Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Síða 4
föstudagur 17. ágúst 20074 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Besta leiðin til að láta stjórnmálamenn axla ábyrgð er að ósáttir kjósendur láti í sér heyra. Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðingur segir sjaldgæft að embættismenn segi af sér vegna afglapa í starfi. Sjaldgæft er að stjórnmálamenn eða embættismenn axli ábyrgð á þeim mistökum sem þeir gera eða röngum ákvörðunum sem þeir taka. STJÓRNMÁLA- MENNIRNIR AXLA SJALDAN ÁBYRGÐ „Sjaldgæft er að stjórnmálamenn segi af sér vegna mistaka í starfi“, seg- ir Gunnar Helgi Kristinsson, prófess- or í stjórnmálafræði við Háskóla Ís- lands. Hann bendir á að það sé afar fátítt að embættis- og stjórnmála- menn á Íslandi axli ábyrgð gjörða sinna og að ekkert bendi til þess að þetta fari að breytast. Afsögn í kjölfar óánægju kjósenda „Óánægja og kurr í kjósendum. Það er það sem hreyfir við pólitíkus- unum,“ segir Gunnar Helgi og bendir á að stjórnmálamenn séu viðkvæmir fyrir almenningsálitinu og fjölmiðla- umfjöllun. Hann tekur dæmi af Guð- mundi Árna Stefánssyni, fyrrverandi ráðherra. „Hann sagði af sér og sagði ástæð- una þá að hann vildi gefa stjórninni starfsfrið. Staðreyndin er sú að hann sætti mikilli gagnrýni sem bæjarstjóri í Hafnarfirði og henni linnti ekki þegar hann varð ráð- herra.“ Gunnar Helgi rifj- ar upp að Guðmundur Árni hafi verið sakað- ur um að fara illa með almannafé þegar hann gerði stóran starfsloka- samning við starfsmann ráðuneytisins sem var honum tengdur. „Þetta þótti mjög óeðlilegt. Vin- sældamælingar sem gerðar voru í kjölfar- ið voru þær lægstu sem ég hef séð. Fjölmiðlar fjölluðu mikið um málið og fólk var ósátt við störf hans.“ Gunnar Helgi nefnir einnig Albert Guðmundsson sem sagði af sér árið 1987 vegna skattabrota sem hann átti að hafa framið á meðan hann var fjármálaráðherra. „Þetta var upphaf- ið að miklu uppþoti.“ „Þátttaka Þórólfs Árnasonar í samráði Olíufélaganna varð til þess að hann missti trúnað umbjóðenda sinna og sagði af sér sem borgar- stjóri,“ segir Gunnar Helgi. Hann nefnir einnig að Halldór Ásgríms- son hafi sagt af sér en það hafi ver- ið vegna slaks árangurs Framsóknar- flokksins. Ekki hlustað á gagnrýni Algengt er að ráðherrar fari út fyr- ir fjárheimildir stofnana sinna. Rík- isendurskoðun sendir árlega frá sér gagnrýni á fyrirkomulag fjárlaga. „En það hefur aldrei leitt til neins,“ bendir Gunnar Helgi á. „Ég held að ef fjárlögin væru betur undirbúin og raunsærri væri auðveldara að draga forstöðumenn til ábyrgðar.“ Hann segir að til þess þurfi pólitískan vilja. Gunnar Helgi segir að ábyrgð embættismanna og ráðherra sé tvenns konar, lagaleg og pólit- ísk. Ábyrgð embættismanna er fyrst og fremst lagaleg. Þeir þurfa að svara fyrir það ef þeir brjóta landslög. Hins vegar geta þeir misst traust yf- irboðara sinna ef þeir standa sig illa í starfi. Hvað stjórnmálamenn varðar er ábyrgð þeirra bæði pólitísk og laga- leg. „Vandinn við pólitísku ábyrgðina er að hún er aðeins virk á meðan við- komandi ráðherra situr í embætti.