Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Side 50

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Side 50
föstudagur 23. febrúar 200750 Helgarblað DV Rík hefð er fyrir áhrifum frá danska konungsveldinu í Stykk- ishólmi. Daði Heiðar Sigurþórs- son, framkvæmdastjóri Danskra daga, sem haldnir verða hátíðleg- ir í Hólminum um helgina, segir að með hátíðahöldunum sé meðal annars verið að rækta danska arf- leifð sem nær aftur til einokunar- verslunarinnar. „Það er stundum sagt að í Stykk- ishólmi sé töluð danska á sunnu- dögum og það er ekki alveg laust við að það sé rétt,“ segir Daði. Hann segir að á tímum einokunarinnar hafi verið umfangsmikil verslun í Stykkishólmi. Dönsku kaupmenn- irnir og fjölskyldur þeirra hafi tal- ist fína fólkið á þessum tíma. „Auð- vitað vildi fólk líkjast stjörnunum. Þessa vegna klæddi fólk sig upp og talaði dönsku á sunnudögum,“ seg- ir Daði. Í fjórtánda sinn „Þetta er í fjórtánda skiptið sem við höldum þessa hátíð hérna. Fyr- ir helgina leggja bæjarbúar venju- lega sitt af mörkum og skreyta hús og götur. Á föstudagskvöldið sam- einast fólk svo og syngur og spilar. Þá kemur reyndar sérstakur mats- maður sem ferðast uppáklæddur með pípuhatt um bæinn og gerir úttekt á skreytingunum í bænum. Hann veitir svo verðlaun fyrir bestu frammistöðuna,“ segir Daði. Fregnir hafa borist af því að hægt sé að hafa áhrif á störf mats- mannsins, til dæmis með smávægi- legri peningaaðstoð og einnig mun hann aldrei bregðast illa við því að vera boðið upp á ákavíti. „Öllum gestum hér í hólminum er velkomið að koma í hverfagrill til fólksins í bænum og skemmta sér,“ bætir Daði við. Danski bærinn Daði segir hinn eiginlega tilgang hátíðarinnar vera að styrkja ímynd bæjarfélagsins og ekki síður að fá brottflutta Hólmara til þess að kíkja í heimsókn og rækta frændgarð- inn. „Eins og á öllum öðrum há- tíðum minnumst við einhvers sem við stöndum fyrir, hvort sem það eru jól, páskar, 17. júní eða aðrar hátíðir.“ Þess vegna sé danska skír- skotunin eðlileg. Stykkishólmur hafi stundum verið kallaður danski bærinn við eyjarnar. „Við reynum að höfða sérstak- lega til fjölskyldna og yngri kyn- slóðarinnar. Hérna spila ungl- ingahljómsveitir á tónleikum og svo verðum við með leiktæki og skemmtanir fyrir börnin,“ segiri Daði. Á laugardeginum verður svo markaðstorg þar sem safnast munu saman galdrakonur, skransalar og danskir pylsusalar. „Það verður sannkölluð tívolístemning þarna.“ Bryggjuball og golfmót Á laugardagskvöldið verður svo haldið ball á bryggjunni. „Ballið fer fram á sjálfri bryggjunni. Það verð- ur brotið upp með flugeldasýningu og svo færist leikurinn i miðbæ- inn, þar sem dansað verður og spil- að fram á morgun,“ segir Daði. Það verður því úr einhverju að velja fyr- ir eldri kynslóðina. Daði segir að hápunktur há- tíðarinnar sé í raun þetta laugar- dagskvöld. „Fyrir þá allra hressustu verður síðan golfmót klukkan átta á sunnudagsmorgninum. Í kjölfarið verður að sjálfsögðu dönsk messa í gömlu kirkjunni, sem við erum ákaflega stolt af.“ Messað verður bæði á dönsku og íslensku. „Á sunnudagseftirmiðdaginn verða svo tónleikar með kvartettin- um Blaut í gegn. Svo getur fólk allt- af brugðið sér í siglingu um eyjarn- ar hér á Breiðafirði, enda fegurðin alveg einstök,“ segir Daði. Galdrakonur oG skransalar í Hólminum Stykkishólmur hefur stundum verið kallaður danski bærinn við eyjarnar, enda var þar miðstöð danskrar ein- okunarverslunar á árum áður. Daði Heiðar Sigurþórsson segir frá galdrakerlingum, grillveislum, ákavíti og heljarinnar bryggjuballi sem haldið verður á laugardagskvöldið í Hólminum. „Það er stundum sagt að í Stykkishólmi sé töl- uð danska á sunnudög- um og það er ekki alveg laust við að það sé rétt.“ Sigtryggur Ari jóHAnnSSon blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is Frá Stykkishólmi snæfellsnes og breiðafjörður eru rómuð fyrir náttúrufegurð. danskir dagar verða haldnir hátíðlegir í stykkishólmi um helgina. Múgur og margmenni fjöldi fólks sótti stykkishólm heim á dönskum dögum í fyrra. 50% alveg ágætis tilboð Nýir áskrifendur fá DV frítt í ágúst og borg a aðeins 2.995 kr. fyrir september og októb er. Gangtu frá áskrift með því að hringja í sím a 512 7080, senda póst á askrift@dv.is, senda sms skilaboðin „ja dv“ í 821 5521 eða með því að fara inn á www.dv.is afsláttur af áskrift!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.