Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Page 56

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2007, Page 56
föstudagur 17. ágúst 200756 Helgarblað DV TónlisT Hljómsveitin Monastereo verður heldur betur iðin við tónleikahald á Menningarnótt en hljómsveitin kemur til með að spila á þrennum tónleikum. „Við spilum í portinu hjá Gull- smiðju Ófeigs klukkan fjög- ur, svo er stelpa sem ég þekki, sem heitir Viktoría og býr í Moskvu, að opna listasýningu í Hinu húsinu svo við spilum líka þar klukkan fimm og svo endum við í Iðnó klukkan sex,“ segir Sigurður Atli Sigurðsson, gítarleikari og söngvari hljóm- sveitarinnar, en hann ásamt yngri bróður sínum Arnari Sigurðssyni stofnaði hljóm- sveitina fyrir ári. „Við erum fimm í hljómsveitinni. Fjór- ir strákar og ein stelpa en svo syngur kærastan mín reyndar með í nokkrum lögum,“ segir Sigurður en meðlimir Mona- stereo eru fyrir utan hann og Arnar bróður hans, þau Hlín Ólafsdóttir, Sævar Már Ósk- arsson og Hörður Freyr Harð- arson. Meðlimirnir notast við ýmis hljóðfæri við gerð tónlist- arinnar sem verður best lýst sem blöndu af indírokki og el- ektrópoppi. „Við spilum á gítar, bassa, trommur, bongótromm- ur, þverflautu, bouzouki, ukul- ele, midi-hljómborð og jap- anska flautu.“ Enn sem komið er hefur Monastereo ekki gefið út neina plötu en það er aldrei að vita hvenær ráðist verður í gerð fyrstu plötunnar. „Við ætl- um bara að vera dugleg við að spila á tónleikum áður en við förum í að gefa út einhverja plötu,“ segir Sigurður að lok- um en tónlistaráhugamönn- um er svo sannarlega bent á að láta þessa hljómsveit ekki framhjá sér fara á morgun. krista@dv.is Sjónvarpsþátt- urinn Year Zero trent reznor og félagar í Nine Inch Nails hyggjast nú gera plötuna Year Zero að sjónvarpsþætti. Þátturinn er sagður eiga að verða framtíðarþáttur sem eigi að fjalla um ákveðið tímabil þar sem mikið einræði ríkir í Bandaríkj- unum og hægrisinnaður stjórnmála- flokkur fer með völdin í landinu, en það endurspeglar þemað á lögum Year Zero-plötunnar. „Við erum nú þegar búin að finna okkur framleiðanda og ræðum nú við handritshöfunda,“ segir trent reznor sem einnig er sagður hafa gefið í skyn að hann hefði líka áhuga á að gera kvikmynd byggða á plötunni. Tónlistarakademía DV segir Hlustaðu á þessa! Empire fall - Elíza örlög og Viðlög - Hagkvæm skemmtun í núinu Hey Hey My My Yo Yo - Junior senior Crazy? Yes! dumb? No! - the Mint Chicks top Quality Bones and a little terrorist - Britta Person Mynd um aðdá- endur Morrisey Mynd sem byggð verður á samskiptum aðdáenda Morrisey við söngvarann mun brátt koma út. Myndin ber heitið Passions Just Like Mine og fjallar um breiðan hóp aðdáenda sem hafa fengið innblástur frá goðinu sínu Morrisey. sagan kemur til með að vera sögð með augum aðdáendanna sjálfra og fá áhorfendur að sjá frá fyrstu hendi hversu gríðarleg þráhyggja aðdáenda getur orðið. Einstakur Pearl Jam DVD-diskur tuttugasta og fimmta september verður gefinn út dVd-diskur með myndbrotum frá fimm af tónleikum hljómsveitarinnar Pearl Jam á Ítalíu í fyrra. Leikstjórinn danny Clinch lofar að á þessum mynddiski muni fólk sjá Pearl Jam í gjörsamlega nýju ljósi. „Þetta verður einstakur diskur og ólíkur öllu öðru. Það verða viðtöl við strákana á bak við tjöldin á tónleikunum, við fylgjumst með lífi þeirra á túrnum og svo verða auðvitað geðveikar upptökur frá tónleikunum.“ Hagkvæm skemmtun í núinu er hugmynd sem varð að hljómsveit. Meðlimirnir eru nú orðnir um hundrað talsins og þeim fer ört fjölgandi. Jón Bjarki Magnússon, einn af hugmyndasmiðum Hagkvæmrar skemmtunar í núinu, segir alla sem eru fylgjandi hugmyndinni verða meðlimi í sveitinni. Hagkvæm skemmtun í núinu er eftirtektarverð og upprenn- andi hljómsveit sem nýlega gaf út plötuna Örlög og viðlög en sú plata inniheldur tíu viðlög og er platan sjö og hálf mínúta á lengd. Jón Bjarki Magnússon er einn af hugmyndasmiðum Hagkvæmrar skemmtunar í núinu en segir hug- myndina hafa vaknað á taílenskri eyðieyju. „Þetta er í rauninni hljómsveit sem byrjaði sem hug- mynd. Allir þeir sem töluðu um hugmyndina einhvern tímann og eru fylgjandi hugmyndafræðinni á bak við hagkvæma skemmtun í núinu eru meðlimir, þannig að ef þú finnur þig í hugmyndinni ertu