“ Árni Johnsen er dæmi um stjórn- málamann sem sætt hefur laga- legri ábyrgð. Hann braut lög og var dæmdur fyrir. Eftir fangelsisvistina bauð hann sig aftur fram og situr á þingi á ný. Sérkennileg viðbrögð samgönguráðherra Á þriðjudag birti Ríkisendurskoð- un svarta skýrslu um nýja Gríms- eyjarferju. Eftir ríkisstjórnarfund sama dag sagði Kristján Möller sam- gönguráðherra sökina liggja hjá Ein- ari Hermannssyni skipaverkfræð- ingi sem var meðal þeirra sem veittu samgönguráðuneyti og Vegagerðinni ráðgjöf um ferjuna. Í DV á miðvikudag sagði Einar að sér fyndist undarlegt að samgöngu- ráðherra gerði hann að blóraböggli fyrir allt sem miður hefði farið án þess að hann gæti borið hönd fyr- ir höfuð sér. Auk þess benti Einar á að ekki hafi verið farið eftir þeirri ráðgjöf sem hann veitti. „Það er sér- kennilegt hjá ráðherra að gera þetta svona persónubundið gagnvart mér,“ sagði hann. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur lagt til að úttekt verði gerð á samgöngu- ráðuneytinu sjálfu í þessu sambandi, við dræmar undirtektir stjórnarliða. ErlA HlynSdóttir blaðamaður skrifar: erla@dv.is Guðmundur Árni Stefánsson „staðreyndin er sú að hann sætti mikilli gagnrýni sem bæjarstjóri í Hafnarfirði og henni linnti ekki þegar hann varð ráðherra,“ segir gunnar Helgi um guðmund árna sem sagði af sér. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra þegar allar ákvarðanir voru teknar. Hann neitar að ræða málin nú. Gunnar Helgi Kristinsson „Óánægja og kurr í kjósendum. Það er það sem hreyfir við pólitíkusunum,“ segir gunnar Helgi og bendir á að stjórnmálamenn séu viðkvæmir fyrir almenningsálitinu og fjölmiðlaum- fjöllun. Kristján Möller í Grímseyjarferju samgönguráðherra hefur borið blak af forvera sínum í starfi þrátt fyrir harða gagnrýni á allt sem viðkemur nýju grímseyjarferjunni. 15 ára síbrotaunglingur dæmdur til fangelsisvistar fyrir lífshættulega árás: Barði leigubílstjóra með klaufhamri Stefán Blackburn, 15 ára, var dæmdur í tveggja og hálfs árs fang- elsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Stefán viðurkenndi fyrir dómi að hafa ráðist á leigubílstjóra aðfaranótt 27. apríl og slegið hann tvisvar í höf- uðið með klaufhamri. Dómur komst að þeirri niðurstöðu að árásin hafi verið stórhættuleg og hefði hæglega getað leitt til dauða fórnarlambsins. Við árásina hlaut leigubílstjórinn skurð á hnakka og sár á höfði, auk undirliggjandi brots á höfuðkúpu og heilablæðinga. Fórnarlambið sagði Stefán hafa krafið sig um peninga en ekki látið peninga af hendi. Þessi í stað fékk hann hamarshögg í höfuðið. Stefán neitaði þessum sakargiftun en var framburður hans talinn ótrúverð- ugur. Áður hafði Stefán sagt við yfir- heyrslu hjá lögreglu að hann hefði fyrr um kvöldið talað um að ræna „allt og alla“. Hann hafi ver- ið ör og æstur eft- ir að hafa tekið inn tíu töflur af rivotril sem er róandi floga- veikilyf. Stefán bar við að hann þjáðist af minnisleysi og að hann hafi verið ruglaður af töfluáti en lögreglumaður sagði hann hafa virst vel á sig kominn við yfirheyrsluna. Við ákvörðun refsingar var litið til ungs aldurs Stefáns og verður vist hans í gæsluvarðhaldi dregin frá, alls 111 dagar. Stefán hef- ur þegar hlotið þrjá dóma. Tveir þeirra eru skilorðsbundn- ir en einn þeirra er 20 mánaða fangels- isdómur