Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Blaðsíða 20
Menning
föstudagur 17. ágúst 200720 Menning DV
Reyfi hefst
Hátíðin Reyfi - menningar-
gnægð hefst í Norræna húsinu
á morgun og stendur til 26.
ágúst. Tugir listamanna alls
staðar að af Norðurlöndunum
eru væntanlegir á hátíðina.
Dagskráin er afar fjölbreytt og
listamenn í mörgum listgrein-
um koma fram, þar á meðal
tónlistarmenn, rithöfundar,
ljósmyndarar, arkitektar og
vídeólistamenn. Hátíðin er
liður í eins konar upprisu Nor-
ræna hússins sem verður 40
ára á næsta ári. Allar upplýs-
ingar um hátíðina er að finna
á Reyfi.is.
90 ára afmælissýning Kristjáns
Þrjár sýningar verða opnaðar í
Galleríi Fold á morgun. Í baksaln-
um er sýning á verkum eftir Kristján
Davíðsson. Verkin eru úr einkasafni
Braga Guðlaugssonar dúklagninga-
meistara og eru frá 1940 til 2006.
Málverkasafn Braga er eitt merkasta
safn í einka-
eigu og hýs-
ir fjölmarg-
ar perlur íslenskrar samtímalistar.
Sýningin er haldin í tilefni 90 ára
afmælis Kristjáns en sýningarferill
hans hófst árið 1946. Öll helstu söfn
Íslands eiga verk eftir Kristján sem
og opinber söfn og einkasöfn víða
um heim, meðal annars í Stokk-
hólmi, Gautaborg og Fíladelfíu í
Bandaríkjunum. Sýningin stendur
til 26. ágúst.
Í efri hliðarsal er sýning á skop-
teikningum Halldórs Pétursson-
ar. Um er að ræða tvær myndarað-
ir, frummyndirnar af vel þekktum
skopmyndum frá heimsmeistara-
einvígi Fischers og Spasskys í Laug-
ardalshöllinni 1972 og óborganlegar
skopmyndir af íslenskum víkingum.
Eftir að Halldór kom heim úr fram-
haldsnámi árið 1945 fékkst hann
aðallega við myndskreytingar og
skopteikningar og er óumdeilanleg-
ur frumkvöðull á því sviði. Sýningin
stendur til 26. ágúst.
Í neðri hliðarsal er sýning á verk-
um eftir heimsmálarann Harald Bil-
son. Þetta er önnur sýning Bilsons á
þessu ári en sýningu hans í Alberm-
arle galleríinu í London er nýlok-
ið. Bilson er fæddur 1948 í Reykja-
vík en fluttist til Bretlands á unga
aldri. Verk hans eru í eigu opinberra
safna og í einkasöfnum, þar á meðal
frægra safnara á borð við Bob Haw-
ke, Jonathan Sachs, Anne Robin-
son, Clint Eastwood, Jack Palance,
Zsa Zsa Gabor og Liv Ullman. Verk-
in á þessari sýningu eru öll ný, mál-
uð á þessu ári. Sýningin stendur til 2.
Framlengdar
sýningar
Sýning Magnúsar Páls-
sonar í galleríi i8 hefur verið
framlengd til 25. ágúst. Á sýn-
ingunni, sem ber yfirskriftina
Minning Þórarins Nefjólfsson-
ar, eru skúlptúrar og mynd-
bönd en listamaðurinn segir
að frá unga aldri hafi setið í sér
sagan af Þórarni og viðskiptum
hans við Noregskonung. Sýn-
ing Unnar Mjallar Leifsdóttur,
Undir stiganum, hefur einnig
verið framlengd til 25. ágúst. i8
er opið þriðjudaga til föstu-
daga frá kl. 11 til 17 og laugar-
daga frá 13 til 17.
Langstærsti
draumurinn
Lýðveldisleikhúsið flytur
annan hluta fjölleikasýningar-
innar Langstærsti draumurinn
í Sundhöllinni við Barónsstíg
á Menningarnótt. Þessi hluti
ber nafnið Uppflosnað fólk og
er eftir Benóný Ægisson. Fyrsti
hluti verksins, Þeir stífluðu
dalinn minn, var fluttur í inni-
lauginni í Laugardalnum fyrr
í mánuðinum. Auk hefðbund-
inna þátta leiksýningar (leikur,
dans, tónlist o.s.frv.) verður
notast við kvikmyndatækni og
tölvugrafík. Vatn er grunnþátt-
ur í verkinu og því er í ráði að
sýnt verði í sundlaugum og
sundhöllum.
