Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Síða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Síða 45
DV Ferðalög föstudagur 17. ágúst 2007 45 U m s j ó n : B a l d u r G u ð m u n d s s o n . N e t f a n g : b a l d u r @ d v . i s á ferðinni Samferda.net Vefsíðan samferda.net er líklega ein besta og umhverfisvænsta hugmynd sem fram hefur komið á netinu til þessa. Vefsíðan er ætluð þeim sem vilja deila með sér bensínkostnaði með því að ferðast saman á einum bíl. á síðunni getur hver sem er óskað eftir fari frá einum stað til annars, eða boðið öðrum far með sér. Viðkomandi þarf einungis að segja hvert og hvenær hann vill fara og hvort hann óski eftir fari eða farþegum. Loks skilur auglýsandinn eftir nafn og símanúmer og getur þá átt von á símtali frá einhverjum þeim er síðuna skoðar. Heimasíðan er að þýskri fyrirmynd en það var kona að nafni anita Hubner sem kom með hugmyndina til Íslands en Birgir Þór Halldórsson setti íslenska útgáfu á laggirnar árið 2005. Þess ber að geta að síðan er öllum opin og auglýsingarnar ókeypis. Jakobína fór um verslunarmanna- helgina ásamt 12 vinum sínum og ættingjum í fjögurra daga göngu- ferð um hálendi Íslands, frá Sveins- tindi að Strút. Ekið var af stað í lang- ferðabíl frá Umferðarmiðstöðunni í Reykjavík til Víkur í Mýrdal, þar sem snæddur var hádegisverður. Að svo búnu var haldið í uppsveitir Vestur- Skaftafellssýslu þar sem leiðin lá að Hólaskjóli. Þar gerði hópurinn, sem var 20 manns, klárt fyrir gönguna, en ferðin var svokölluð trússferð sem þýðir að farangrinum var ekið á án- ingarstað. Hópnum var því næst ekið að Langasjó þar sem gangan hófst. Gengið á Sveinstind „Fyrsta daginn tókum við stefn- una beint á Sveinstind. Sú ganga tekur 1 til 2 tíma en leiðin er nokk- uð brött,“ segir Jakobína en ferðin var farin á vegum Útivistar, sem er áhugamannaferðafélag. „Við feng- um mjög gott og bjart veður fyrsta daginn. Á tindinum sáum við Heklu, Eyjafjallajökul, Mýrdalsjökul, Hofs- jökul, Vatnajökul; í rauninni megn- ið af hálendi landsins. Það var alveg stórkostlegt. Eftir að hafa stoppað nokkra stund á tindinum lögðum við af stað í átt að skálanum sem við gist- um í um nóttina,“ segir Jakobína en með í för var vinafólk hennar frá Sví- þjóð sem var í sinni fyrstu Íslands- ferð. „Í hópnum voru auk þess tvö ungmenni, piltur og stúlka sem eru 13 ára gömul. Þessi ganga er löng og ströng og þess vegna frábært að þau skyldu koma með okkur og klára gönguna.“ Frá Sveinstindi til Álftavötnum „Við vöknuðum í rigningarsudda á föstudeginum. Það var hins veg- ar ekki mjög hvasst þannig að við gátum vel haldið áætlun en þenn- an dag var stefnan tekin á Skælinga. Við gengum niður með Skaftá þar sem við skoðuðum ótrúlegar hraun- myndanir úr Lakagígum og fallegar mosabreiður,“ segir Jakobína. Hópur- inn var svo kominn í kofa um kvöld- matarleytið en þá voru margir orðnir blautir og þreyttir enda ausandi rign- ing. „Þegar við vöknuðum á laugar- daginn hafði stytt upp og sólin skein. Það var kærkomið því þá gafst okk- ur tækifæri á að þurrka skó, föt og búnað. Þegar allir voru orðnir þurr- ir var haldið af stað. Við gengum upp á Gjátind við Eldgjá. Fararstjórarnir sögðu okkur að það væri afskaplega fátítt að komast bæði á Sveinstind og Gjátind í björtu og góðu veðri. Seinna um daginn skoðuðum við Ófærufoss sem er sérstaklega fallegur. Áður fyrr lá náttúruleg steinbrú yfir ána við fossinn en hún hrundi árið 1993. Við héldum því næst áfram niður í Álfta- vötn sem var ansi langur spotti. og við vorum ekki komin í skála fyrr en klukkan 9 eða 10 um kvöldið,“ segir Jakobína. Þar þurftu þau að bera all- an farangurinn 100-200 metra niður brekku, að skálanum. Um morgun- inn þurfti svo að bera farangurinn upp brekkuna aftur svo hægt væri að sækja hann. Jakobína segir það hafa verið eitt það erfiðasta við ferðina. „Það voru allir orðnir þreyttir eftir langa göngu um daginn svo þetta var býsna mikil raun.