frá í síðasta mánuði. Í síðasta helgar- blaði DV var fjallað ítarlega um málefni ungra síbrotamanna. Þar var farið yfir þau afbrot sem Stefán hefur verið dæmdur fyrir. Þeirra á með- al eru líkamsárásir á blaðbera, tilraun til að stela hrað- banka og rán í matvöruverslun þar sem hann hótaði að skera starfs- mann á háls. Aðeins hluti fær álagsgreiðslur Á fundi leikskólaráðs í fyrra- dag var samþykkt að álags- greiðslur til leikskólakennara yrðu teknar upp á þeim leikskól- um sem skilað hafa rekstraraf- gangi. Dag B. Eggertsson, borg- arfulltrúa Samfylkingarinnar, grunar að aðeins hluti leikskóla- kennara fái álagsgreiðslur. Sam- fylkingin óskaði eftir því í borgar- ráði í gær að ráðið fengi yfirlit um stöðu mála og hvort aðrir starfs- menn leikskóla en leikskóla- kennarar fengju álagsgreiðsl- ur. Einnig var óskað eftir því að gripið yrði til sambærilegra að- gerða til að bæta kjör kennara og starfsfólks í grunnskólum og á frístundaheimilum. Aðstoðarmaðurinn verður formaður Anna Kristín Ólafsdóttir, aðstoðarkona umhverfisráð- herra, er formaður stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs til næstu fjögurra ára. Gert er ráð fyrir að þjóðgarðurinn verði formlega stofnaður snemma á næsta ári. Vatnajökulsþjóðgarður mun ná yfir 15.000 ferkílómetra eða sem samsvarar 15 prósentum af yfirborði Íslands og verða stærsti þjóðgarður í Evrópu. Stjórnin hefur umsjón með náttúruvernd í þjóðgarðinum. Meðal verkefna hennar er að gera fjárhagsáætlun um rekst- ur hans. Reykur úr potti Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað út að Langholtsvegi 4 klukk- an 8.30 í gærmorgun. Mikill reykur stóð út um glugga hússins og lék grunur á að eldur væri laus í hús- inu. Að sögn varðstjóra hjá slökkvi- liðinu í Reykjavík var þó ekki um neinn eld að ræða. Húsráðendur höfðu gleymt potti á eldavélinni en reykskynjari fór í gang. Húsráðendur voru ekki heima og ekki vitað hvert þeir brugðu sér en reykskemmdir eru ekki taldar miklar. Rannsókn heldur áfram Lögreglan á höfuðborgar- svæðinu hefur hafist handa við rannsókn á starfsemi fyr- irtækisins Formaco eftir að lögreglan á Akranesi óskaði liðsinnis við rannsókn- ina. Fyrirtækið var kært til sýslumanns á Akranesi vegna meintrar ólögmætrar umsýslu með erlenda starfsmenn og svik á opinberum gjöldum. Lögreglan á Akranesi hefur yf- irheyrt ýmsa vegna málsins og nú tekur höfuðborgarlögreglan við. Vinnumálastofnun hefur unnið með fyrirtækinu í að koma málefnum þess í rétt horf og vonast er til að lögreglurann- sókn skýri út hvort lögbrot hafi verið framin. Helgin 10.–12. ágúst 2007 dagblaðið vísir 120. tbl. – 97. árg. – verð kr. 365 F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð allir eiga sinn paul tapað milljörðum hvaða lið vinnur ensku deildina, hver falla? byggðastofnun hE LG AR BL AÐ trúir að allt gangi upp faðir afbrotaunglings: Glæpir ungmenna verða algengari og þeir sem komast í kast við lögin verða sífellt yngri. Yfirvöld ráða ekki við vandann. Úrræðin eru fá, þeim ekki beitt nógu vel og of lítill peningur lagður í að takast á við vandann. Yngsti fanginn á Litla- hrauni fimmtán ára. glæpaskóli sonurinn í eigin víti paul mccartney elÍza Fæddist með