Laddi sívinsæll
Uppselt er á fyrstu tvær sýningar haustsins á Laddi 6-tugur og opnað
hefur verið fyrir sölu á nýrri sýningu sem fer fram laugardaginn 25.
ágúst. Upphaflega áttu sýningarnar aðeins að verða fjórar en þær eru
nú að verða 50. Uppselt hefur verið á þær allar. Miðasala fer fram hjá
Borgarleikhúsinu og á midi.is.
Eins og sést hér að ofan er Hug-
leiki Dagssyni margt til lista lagt.
Kannski ekki furða þegar haft er í
huga að hann útskrifaðist úr fjöl-
tækni frá Listaháskóla Íslands fyr-
ir fimm árum. Óþarfi er að fjölyrða
um myndasögur Hugleiks sem hafa
skemmt landsmönnum undanfar-
in tvö til þrjú ár. Sumum er þó ekki
skemmt heldur bregður við að skoða
það sem Hugleikur ber á borð í bók-
um sínum. Megnið af því flokkast
nefnilega undir það að vera „politic-
ally uncorrect“. Og hróður Hugleiks
er farinn að berast víðar því ein bóka
hans kom út á ensku í fyrra, undir
heitinu Should You Be Laughing at
This?, hjá hinu þekkta bókaforlagi
Penguin. Önnur er svo væntanleg á
engilsaxnesku í haust.
Í kjölfar velgengni bókanna hef-
ur Hugleikur fengið tækifæri til að
skrifa verk fyrir leikhús. Í hitteðfyrra
gerði hann leikgerð af einni bóka
sinna, Forðist okkur, sem sýnd var
í Borgarleikhúsinu og færði hon-
um Grímuverðlaunin sem leikskáld
ársins. Söngleikurinn Leg var sett-
ur upp í Þjóðleikhúsinu síðastliðinn
vetur og fékk hvorki fleiri né færri en
tólf tilnefningar til Grímuverðlauna.
Og yfirmenn Þjóðleikhússins langar
að njóta starfskrafta og hugvits Hug-
leiks áfram því nú vinnur hann að
nýju leikriti, Baðstofunni, sem stefnt
er að að frumsýna í febrúar. Þá hef-
ur ekki verið nefnd aðkoma Hugleiks
að auglýsingabransanum en þessa
dagana má víða sjá teikningar sem
hann gerði fyrir herferð Strætó bs.
og Reykjavíkurborgar í tengslum við
að frítt verði í strætó fyrir námsmenn
næsta vetur.
Blaðamaður byrjar á að spyrja
Hugleik út í nýja leikritið.
Öfugt Leg
„Eins og ég er að skrifa það núna
gerist leikritið í baðstofu árið 1886
og er nokkurs konar mín úttekt á Ís-
landi í gamla daga. Ég vil helst segja
sem minnst um söguþráðinn, annað
en það að þetta er smækkuð mynd af
ósjálfstæðu Íslandi. Allar persónur
sem maður býst við að sjá í baðstofu-
verki eru þarna: bóndi, húsfreyja,
vinnukona, vinnumaður, gamal-
mennið og litli smalinn. Ég veit ekki
hvort það er hægt að kalla þetta erki-
týpur, en ég geri allavega nokkurs
konar úttekt á þessum týpum. Svo
kemur þarna erlendur aðkomumað-
ur sem er eiginlega í aðalhlutverki.
Við sjáum svolítið þessa Íslendinga
með hans augum.“
Þannig að þetta er ekkert í líkingu
við Leg?
„Þetta er eiginlega öfugt þannig
séð, það er að segja að því leyti að
þetta er ekki tæknibrelluleikrit eins
og Leg var og þetta gerist í gamla
daga en ekki í framtíðinni. Samt
er kannski að einhverju leyti sami
húmor í gangi en ég er líka að prófa
Hugleikur Dags-
son er myndasögu-
höfundur. Hugleik-
ur er leikskáld.
Hugleikur er
strætóauglýsinga-
höfundur. Hugleik-
ur er myndlistar-
maður. Hugleikur
er verðandi kvik-
myndahandrits-
höfundur. Hugleik-
ur ætlar að gerast
rappari á Menn-
ingarnótt. Blaða-
maður DV hitti
þennan fjölhæfa
pilt í vinnustofu
hans í Skipholti á
dögunum.
myndlist
Bjart hjá Bilson
Eitt verkanna sem berja má
augum í galleríi fold á morgun.
Ætla alltaf
að vera í myndasögunum
DVmyndir Ásgeir
Hugleikur Dagsson
„Ég lifi á þessum bókum og leikritunum, en ég er ekki ennþá orðinn
moldríkur. Ég held að það gerist hægt í þessum bókabisness.“