Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Blaðsíða 62
föstudagur 17. ágúst 200762 Síðast en ekki síst DV
Sandkorn
n Henry Birgi Gunnarssyni
íþróttafréttamanni Frétta-
blaðsins tókst af afhjúpa fá-
fengileika Moggabloggsins
þegar honum datt ekkert betra
í hug til að eyða tíma sínum
í fríi en að bregða sér í gervi
Bols Bolssonar og blogga við
allar fréttir á mbl.is. Nú þusa
Moggabloggarar mikið um
hann, sumir tala um að nú
séu komin ný orð í íslenska
tungu, svo sem
moggabloggs-
boli meðan
aðrir, eins
og Matthí-
as Freyr
Matthías-
son, segja
Henry
Birgi of-
metinn.
n Athyglisvert með Geir Ól-
afsson hvað hann er bjart-
sýnn á að fá Nancy Sinatra til
landsins þrátt fyrir að enn hafi
ekkert gengið. Snemma sum-
ars gerði hann mikið úr því að
hann væri á ferð til Bandaríkj-
anna til fá Nancy til lands-
ins. Svo kom í ljós að hann
hitti hvorki
Nancy né
umboðs-
mann
hennar.
Samt lýsti
hann því
ótrauð-
ur yfir við
komuna til
Íslands á mánudegi að hann
myndi tilkynna um tónleikana
fyrir vikulokin. Það gekk ekki
eftir og nú, löngu síðar, segist
hann vera með tíðindi eftir
næstum mánuð. Hvað næst?
n Enska knattspyrnuliðið
Sheffield United hefur tilkynnt
að félagið ætli að kæra Íslend-
ingaliðið West Ham og krefst
skaðabóta út af því tekjutapi
sem félagið varð fyrir í kjölfar
falls liðsins niður í næstefstu
deild. Sheffield United fer
fram á 4–8 milljarða króna í
skaðabætur. Sheffield Unit-
ed fór fram á það í vor að stig
yrðu tek-
in af West
Ham vegna
viðskipta fé-
lagsins með
Tevéz og
Mascher-
ano. Það var
hins vegar
ekki gert og
við það gat
Sheffield United ekki unað.
Því eiga Eggert Magnússon,
Björgólfur Guðmundsson
og félagar yfir höfði sér aðra
lögsókn.
Hver er maðurinn?
„Hann er Akureyringur, þorpari og
Þórsari. Og ætli ég sé ekki líka þjónn.“
Hvað drífur þig áfram?
„Morgunmaturinn.“
Hvað skiptir þig máli?
„Það myndi vera fjölskyldan, vinir
og bara þessi klassíski pakki sem til-
vera manns snýst um.“
Í hvað fer tími þinn?
„Ég vinn og rúmlega það.“
Hvað má gera fyrir eldri borgara?
„Það er deginum ljósara að það
þarf að hækka lífeyrinn. Eldri borgar-
ar eiga of lítinn rétt eins og staðan er í
dag. Ég vona bara að lífið verði skárra
þegar við verður eldri. Annars þarf
almennt að setja meiri pening í vel-
ferðarmál. Og ekki bara í þessu dæmi
heldur á fjölda annarra sviða.“
Hvað er fram undan?
„Ætli það séu ekki breytingar á
sjoppunni, svo fer ég í sumarfrí í nóv-
ember. Þó fyrr hefði verið.“
Hverju myndirðu vilja breyta?
„Heimaþjónustu eldri borgara. Svo
virðist sem það sé ekki hægt að manna
hana. Sennilega er það hörgull á fram-
boði því alltaf virðist vanta fólk.“
Ertu miskunnsami samverjinn?
„Í nágrenni Hlemms sér maður
margt. Sú ógæfa sem maður sér er
nú yfirleitt gott fólk sem hefur farið út
af sporinu. En ég er hógvær að öðru
leyti.“
Eitthvað að lokum?
„Ég hvet fólk bara til að kíkja í ódýr-
asta hádegismatinn í borginni á Svarta
svaninum.“
MAÐUR
DAGSINS
Þorpari og Þórs-
ari frá akureyri
Árni Júlíusson
Eigandi söluturnsins svarta svansins, árni
Júlíusson framreiðslumaður, var í fréttum dV
fyrir að koma Ingólfi sigurgeirssyni til hjálpar
eftir að honum var kastað á dyr í þjónustu-
íbúðum aldraðra við Lönguhlíð fyrir að geta
ekki greitt leigu. árni hefur leyft honum að
skrifa á sig mat og nauðsynjar svo hann geti
haft í sig og á.