áhuga á jóga kristbJÖrg kristmundsdÓttir Þau hurFu aF alÞingi í vor tuttugu og fjögur hurfu af alþingi í vor. sum vinna nú að nýjum verk- efnum. Önnur leita að nýrri vinnu. Þau hafa þó nægan tíma til að ákveða sig enda á biðlaunum í minnst fjóra mánuði eftir að þingsetu lauk. CESC FABREGAS Kom til Arsenal ungur að árum frá Barcelona og hefur heldur betur slegið í gegn í ensku deildinni með hárnákvæmum sendingum og hraða. Ótrúlega öruggur á boltanum og naskur að búa til marktækifæri fyrir samherja sína. Hann verður að eiga frábært tímabil ef Arsenal á að eiga möguleika í efstu liðin. GABRIEL AGBONLAHOR Strákur sem kom úr unglingaliði Aston Villa og sló rækilega í gegn á síðustu leiktíð. Agbonlahor er mjög hraður leikmaður sem skapar mikla hættu í hröðum upphlaupum. Hann skorar reglulega og er duglegur að leggja upp færi fyrir samherja sína. STJARNAN SPÁ DV Aston Villa er miðjulið, verður um miðja deild og á litla möguleika á Evrópusæti á þessari leiktíð að mati DV Sport. Leikmannahópur liðsins er lítill og liðið má illa við meiðslum . Martin O‘Neill er þó ansi naskur knattspyrnustjóri og gæti töfrað eitthvað fram úr erminni. 12 ARSENAL Arsenal spilar einn skemmtilegasta fótbolta Evrópu en han n er því miður ekki nógu árangursríkur. Liðið er uppfullt af ungu m og efnilegum fótboltamönnum sem virðast hafa gaman af því sem þeir eru að gera. Liðið missti sinn besta mann og fyrirli ða þegar Thierry Henry fór en Arsene Wenger gæti átt einhver n ás upp í erminni, sanniði til. SPÁ DV Arsenal missti leiðtogann Thierry Henry og hefur ekki fyllt h ans skarð. Því má þó ekki gleyma að Robin van Persie átti við sl æm meiðsli að stríða á síðustu leiktíð og ef til vill er hans tími kominn. KOMNIR: Eduardo da Silva, Lukasz Fabianski, Havard Nordtveit. FARNIR: Thierry Henry, Jeremie Aliadiere, Fabrice Muamba, Arturo Lupoli, Mart Poom. HEIMAVÖLLURINN Emirates Stadium var tekinn í notkun fyrir síðasta tímabil og er rómaður fyrir fallega hönnum og frábært útsýni hvaðan sem fólk situr. Tekur um 60 þúsund manns í sæti og lýkt og á Higbury er undantekningar- laust uppselt. 5 Eduardo da Silva er fæddur 25 febrúar 1983 í Rio de Janeiro í Brasilíu. Hann er engu að síður Króatískur ríkisborgari og spilar með landsliði Króatíu. Hann flutti 15 ára til Króatíu og lék með Dinamo Zagreb. Er óskrifað blað en Wenger er þekktur fyrir að ná því besta úr mannskapnum sem hann hefur hverju sinni. FYLGIST MEÐ STJARNAN STJÓRINN ARSENE WENGER: Franski prófessor- inn gæti þurft að taka á öllu sínu til að halda Arsenal í toppbaráttunni. Hefur haft þolinmæði stjórnar og stuðningsmanna til að þróa lið sitt áfram en sú þolinmæði gæti verið á þrotum. Arsenal vill að minsta kosti kröfu um einn titil í vetur. ASTON VILLA Aston Villa hefur látið lítið fyrir sér fara á leikmannamarkað inum í sumar. Töluvert að uppöldum Villa-leikmönnum hafa verið að kom a upp í aðalliðið á síðustu árum með ágætum árangri. Ef leikmenn eins og Martin Laursen og Wilfred Bouma sleppa við meiðsli í vetu r ætti Aston Villa að ná meiri stöðugleika í sinn leik. HEIMAVÖLLURINN Aston Villa leikur heimaleiki sína á hinum víðfræga Villa Park í Birmingham. Völlurinn var byggður árið 1897 