Fréttatíminn - 04.04.2014, Blaðsíða 10
- snjallar lausnir
545 3200 wise.is sala@wise.isGold Enterprise Resource Planning
Silver Independent Software Vendor (ISV)
TM
Borgartún 26, Reykjavík » Hafnarstræti 102, Akureyri
sími: 545 3200 » wise@wise.is » www.wise.is
Dynamics NAV er einn mest seldi
bókhaldshugbúnaður á Íslandi í dag.
Wise er í fararbroddi í upplýsingatækni með sérstaka áherslu á
ráðgjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingar ásamt öflugri og
persónulegri þjónustu.
Fjölbreyttar lausnir á sviði ármála, viðskiptagreindar, verslunar,
sérfræðiþjónustu, sjávarútvegs, sveitarfélaga og flutninga, sem
einfalda þér þitt hlutverk.
Samningar virðast vera að nást í
deilu framhaldsskólakennara en
verkfall þeirra hefur nú staðið í
nítján daga.
„Samningagerðin er langt á
veg komin en eftir er að ganga
frá nokkrum málum,“ segir í yf-
irlýsingu sem framhaldsskóla-
kennarar gáfu í gær.
Viðræður eru sagðar á mjög
viðkvæmu stigi en trúnaðar-
menn og formenn svæðafélaga
kennara og stjórnenda fram-
haldsskóla eru boðaðir á fund
klukkan 13 í dag. Þar á að
kynna þeim stöðu samninga
en viðræðunefnd kennara telur
að samningaviðræður séu svo
langt komnar að nauðsynlegt sé
að kynna stöðuna í stærri hópi
félagsmanna.
Ekki voru eiginlegir samn-
ingafundir í deilunni í gær held-
ur funduðu deiluaðilar hvor í
sínu lagi. Hin svokallaða stóra
samninganefnd framhaldsskóla-
kennara var þá kölluð til fundar
og töldu heimildarmenn það vita
á gott og gefa sterka vísbend-
ingu um að samningar séu loks
að nást í deilunni.
Á skrifstofu ríkissáttasemjara
voru menn vongóðir en sögðu að
brugðið gæti til beggja vona.
„Það er aldrei búið fyrr en það
er búið að skrifa undir og við för-
um varlega í að hafa á því skoð-
un fyrr en þá,“ sagði Magnús
Jónsson á skrifstofu Ríkissátta-
semjara um stöðuna í deilunni.
Magnús sagðist vona að viðræð-
ur væru á síðustu metrunum en
boltinn væri nú hjá kennurum,
þeir einir gætu sagt til um hvort
samningar væru að nást. -pg
Þ etta er ekki að ganga, það er bara kalt mat,“ segir Óskar Bergsson í samtali við
Fréttatímann. Hann ákvað í gær
að draga sig í hlé sem oddviti fram-
boðslista Framsóknarflokksins
vegna borgarstjórnarkosninganna
í Reykjavík í vor.
Framsóknarflokkurinn hefur
mælst með fylgi um og innan við
2% í skoðanakönnunum síðustu
vikna en um 6% þarf til að borgar-
fulltrúi sé öruggur með að ná
kosningu.
„Ég gaf kost á mér í þetta í vetur
vegna þess að ég hafði þekkingu
og reynslu úr borgarmálum og hélt
að það gæti nýst flokknum sem fór
illa út úr síðustu borgarstjórnar-
kosningum en svo þegar maður
metur stöðuna þegar tveir mán-
uðir eru til kosninga þá er ekkert
að gerast og þá er rétt að leyfa að
öðrum að taka við,“ segir Óskar.
Spurður hver tæki oddvitasætið í
hans stað sagði Óskar að það væri
annarra að ákveða það en hann
vildi gefa öðrum tækifæri til að ná
betri árangri í kosningunum.
Í yfirlýsingu sem Óskar sendi
frá sér í gær segir að hafi hann sett
fjölmörg mál á dagskrá sem hann
telji eiga erindi við borgarbúa.
