Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Blaðsíða 43
DV Helgarblað föstudagur 17. ágúst 2007 43
Anna Marín vinkona mín með okkur
út en hún er ólett svo hún varð bara
alltaf óléttari og ólettari og á endan-
um gat hún ekki ferðast lengur. En
Hrafnhildur vinkona mín hefur ver-
ið mikið með hana og svo hafa Gyða
og Jón Atli Hairdoctor verið með
okkur að selja varning á tónleikun-
um og hafa þá líka getað passað upp
á Kríu en núna er hún komin með
aðra góða vinkonu mína sem barna-
píu en það er hún Natalie.“
Tónleikaferðin gengið vel
Schnitsel On the Highway tón-
leikaferðalagið, einsog það kallast,
hefur gengið alveg ótrúlega vel og
platan Forever víðast hvar fengið
góðar viðtökur. „Við vorum að spila
fyrir fimmþúsund manns í Búdapest
um daginn og það voru bara allir í
brjáluðu stuði. Það er alveg frábært
að fara eitthvert út og spila lögin sín
og sjá tónleikagesti vera að syngja
með lögunum og svo kanski verð-
ur allt bara alveg brjálað þegar eitt-
hvað ákveðið lag byrjar,“ segir Urður
sem segir flesta tónleika sveitarinn-
ar hafa verið mjög vel sótta. Fleiri
breytingar hafa þó orðið á tónleika-
ferðalaginu frá því að hljómsveit-
in fylgdi eftir Attention því nú hafa
einnig tvær bakraddasöngkonur
bæst í hópinn auk þess sem Dan-
íel Ágúst syngur eitt lag á plötunni
og hefur hann þar að leiðandi verið
með á túrnum. „Á Forever fórum við
að notast svo mikið við röddun sem
þarfnaðist bakradda á tónleikunum.
Fyrir tvemur árum kom Ásta inní
bakraddirnar en þegar við byrjuð-
um að túra Forever gekk svo Svein-
björg vinkona Ástu til liðs við hljóm-
sveitina lika. Það að hafa fengið Ástu
og Sveinbjörgu til liðs við okkur er
bara algjör guðsgjöf. Þær eru bara
æðislegar og svo gaman að hafa þær
með í þessu ferðalagi því þær passa
svo vel inn í þennan góða hóp og
gera svo mikið fyrir tónleikana. mér
finnst það reyndar oft gleymast þeg-
ar það eru einvherjar umfjallanir
um tónleikana okkar hvað þær eru
stór hluti af þessu öllu saman því ef
þær væru ekki til staðar þá væri þett
aldrei jafn gott,“ segir Urður af mik-
illi einlægni. „Þetta er bara svo góð-
ur hópur, Jón Skuggi hljóðmaður-
inn okkar og Aggi ljósamaðurinn og
Hrafnhildur og Kría og allir í hljóm-
sveitinni. Síðan er það náttúrulega
lykilmaðurinn Daníel Ágúst sem
hefur verið alveg rosalega gaman að
kynnast og svo er líka hann frábær
tónlistarmaður. Það er allt öðruvísi
að vera í svona tónleikaferðalagi en
maður getur ímyndað sér en það
er svo ótrúlega gaman ef maður er
með skemmtilegu fólki og allt geng-
ur vel.“
Á menningarnótt ætlar Gus Gus
að halda tvenna tónleika á skemmti-
staðnum Nasa en halda svo tón-
leikaferðalaginu áfram og skella sér
til Belgrad helgina þar á eftir og í
smá Frakklandstúr eftir Belgrad.Að-
spurð um það hvort það sé ekki skrít-
ið að spila á svona litlum stað hérna
heima eftir að hafa verið að spila á
svo stórum tónlistarhátíðum einsog
Glastonbury segir Urður: „Það er svo
mikið af stöðum í Evrópu sem eru líka
bara svona litlir staðir og mér hefur
alltaf fundist voðalega næs að spila
á svona minni stöðum því maður
nær svo góðri tengingu við tónleika-
gestina en í dag finnst mér eiginlega
bara bæði orðið jafn skemmtilegt að
spila á stærri stöðum og á litlum. Að-
almunurinn á því að spila erlendis
eða hér heima held ég að felist í því
að tónleikarnir byrja yfirleitt fyrr er-
lendis en hér heima erum við eigin-
lega aldrei að byrja að spila fyrr en
eftir miðnætti. Ég hef svolítið ver-
ið að berjast við að færa tónleikana
framar á kvöldin því stundum eftir
góða tónleika langar manni svo til að
fara eitthvað út og halda upp á það
en þá er klukkan kanski bara orð-
in fimm um nótt. Það er samt allt-
af jafn gaman að spila hérna heima
og sérstaklega á Nasa. Það myndast
alltaf svo góð stemning og skemmti-
legir tónleikagestir.“ Gus Gus ætlar
þó að brydda upp á smæa nýjung á
laugardaginn og halda mjög sérstaka
tónleika klukkan fimm um daginn.
„Við ætlum að vera með eina svona
barnatónleika. Þá er sko bannað fyr-
ir fólk eldri en tuttugu ára nema í
fylgd með börnum. Svo verðum við
með tónleika um kvöldið líka en það
hefur alltaf verið troðið útúr dyrum
þegar við höfum spilað á Nasa svo
ég mæli með því að fólk mæti tíman-
lega,“ segir söngkonan að lokum.
krista@dv.is
Þorði aldrei að syngja
Urður ákvað þriggja ára að verða söngkona.
„Það er alveg frábært að túra svona og fá
tækifæri til að ferðast til landa sem maður
myndi annars örugglega aldrei heimsækja.“