og tekur 42,573 áhorfendur. Þar fer venjulega fram annar undan- úrslitaleikurinn í ensku bikar- keppninni ár hvert. FYLGIST MEÐSTJ ÓRINN MARTIN O’NEILL: O’Neill náði góðum árangri með Leicester. Hann færði sig um set árið 2000 og tók við skoska liðinu Celtic. O’Neill ákvað að hætta þjálfun liðsins árið 2005 til að sinna veikri eiginkonu sinni. Ári síðar snéri hann aftur í boltann og tók við Aston Villa. O’Neill er mjög ástríðufullur og klókur stjóri. Nigel Reo-Coker. Talið er að Aston Villa hafi gert góð kaup í Nigel Reo- Coker sem kom til liðsins frá West Ham, þar sem hann hafði meðal annars gegnt stöðu fyrirliða. Hann er 23 ára og hefur verið orðaður við bæði Arsenal og Manchester United í gegnum tíðina. Gengi Aston Villa veltur að miklu leiti á því hvort Reo- Coker nær sér á strik. OLIVIER KAPO Keyptur frá Juventus fyrir þetta tímabil fyrir 385 milljónir króna. Kapo var í gekk í raðir Juventus árið 2004 og náði sér aldrei á strik. Hann var lánaður til Monaco ári síðar og svo til Levante í fyrra þar sem hann þótti spila mjög vel. Fljótur og teknískur leikmaður. SPÁ DV Blackburn er með gott ellefu manna byrjunarlið en skortir breidd í leikmannahóp sinn. Þetta kom í ljós á síðustu leiktí ð en þrátt fyrir það hefur Blackburn látið lítið fyrir sér fara á 9 BIRMINGHAM Birmingham er nýliði í ensku úrvalsdeildinni í vetur og ljóst er að erfitt tímabil bíður liðsins. Liðið endaði í öðru sæti í næs t efstu deild Englands á síðustu leiktíð. Birmingham hefur ke ypt marga leikmenn fyrir þetta tímabil, marga hverja frá erlend um liðum og því er enn óljóst hvernig þeir plumma sig á Engla ndi. SPÁ DV Erfitt fyrir nýliða að festa sig í sessi í deild þeirra bestu. Birmingham er ekki líklegt til afreka á þessari leiktíð að mat i DV Sport og blaðið spáir þeim falli. Enska úrvalsdeildin er firna sterk og Birmingham er því miður skrefi á eftir flestum öðrum lið um. HEIMAVÖLLURINN St. Andrews völlurinn í Birmingham var byggður árið 1905 og tekur 30,009 áhorfendur, alla í sæti. 19 Cameron Jerome er tvítugur piltur sem sló í gegn hjá Cardiff City. Þar skoraði hann 20 mörk tímabilið 2005-2006 áður en Birmingham festi kaup á kauða í fyrra fyrir 450 milljónir króna. Efnilegur strákur sem gaman verður að fylgjast með í vetur. FYLGIST MEÐ STJARNAN STJÓRINN STEVE BRUCE: Bruce lék með Manchester United á árum áður við góðan orðstír. Bruce tók við Birmingham árið 2001 og hefur tvisvar farið með liðið upp í úrvalsdeildina á þeim sex árum sem hann hefur verið við stjórnvölinn og einu sinni fallið. Ólíklegt er að stjórn liðsins sætti sig við annað fall með Bruce í brúnni. BLACKBURN Blackburn mætir með lítið sem ekkert breytt lið til leiks á þ essari leiktíð. Blackburn endaði í tíunda sæti á síðustu leiktíð eftir að hafa gert sig líklegt til að ná Evrópusæti. Blackburn þykir ekki spila skem mtilegasta bolta í heimi og eru leikmenn liðsins harðir í horn að taka. KOMNIR: Nigel Reo-Coker, Marlon Harewood, Eric Lichaj. JOHN TERRY Einn áreiðanlegasti miðvörðurinn í boltanum í dag. Býr yfir miklum leikskilningi og gefur sig allan fram í leikinn. Stjórnar vörn Chelsea eins og hershöfðingi og er auk þess fyrirliði enska landsliðsins. Það kom