sjálfkrafa orðinn meðlimur. Þetta snýst um það að fólk finni núið og gleðjist og skapi eitthvað áhugavert og skemmtilegt í núinu en það má ekki vera of mikið sem þú leggur á þig því þá er þetta kannski orðið of skemmtilegt og of mikil skemmtun getur bara haft niðurtúr í för með sér sem er þar af leiðandi ekki orð- ið mjög hagkvæmt,“ segir Jón Bjarki og bætir því jafnframt við að mjög mikilvægt sé að meðlimir leggi alls ekki of mikið á sig og að allt gerist á staðnum. „Við vorum til dæmis al- veg búnir að hugsa um einhverjar þrjár aðrar plötur áður en við tók- um upp Örlog og viðlög en þær plötur voru bara í einhverjum allt öðrum núum sem liðu bara hjá því við vorum ekki með neitt stúdíó til að taka þær upp þegar við feng- um hugmyndina að þeim. Svo vor- um við bara allt í einu komnir með stúdíó, við vorum í núinu og það var hagkvæm skemmtun í gangi svo þessi plata varð til.“ Unnið að þriðju útgáfu Á Örlögum og viðlögum má finna lög á borð við Hagkvæmt diskó, Hagkvæmt reggae og Hag- kvæma heimstónlist. „Það er bara svona viðlagaþema á þessum diski en okkur fannst hins vegar ekki nógu hagkvæmt að hún væri bara sjö og hálf mínúta á lengd á með- an það er pláss fyrir miklu meira á geisladisknum. Við tókum þess vegna öll lögin upp átta sinnum til að nýta plássið og þar af leiðandi er fólk eiginlega að kaupa átta plöt- ur í einni sem er náttúrulega mjög hagkvæmt. Við erum reyndar núna að endurútgefa plötuna. Fyrstu út- gáfu gáfum við í útflutningspartíi sem við fórum í sama kvöld og plat- an var tekin upp,“ segir Jón Bjarki sem bætir því við að hún hafi ver- ið kláruð á seglskútu. „Við tókum okkur klukkutíma pásu frá hljóð- verinu og skelltum okkur á segl- skútu þar sem við sömdum síðasta lagið á plötunni sem er Hagkvæmt sing along. Aðra útgáfu gáfum við svo um verslunarmannahelgina þegar fólk var að kaupa sér einnota tjöld og fannst okkur þá sniðugt að gefa einnota geisladiska með tjöld- unum. Á annarri útgáfu voru lögin reyndar bara tekin upp einu sinni því við komumst að því að það væri náttúrulega óhagkvæmt fyrir okkur að eyða of miklum tíma fyr- ir framan tölvuna. Nú erum við svo að vinna í þriðju útgáfu sem verð- ur seld í Tólf tónum og er því meiri vinna lögð í þá útgáfu. Það er til dæmis listamaður að sauma saman umslagið og þetta mun líta svolítið út eins og öskupoki með geisladisk og textabútum með hugmynda- fræði Hagkvæmrar skemmtunar í núinu,“ segir Jón Bjarki. Ekki spurning um fjárhagslega hagkvæmni Hljómsveitarmeðlimum Hag- kvæmrar skemmtunar í núinu fer ört fjölgandi en áður en platan var tekin upp voru meðlimirnir fjöru- tíu og þrír en nú eru þeir hins vegar orðnir hátt í hundrað. „Það er öllum sem finna sig í hugmyndinni frjálst að hóa í vini sína og gefa út plötu. Það er engin skylda að það séu við- lög, það var bara þemað á fyrstu plötunni, en fólk má útfæra sína hugmynd eins og það vill. Við erum ekki með neinn einkarétt á hug- myndinni en við yrðum örugglega fúlir úti í horni ef einhver myndi bara misskilja hugmyndafræðina en það eru samt engar reglur á bak við Hagkvæma skemmtun í núinu. Það væri náttúrulega alveg ógeðs- lega gaman ef þetta yrði að svona hljómsveit sem gæfi út flestar plötur af öllum hljómsveitum og það væri bara gefin út ein plata í hverri viku jafnvel,“ segir Jón en bætir því jafn- framt við að það sé engin spurning um peningalega hagkvæmni held- ur sé þetta frekar spurning um gleði og skemmtun enda verður platan seld fyrir einungis fimm hundr- uð krónur. „Hljómsveitin er orðin mjög alþjóðleg í dag. Johnny vinur minn frá Englandi söng til dæmis lagið Hagkvæm heimstónlist á ís- lensku. Svo eru meðlimir frá Ísra- el, Svíþjóð, Kanada og svo má lengi telja. Við vonum bara að sem flest- ir finni sig í Hagkvæmri skemmtun í núinu,“ segir Jón Bjarki að lokum en nánar má lesa sér til um hug- myndafræðina á myspace-síðunni myspace.com/practicalfun. krista@dv.is Hljómsveitin Monastereo spilar hressandi blöndu af indírokki og elektrópoppi og spilar á þrennum tónleikum í miðbænum á morgun: Monastereo fer hamförum á Menningarnótt HAGKVÆM SKEMMTUN Í NÚINU Jón Bjarki og Árni Hjörvar Eru tveir af hundrað meðlimum Hagkvæmrar skemmtunar í núinu. DV-mynd Ásgeir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.