefur gamla manninum að
borða, en hann á
hvergi húsaskjól.
Sjá bls. 2.
Kóngurinn
lif r
fólk
sport
Fólkið er ekki að biðja um þetta allt
saman svo því líði betur í þorpinu sínu.