í ljós á síðustu leiktíð að þegar Terry er meiddur er stórt skarð í vörn Chelsea. STEVEN HOWARD Howard hefur verið lengi að og ávallt spilað í neðri deildum á Englandi. Hann var keyptur til Derby í fyrra sumar og skoraði sextán mörk á síðustu leiktíð, þar af tvö mörk í undanúrslitaleik umspilsins gegn Southamp- ton. Howard er mikill Newcastle aðdáandi og fagnar venjulega líkt og Alan Shearer STJARNAN SPÁ DV DV Sport telur að neðasta sætið sé frátekið og í eigu Derby County. Góður líkur eru á nýju meti, hvað slakann árangur varðar. 20 CHELSEA Stund sannleikans. Ljóst er að Roman Abramovich sættir si g ekki við neitt annað en sigur í ensku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð. Orðrómur var uppi um að Jose Mourinho yrði rekinn og nú kemur í ljós hvort stjórnin gerði rétt með að halda honum í starfi. SPÁ DV Hinir djúpu vasar Abramovich virðast vera farnir að grynnk a. Aðeins einn dýr leikmaður kom til félagsins í vetur, þrátt fyr ir að hafa misst af meistaratitlinum á síðustu leiktíð. Ef að leikme nn sem náðu sér ekki á strik á síðustu leiktíð finna sitt gamla fo rm í vetur, verður liðið illviðráðanlegt. KOMNIR: Florent Malouda, Tal Ben-Haim, Claudio Pizarro, Steven Sidwell. HEIMAVÖLLURINN Chelsea leikur heimaleiki sína á Stamford Bridge sem staðsettur er í Fulham-hverfinu í London. Völlurinn tekur 42,055 áhorfendur og var byggður árið 1876. 2 Andriy Shevchenko var með ólíkindum slakur á síðustu leiktíð og er langt frá því að borga upp það fé sem Chelsea borgaði AC Milan fyrir hann. Það verður fróðlegt að sjá hvort hann nær að snúa við blaðinu á sínu öðru tímabili. Ef hann nær sér á strik verður Shevchenko illviðráðanlegur. FYLGIST MEÐ STJARNAN STJÓRINN JOSE MOURINHO: Enginn efast um hæfileika Mourinho sem knattspyrnu- stjóra. Hann hefur unnið allt sem hægt er að vinna með félagsliði og hefur einstaka hæfileika á að beina athyglinni frá sínum leikmönnum og létta þar með ákveðinni pressu af þeim. Mikil pressa er á Mourinho á þessari leiktíð því Abramovich vill titla. FARNIR: Richard Jackson, Steven Cann, Paul Boertien, Lee Camp, Lewin Nyatanga, Ryan Smith, Morten Bisgaard, Lee Grant, Paul Peschisolido, Seth Johnson. DERBY Derby á gríðarlega erfitt tímabil fyrir höndum og flestir spá liðinu rakleitt niður í næst efstu deild á nýjan leik. Derby kom öllu m á óvart með því að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Breytingarnar á liðinu eru miklar. HEIMAVÖLLURINN Pride Park var byggður 1996 og tekur 33,597 áhorfendur. Fyrr í sumar voru kynntar áætlanir um að stækka völlinn fyrir tímabilið 2008- 2009. Eftir það mun Pride Park taka 44 þúsund áhorfendur. FYLGIST MEÐSTJÓRINNBILLY DAVIES: Skotinn Billy Davies tók við Derby County fyrir ári síðan og árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Eftir að hafa komið Derby upp í úr- valsdeildina voru sögusagnir um að Davies vildi yfirgefa félagið. Hann sló hins vegar á þær sögusagnir með því að framlengja samning sinn við Derby um eitt ár. Robert Earnshaw er fæddur 6. apríl 1981 í Mufulira í Zambíu. Hann er eini leikmaðurinn sem skorað hefur þrennu í úrvalsdeildinni, 1. deildinni, 2. deildinni, 3. deildinni, ensku bikarkeppninni, enska