Í DAG Á MORGUN
HINN DAGINN
Veðrið
+9 4
+12
3
+9
2+121
+13
2
+12
4
+12
3
+122
+11
3
+14 2
+13 2
+12
3
+10
3
+11 3
+12
2
Nýjar
ÍSlENSkar
þjÓðSöGur
Það var á bensínstöð á Norðurlandi að af-greiðslumaðurinn var nokkuð utangátta. Eitt
sinn kom inn viðskiptavin-
ur sem vildi fá frostlög á bíl-
inn sinn. Afgreiðslumaðurinn
brást vel við
og gekk inn á
lagerinn og tók
þaðan brúsa,
sem hann taldi geyma
frostlög. Hann
skrúfaði lokið
af vatnstanki
bílsins og hellti
á tankinn.
Þegar hann var
búinn að hella
um tveimur
lítrum tók að
freyða upp úr
vatnstankinum.
Afgreiðslumaðurinn og við-
skiptavinurinn urðu undrandi
mjög.
Þegar þeir gættu hverju þetta
sætti sá þeir sér til hrellingar að
ekki var frostlögur í brúsanum.
Á brúsanum stóð skýrum stöf-
um ÞVOL.
(Úr einfeldningssögum)
Björn heitinn Eiríksson, leigu-
bílstjóri í Hafnarfirði, sem var
oftast kenndur við Sjónarhól,
þótti aka hratt og með látum.
Eitt sinn var hann að aka með
farþega eftir Selvogsgötu í Hafn-
arfirði, á talverðri ferð, í átt að
Suðurgötu. Þar sem göturn-
ar mætast endar Selvogsgata,
gatnamótin eru svokölluð T-
gatnamót.
Þrátt fyrir hraðann hægði Björn
ferðina lítið og tók 90 gráðu
beygju með miklum látum, svo
ískraði í hjólbörðunum, og far-
þeginn sem var í aftursætinu
rann til og skall á hurðina.
„Hvers lags beygju tekur þú eig-
inlega?“ stundi farþeginn upp.
„Hvað hefðir þú sagt hefði ég
enga beygju tekið?“ svaraði
Björn.
(Úr leigubílstjórasögum)
DV mynd Stefán
Menningarnótt - veðrið ekki til trafala
Ég man eftir þúsundum regnhlífa á
Menningarnótt, ég man líka eftir hvimleiðri
og kaldri norðanátt þar sem fólk var pakkað
í trefla og húfur. Oftar hefur veðrið hins
vegar leikið við gesti og í fyrra var það gott,
hægur vindur og hlýtt. Þá voru veðurspár
einmitt á þá lund að það mundi rigna en
fyrirsjáanlegt úrkomusvæði, sem kom úr
vestri, nánast trosnaði upp um leið og það
nálgaðist landið og í stað dumbungs skein
sólin! Þetta árið lítur út fyrir afar hægan
vind, sunnan- eða suðvestanstæðan.
Líklegast verður skýjað en spurning með
úrkomuna. sennilega verður ekki alveg
þurrt allan daginn og fram á nóttina en
úrkoman verður í það minnsta af minna
taginu í reykjavík. Það er heldur ekki loku
fyrir það skotið að sólin nái að skína annað
veifið. Hitinn þetta 12 til 13 stig og 9 til 10
um kvöldið. Lognið eða hægi andvarinn
verður þó aðalsmerkið að þessu sinni.
annars staðar á landinu er gert ráð fyrir því
að það létti til fyrir norðan og austan á
laugardag og þar sjái menn aftur
sumarhlýindi sam vari fram á sunnudag hið
minnsta. Þá verður komin, ef spár
ganga eftir, sa-átt af hægari
taginu og má þá gera ráð fyrir
einhverri rigningu sunnanlands
og vestan og enn almennt séð
hlýnandi á landinu. gott fyrir
berin, ekki satt?
Einar Sveinbjörnsson
veðurfræðingur