Félagsbréf - 01.07.1958, Blaðsíða 3
PÉLAGSBRÉF
HLÝJAR HJARTARÆTUR
eptir gísla j. ástþórsson
Það sem einkennir skrif Gísla J. Ástþórssonar fyrst og fremst er markviss
kimni, sem oft verður að ádeilukenndu háði. Þátturinn Listin að byggja,
sem birtist í Árbók skálda 1956, hefur komið mörgum íslendingi til að
hlæja, og sama verður áreiðanlega hægt að segja um þessa bók, hún á
eftir að skemmta mörgum.
Hlýjar hjartarætnr er rituð í léttum og fjörlegum stíl og er bráðfyndin frá
upphafi tii enda. Þetta eru þrettán þættir og tvær smásögur. Tekur höf-
undur hér fyrir fjarskyldustu efni, svo sem kartöflurækt og pólitik, konungs-
heimsóknir og kokteilveizlur, íþróttir og dapra heimspekinga með sál, svo
að eitthvað sé nefnt. Bókin er um 200 bls. og myndskreytt af höfundi sjálfum.
Verð til félagsmanna verður eigi hærra en kr. 56.00 (heft), 78.00 (ib.).