deildarbikarnum og í landsleik. MIKEL ARTETA Átti frábært tímabil síðasta vetur. Þá lék hann yfirleitt í stöðu kantmanns og leysti þá stöðu einstaklega vel af hólmi. Lesendur skysports. com kusu Arteta miðju- mann ársins, meðal annars fram yfir Cristiano Ronaldo. SPÁ DV Lawrie Sanchez er í óðaönn að byggja upp sitt eigið Fulham lið. Þrátt fyrir ótrúlegan árangur í undankeppni EM, þá eru þeir norður-írsku leikmenn sem Sanchez hefur verið að fá til sín ekki til þess fallnir að lyfta félaginu upp deildina. Fulham verður í vandræðum í vetur og sleppa naumlega við fall. 17 EVERTON Everton hefur náð að festa sig í sessi sem eitt af topp tíu lið um á Englandi undanfarin ár eftir frekar dapurt gengi á tíunda ár atug síðustu aldar. Everton endaði í sjötta sæti á síðustu leiktíð, e kki síst fyrir öflugan varnarleik. SPÁ DV Everton virðist alltaf koma á óvart. Með færan þjálfara og li ð sem gefst aldrei upp. Moyes er naskur á að finna leikmenn sem henta liðinu vel og nú er að sjá hvort kaup hans í sumar rey nist heillavænleg. Evrópusæti hjá Everton. KOMNIR: Leighton Baines, Steven Pienaar, Phil Jagielka. HEIMAVÖLLURINN Goodison Park er einn sá sögufrægasti í enska boltanum. Byggingum lauk árið 1892 og í dag tekur hann 40,569 áhorfendur, alla í sæti. Félagið er með áætlanir um að byggja nýjan völl og stuðningsmenn félagsins fá að kjósa um staðsetningu hans. 7 Victor Anichebe. 19 ára nígerískur sóknarmaður sem kom upp úr unglingaliði Everton. Hann er fljótur og kraftmikill leikmaður sem fæddist í Lagos, höfuðborg Nígeríu, 23. apríl 1988. Sparkspekingar á Englandi spá Anichebe bjartri framtíð. FYLGIST MEÐ STJARNAN STJÓRINN DAVID MOYES: Íslandsvinurinn David Moyes hefur staðið sig vel sem knattspyrnustjóri Everton og komið stöðugleika á gengi liðsins. Moyes er ekki vanur að leita út fyrir Bretlandseyjar eftir nýjum leikmönnum og þykir klókur í kaupum sínum. Moyes er talinn vera einn besti ungi knattspyrnustjór- inn í bransanum, en hann er 44 ára. FULHAM Miklar hræringar hafa verið í herbúðum Fulham í sumar. La wrie Sanchez tók við liðinu undir lok síðustu leiktíðar og ljóst er að hann ætlar sér að byggja liðið nánast upp frá grunni. Liðið hefur misst nokkra máttarstólpa úr liðinu frá síðustu leiktíð. FYLGIST KOMNIR: Andy Griffin, Lewis Price, Claude Davis, Andy Todd, Tyrone Mears, Robert Earnshaw. FARNIR: James Beattie, Gary Naysmith, Richard Wright, Alessandro Pistone. FARNIR: Ben Sahar, Michael Mancienne, Jimmy Smith, Khalid Boulahrouz, Yves Makaba-Makalamby, Nuno Morias. KOMNIR: Liam Ridgewell, Franck Queu- drue, Rafael Schmitz, Daniel De Ridder, Richard Kingson, Olivier Kapo, Garry O’Connor, Stuart Parnaby, Fabrice Muamba. FARNIR: Neil Kilkenny, DJ Campbell, Stephen Clemence, Bruno N’Gotty, Julian Gray. FARNIR: Liam Ridgewell, Jlloyd Samuel, Lee Hendrie, Steven Davis, Chris Sutton, Aaron Hughes, Gavin McCann, Robert Olejnik. Stefán Blackburn var í gær dæmdur í Héraðsdómi reykjavíkur stefán viðurkenndi fyrir dómi að hafa ráðist á leigubílstjóra og slegið hann tvisvar í höfuðið með klaufhamri. árásin var stórhættuleg og hefði getað leitt til dauða. 10. ÁGÚSt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.