Félagsbréf - 01.07.1958, Qupperneq 29

Félagsbréf - 01.07.1958, Qupperneq 29
PÉLAGSBRÉF 25 niiðaði á hóp farfugla, sem flaug fram hjá yfir liöfði þeim. Þegar í stað féllu fimm fuglar niður úr hinum bláa liimni. Gamli maðurinn brosti vorkunnsamlega og sagði: „En minn kæri herra, þetta er ekki annað en að skjóta með ör og boga. Hafið þér ekki enn lært að skjóta án þess að skjóta? Komið með mér“. Chi Chang varð gramur yfir því að liafa ekki tekizt að vekja aðdáun gamla einsetumannsins og fylgdi honum þegjandi fram á brún á liengiflugi miklu, um tvö hundruð skref frá hellinum. Þegar hann leit niður, þá hélt hann, að hann lilyti að vera kominn að hinum mikla vegg, þrjú þúsund álna háum, sem Chang Tsai segir frá. Langt fyrir neðan sá liann fjallalæk, sem bugðaðist eins og glitr- andi þráður eftir klettunum. Svo var eins og allt rynni út í eitt fyrir augum hans, og hann fór að svima. En á meðan liljóp meist- ari Kan Jing léttilega upp á mjóa syllu, sem skagaði fram yfir liengi- flugið, sneri sér við og sagði: „Sýnið mér nú, liversu mikil leikni yðar er. Komið þangað sem ég stend, og sýnið mér boglist yðar“. Chi Chang var of stoltur til að verða ekki við þessari áskorun, og án þess að hika auknablik gerði liann sem gamli maðurinn bauð. En liann var ekki fyrr kominn upp á sylluna en liann tók að riða til og frá. Clii Cliang gerði sér upp hugrekki, sem liann vissulega átti ekki til, tók boga sinn og reyndi með titrandi liöndum að leggja ör á streng. Rétt í því valt steinn fram af syllunni og féll þúsundir feta gegnum loftið. Chi Chang fylgdi honum með augunum og fann, að liann var að missa jafnvægið. Hann lagðist niður á sylluna og hélt sér dauðahaldi í brúnina. Fætur hans skulfu, og svitinn bogaði af honum í lækjum. Gamli maðurinn hló, rétti Chi Chang höndina og hjálpaði hon- um niður af syllunni. Svo hljóp liann þangað upp sjálfur og sagði: „Leyfið mér, herra, að sýna yður hvað bogfimi er í raun og veru“. Þó að Chi Chang hefði ákafan hjartslátt og væri náfölur, þá var hann samt nógu atliugull til að veita því eftirtekt, að meistarinn var með tvær hendur tómar. „Hvernig er með bogann yðar?“ spurði liann dimmri röddu. „Bogann minn?“ sagði gamli maðurinn. „Bogann minn?“ endur- tók hann hlæjandi. „Þeir, sem þurfa boga og ör, eru aðeins byrj- endur í listinni. Sá, sem er orðinn sannur listamaður, leggur til liliðar bæði ör og boga“. Beint yfir liöfði þeirra sveimaði gleða uppi í loftinu. Einsetumað-

x

Félagsbréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.