“ Huldufólk við skála Á sunnudeginum var mjög bjart og hlýtt en töluvert rok. Hópurinn gekk meðfram Syðri-Ófæru, yfir heið- ar og niður að Hólmsárbotnum. Þar þurftu þau að vaða Hólmsá. „Vatnið náði okkur upp undir hné og var ekki nema um 6 gráðu heitt. Kuldinn stakk mann í fæturna en fólki fannst þetta misjafnlega óþægilegt, sumir hér um bil æptu af sársauka,“ segir Jakobína en fólk var fljótt að gleyma kuldan- um þegar það var komið upp á bakka hinum megin. Eftir að hafa gengið nokkurn spöl skelltu þau sér í heitan pott. „Við fórum í Strútslaug sem er náttúrugerður heitur pottur, líklega um 40 gráður. Það var æðislegt að láta þreytuna líða úr fótunum á með- an við slökuðum á í pottinum,“ segir Jakobína en frá Strútslaug er hálfur annar tími að skála. „Þegar við kom- um á áfangastað höfðu skálaverðir og einhver hópur fólks grillað fyrir okk- ur lambalæri. Við settumst svöng við matarborðið en á meðan við borðuð- um var eins og fólkið hefði gufað upp. Við gátum ekki einu sinni þakkað al- mennilega fyrir okkur því það voru allir farnir. Þetta hlýtur að hafa verið eins konar huldufólk,“ segir Jakob- ína létt í bragði. „Eftir matinn vökt- um við fram eftir kvöldi og sungum saman. Bróðir minn spilar á gítar og hann spilaði fyrir söng. Það var alveg frábært að enda ferðina með þessum hætti.“ Á mánudeginum var haldið til byggða. Jakobína segir margt hafa komið sér á óvart í þessari ferð. „Það sem kom mér mest á óvart var hve langar dagleiðirnar voru. Náttúrufeg- urðin var auk þess alveg einstök en við vorum víst mjög heppin með veð- ur. Þessi ferð var æðisleg í alla staði en vissulega var hún nokkuð erfið. Þetta er ekki eitthvað sem maður ákveður að gera með hálfum huga. Dagarnir eru langir en náttúran og upplifunin vegur það upp,“ segir Jakobína að lok- um. Jakobína Grétars- dóttir er fimmtug að aldri og vinnur sem geislaeðlisfræð- ingur í Svíþjóð þar sem hún hefur búið undanfarin 30 ár. Hún notar sumarfrí- in mikið til göngu- ferða og reynir í það minnsta að komast í tvær góðar göngu- ferðir á sumrin. Hér segir hún frá krefj- andi fjögurra daga gönguferð sem hún fór í á dögunum. Með Iceland express til Barcelona Iceland Express hefur flug til Barce- lona í vetur og hófst salan á hádegi í gær. fram kom í tilkynningu frá Express að þeir fyrstu sem bóka flug eiga þess kost að fljúga fram og til baka fyrir minna en 8 þúsund krónur. Barcelona verður fimmtándi áfanga- staðurinn sem Iceland Express flýgur til, en flogið verður tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum, á tímabilinu frá 9. nóvember til loka maí að undanskildu hléi frá miðjum desember fram til 1. febrúar. Hver er sjálfum sér næstur? Vísindavefnum berast margar óvenjulegar spurningar. Þeir svara þeim eftir bestu getu en hér eru dæmi um nokkrar ansi sérstakar: Hver er sinnar gæfu smiður? Er hægt að troða sér um tær? Er bragð að vatni? Er til hálf hola? Halda mýs að leðurblökur séu englar? Hvernig finnur maður draumaprins- essuna sína? Hver er hornasumma einhyrnings? og síðast en ekki síst; finnst sumu fólki hákarl góður í alvöru eða er það bara að þykjast? Jakobína á Gjátindi útsýnið af tindinum var stórbrotið eins og sjá má. og huldufólk Náttúrufegurð Við Strútsskálaallir glaðir í ferðalok. Síðdegisbað í Strútslaug Potturinn sem er af náttúrunnar hendi var um 40 gráðu heitur. Opið á virkum dögum 11-18 Laugardögum 11-16 Holtasmári 1 517 8500 www.tvolif.is Haustvörurnar komnar! Full búð af flottum vörum fyrir verðandi mæður og börn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.