Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Qupperneq 77

Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Qupperneq 77
un: Fáir listamenn hafa lagt sig jafnmikið fram um að gleðja áheyrendur sína og geðj- ast þeim. Saga Beniamino Giglis er saga sigurvegara. En jafnframt er hún saga um dýrar fórnir. Ekki fæst allt keypt við fé, og auðfundið er, að Gigli hefur orðið að gjalda frægð 'sína og vinsældir dýru verði. I 41 ár er hann á stöð- ugum ferðalögum land úr landi heimsálfanna á milli. Hann er sjaldnast á heimili sínu. Hann þráir heim til fæðingarbæjar síns, Recanati, cn aðdáendur hans í öllum löndum unna hon- um ekki hvíldar. — Vorið I9SS heldur Gigli kveðjutónleika víða um lönd, þá 65 ára gam- all. Síðustu tónleikana hélt hann í Washing- ton í Bandaríkjunum 25. maí 1955. Eftir það söng hann aldrei opinberlega. Nú átti að njóta hvíldar eftir langa og góða starfsemi, og Gigli flutti heim á sveitasetur sitt í ná- grenni Recanati. Hálfu þriðja ári síðar and- aðist hann, 67 ára að aldri. — Það var skammvinn ánægja eftir langt starf. í bók sinni rekur Gigli fyrst Ijúfsárar minn- ingar æskudaganna; þá erfiði og andstreymi námsáranna, erfiða göngu þrep af þrepi til við- urkenningar sem Iiðtækur söngvari í því landi, Italíu; og svo loks stiklar hann á stóru, efrir að heimsfrægðin hefur fallið honum í skaut. — Frásögn hans er látlaus og þægileg, fróð- lcg og yfirleitt skemmtileg. Hún er krydduð atvikum, grátlegum eða broslegum eftir á- stæðum. Þarna fær maður t. d. að sjá, að það cr víðar en á Islandi, að söngvarar eru álitnir heldur vafasamir „pappírar" í hjúskaparmál- um! — Þessi bók verður efalaust ekki talin til listaverka. En hún er eigi að síður hollur lestur fyrir þá, sem eiga takmark að stefna að í lífinu, girnileg fyrir hina, sem vilja skyggn- ast að tjaldabaki, og góð skemmtun fyrir alla. Hitt er svo annað mál, að þýðing og próf- arkalestur er dálítið sí og so! — Snertur af sérvizku er áberandi í þýðingunni. Heiti eins ('g hárödd karla (tenór — bls. 40), aðalhá- bassasöngvari (aðal- eða fremsti baritonsöngv- ari — bls. 81) og kvenhárödd (sópran eða sópransöngkona — bls. 97) eru ekki annað ottalega tilgerðarlegar tilraunir til þess að ís- lenzka alþjóðleg orð. Að kalla það samsöng, þegar Gigli heldur söngskemmtun (tónleika cða konsert), er náttúrlega alveg út !' hött. Einn söngvari heldur ekki samsöng. — Það kann að vera rétt, að Róm sé „Róms“ í eign- dagskrá arfalli. En ljótt er það. Og hversvegna þá ekki til Rómsborgar fyrir Rómaborgar, eins og stendur þó á bls. 45? — Olíkt fallegra þykir mér að sjá ritað „gagnrýnendum" og „áheyr- endum“ í stað „gagnrýnöndum“ og „áheyr- öndum“, eins og Jónas læknir Rafnar gerir í þýðingu sinni. — Sumt virðist nokkuð fljót- færnislega þýtt. Strax fyrsta setning bókar- innar er: „Ég fæddist með rödd og mjög litlu öðru; . . Það er nú það. Væri nú tkki skárri íslenzka að segja „og mjög lítið ann- að“? Svo er t. d. á bls. 95: „Aftur á móti er ekki hægt að hugsa sér söngvara án áheyr- enda; þeir fylla hverjir aðra. upp“. Og það cr nú líka það! — Það er sosem hægt að skilja, við hvað er átt, en þetta er óttaleg della samt. — Síðan á bls. 115: „Ég hef þægilegar minn- ingar frá þessum ágústmánuði í Livorno.“ — Satt að segja hélt ég, að menn hefðu minni, er ættu minningar. „Ég á þægilegar minningar . . .“ o.s.frv. — Og setning eins og: „Jók styrj- öld mönnum vit?“ er staurfæti stirðari, þó hún sé rétt mynduð. — Ofurlítil hljómsveit hefur varla forstjóra, eins og frá er sagt á bls. 174, heldur hljómsveitarstjóra cða einfaldlega stjórnanda. „Sniðleysi", sem nefnt er á bls. 180, gæti ég ímyndað mér, að ætti að vera „stílleysi“ eða „skortur á stíl.“ Og hver fjár- inn er svo eiginlega „dulinn skapgerðarbági" (bls. 164)? — Þetta er þó ekkert sálfræðirit fyrir fagmenn! — Vafalaust heyrir nú þetta undir sparðatíning, en ég get ekki varizt þeirri hugsun, að Jónas læknir Rafnar hefði getað þýtt Iiðlegar. Prófarkalestur er oft frcmur lélegur á ís- lenzkum bókum, og er þessi engin undantekn- ing. — Á myndasíðu móti bls. 129 er hertog- inn af Mantua í Rigoletto sagður vera Alfredo í La Traviata, og öfugt. — Canio í I Pa- gliacci er kallaður Camio (bls. 214). Hinn- ar heimsfrægu söngkonu, Linu Pagliughi, er tvívegis getið í bókinni, og í bæði skiptin er hún nefnd Paglinghi. Það er svo sem auðséð, að það er utangáttamaður í músikk, sem hef- ur lesið prófarkirnar. Þrátt fyrir þessar aðfinnslur mínar get ég með góðri samvizku mælt með þessari bók. Frásögnin er látlaus og lík skapara sínum. — Fullur helmingur bókarinnar segir frá barn- æsku, baráttu og fyrstu árum söngferilsins. — Og það er sannarlega meira virði að lesa um þann hluta ævinnar, heldur en þegar sigrarn- ir fara að verða hversdagslegir. Það er fróð- 75
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Dagskrá: tímarit um menningarmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá: tímarit um menningarmál
https://timarit.is/publication/1059

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.