Félagsbréf - 01.07.1958, Page 14

Félagsbréf - 01.07.1958, Page 14
10 FELAGSBREF Sé litið á skáldsagnaritun sem listrænt starf, má segja að oft sé hún list, sem fjalli um list. Samliliða breiðri frásögn af einstakling- um og liópum á lireyfingu, að starfi og í stríði og í félagslegu umróti, er söguefni, sem varðar listsköpunina. Hafi skáldsagnahöfundurinn til þess hneigð og hæfileika, getur liann liöndlað spegilmynd af lista- manninum í vanda hans, -— myndina af því livernig list verður til úr lífi, livernig líf breytist í list. Baráttan fyrir listina, fyrir list- sköpun, andstaðan gegn listinni er einatt mannlegur harmleikur eða sjónleikur í miðju menningar okkar, þeirrar menningar, sem er svo menguð kvölum. Listin getur verið sigur á óttanum, verið yfirstig- inn ótti. Það má hugsa sér þá mynd, að friðurinn og hamingjan þræði berfætt mjóan stíg milli glerbrota. Þannig er því ef til vill farið, þegar skáldsagnahöfundurinn skrifar um það, hvemig verk hans sjálfs liefur orðið til, þegar hann leitar skýringar, jafnvægis og öryggis í lífinu. Franski gagnrýnandinn Albert Thibaudet sagði eitt sinn, að hver skrifandi maður gæti skrifað að minnsta kosti eina skáldsögu, sög- una um sjálfan sig. Ég skal ekki ræða þá staðhæfingu nánar, en ég er sannfærður um að í henni býr nokkur sannleikur. Það, sem við munum, er fyrst og fremst það, sem við höfum sjálfir lifað, og það eru þessar minn- ingar, sem við leitumst við að tjá, segja frá og túlka. Og fyrir skáld- sagnahöfundinn eins og aðra felur þetta einnig í sér bókmennta- og listreynslu lians, óneitanlega tilheyrir liún mannlífinu. Hún lijálpar til þess að hvessa sjónina, beina henni yfir persónulega erfiðleika höfundarins sjálfs. Hún er lijálpartæki til að afla meiri þekkingar á tilverunni og stuðlar að því að bægja sjálfsaumkuninni frá. Ég efa ekki, að það er oft nauðsynlegt skáldsagnahöfundi að kenna í brjósti um sjálfan sig, eða, segjum heldur að það sé honum óhjá- kvæmileg örvun. En þetta er einnig gildra. Með því að liafa liugboð um þessa gildru, með því að gefa gætur að sjálfum sér og liafa þá hliðsjón af reynslu annarra eða með því að leiða fyrir augu sögu lista og bókmennta getur höfundurinn forðazt að falla of djúpt í þessa gröf. Hann getur þynnt sjálfsaumkunina með þekkingu, þegar hann skrifar um sjálfan sig, en það gerir hann raunar oftast beint eða óbeint. Hann getur náð jafnvægi milli þess hluta persónunnar,

x

Félagsbréf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.