Félagsbréf - 01.07.1958, Qupperneq 44

Félagsbréf - 01.07.1958, Qupperneq 44
40 FELAGSBREF þróun annarra dýra, sem á undan lifðu, að honum er enn hvergi nærri lokið. Örlög hanis eru hulin mistri framtíðarinnar. Nú skiptir um svið. f tveimur næstu köflunum: Lífið í sjónum og Kóralrif — eru nútímalífverur sjáv- arins kynntar, og fær lesandinn að heyra þar margt merkilegt, jafnt um fágæt dýr sem algeng, útlit þeirra og hátterni. Það er vissulega sannmæli, að „margt býr í sjónum“, og enn hvílir hula vanþekkingar yfir mörgu, sem elur þar aldur sinn. Hafið er jafnframt ómissandi forða- búr mannanna bama, og allt það sem um það er sagt og íbúa þess, vekur hjá fólki óskipta hrifningu; enda er ég þess fullviss, að umrædd- ir kaflar munu finna óblandinn hljómgrunn hjá lesendum. Alls staðar er hafið morandi af lífi, allt frá fjöruborði og niður á 10 km dýpi. Þær 20 þúsund tegundir beinfiska, sem fundizt hafa, eru að- eins lítið brot af þeim tegundagrúa dýra, sem til er í sjónum. Auk hinna algengu krossfiska og ígulkerja fær lesandinn að kynnast hinum ski’aut- legu sæfíflum, sem oft líta út sem dýrlegustu blómkrónur. Hér er getið sæhérans, sem spýtir bleki, svampa með nálar, sem þeir stinga óvinina með, og hinnar furðulegu skepnu, sægúrkunnar, sem lætur sig ekki muna um það að æla öllum innyfl- unum og spýta þeim beint í fésið á óvinunum. Og sá sem einu sinni hef- ur augum litið dásemdir dýralífsins á kóralrifjum hitabeltisins, gleymir þeim aldrei. Litauðgi og fjölbreytni haldast þar í hendur. Næst koma kaflarnir um hinar miklu andstæður: Land sólar og auðnir norðurhjarans. A báðum stöð- um: eyðimörkum heitu landanna og heimskautalöndum norðursins heyja lífverurnar sleitulausa baráttu fyrir tilveru sinni — oft nærri vonlausa baráttu. A liðnum öldum hefur nátt- úran reynt að móta þær í samræmi við hið ömurlega umhverfi, svo að þeim tækist sem lengst að halda velli. En hvað er að segja um jurta- gróðurinn. I árdaga lífsins, þegar fyrstu einfrumungarnir urðu til, er tæplega hægt að tala um aðgrein- ingu jurta og dýra, en fljótlega hef- ur þó einhver verkaskipting átt sér stað og orðið grundvöllur að tveim- ur „ríkjum“, sem beint hafa þróun sinni sitt í hvora átt og fjarlægzt æ meir og meir, unz háþróun hryggdýr- anna — maðurinn — stendur and- spænis risafuru skógarins eða fífl- inum í hlaðbrekkunni. En hvað sem upphafinu líður, þá er eitt víst, að jörðin hefði orðið lítt byggileg mönn- um og dýrum án hin% græna gróðurs. Tveir næstsíðustu kaflar bókar- innar, sem fjalla um suðrænan og norrænan trjágróður, eru skemmti- lega skrifaðir og veita lesendunum margs konar fróðleik, sem þeir hafa ekki áður komizt í kynni við; má þar tii nefna hið nána samlíf, sem er á milli trjágróðursins og þeirra dýra, er skógana byggja — samlífs, sem ýmist leiðir til farsældar eða tortímingar. Og loks er kaflinn: Stjömugeimur- inn. Stjörnuskoðun hefur heillað margan manninn frá fyrstu tíð, og snemma var farið að sjá í stjöm- urnar og reyna að reikna út göngu þeirra. En öll þekking í þeim efn-

x

Félagsbréf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.