„Þrátt fyrir þessi stefnumál, sem
ég tel að eigi hljómgrunn meðal al-
mennings, hefur málstaður okkar
ekki náð í gegn. Sem oddviti fram-
boðsins ber ég ábyrgð á gengi
flokksins í höfuðborginni og stað-
an sem við horfum á nú er grafal-
varleg. Bóndi sem ekki uppsker
úr jarðvegi sínum hefur aðeins um
tvo kosti að velja. Það er að bregða
búi eða leita annarra leiða til njóta
ávaxta erfiðis síns. Þar sem tæpir
tveir mánuðir eru til kosninga er
enn möguleiki á því að snúa vörn
í sókn. Það er því mitt mat til þess
að snúa taflinu við, þá sé réttur
tímapunktur núna að ég stígi til
hliðar sem oddviti Framsóknar-
flokksins í Reykjavík. Í mínum
huga er það algjört forgangsmál
að skipt verði um meirihluta í
borgarstjórn á næsta kjörtímabili
og borgin nái aftur því forystuhlut-
verki sem hún hafði og á að hafa.
Ég vil þakka öllum þeim sem hafa
lagt mér lið, fyrir stuðning og vin-
áttu sem ég mun ekki gleyma.“
Guðrún Bryndís Karlsdóttir,
sjúkraliði og verkfræðingur, var
í 2. sæti á framboðslistanum sem
kjördæmisráð Framsóknarlokks-
ins í Reykjavík samþykkti í nóvem-
ber á síðasta ári.
Pétur Gunnarsson
petur@frettatiminn.is
Framhaldsskólar samningar í augsýn eFtir nítján daga verkFall
Samningsgerð langt komin og trúnaðarmenn funda í dag
Borgarstjórn óskar Bergsson segir aF sér sem oddviti Framsóknar
Þetta er ekki að ganga
– það er bara kalt mat
Óskar Bergsson segir rétt að leyfa öðrum að taka við forystu borgarstjórnarlista Framsóknar-
flokksins. Hann hafi ekki náð í gegn með þau áherslumál sem hann hafi sett á dagskrá.
Þessi voru í fjórum efstu
sætum listans sem Fram-
sóknarflokkurinn í Reykja-
vík ákvað í nóvember að
bjóða fram í borgarstjórn-
arkosningunum 31. maí.
Óskar Bergsson hefur
nú dregið sig í hlé sem
oddviti. Guðrún Bryndís
Karlsdóttir er í 2. sæti,
Valgerður Sveinsdóttir í
3. sæti og Guðlaugur Gylfi
Sverrisson í 4. sæti.
Líklegt er að nemendur Fjölbrautar í Ármúla geti mætt í skóla á mánudag eftir 19 daga verkfall.
Meðalaldur bíla 12,4 ár
46% allra bíla í landinu var 15 ára eða
eldri á síðasta ári. Meðalaldur bíla hér á
landi var þá 12,4 ár en um átta ár í ESB,
samkvæmt nýjustu tölum. “Fáir nýir bílar
hafa verið fluttir inn frá 2008 og eldist því
bílaflotinn hratt og hefur aldrei verið eldri
á þeim tíma sem gögn ná yfir,“ segir Rann-
sóknarsetur verslunarinnar en það hefur
gefið út Árbók bílgreina í fyrsta skipti.
Þar kemur fram að í fyrra störfuðu 3.400
manns í bílgreinum á Íslandi en starfs-
mennirnir voru 4.300 árið 2008. Velta
greinarinnar var 70 milljarðar króna árið
2013 en 81 milljarður árið áður. Skráning-
um nýrra bíla fækkaði um 6% milli áranna
2012 og 2013.
Alvarleg og óhófleg
notkun svefnlyfja á
Landæknir vill rannsaka óhóflega
lyfjanotkun landsmanna en Íslendingar
nota tvisvar til þrisvar sinnum meira af
svefnlyfjum og róandi lyfjum en aðrir
Norðurlandabúar. Notkunin er verulegt
áhyggjuefni, segir í grein í Læknablaðinu,
og margt bendi til að ofnotkun hafi verið
stunduð hér á landi áratugum saman.
Í Læknablaðinu kemur fram að notkun
svefnlyfja og róandi lyfja er minnst í
Danmörku en mest á Íslandi og nota
Íslendingar tvisvar til þrisvar sinnum
meira en aðrir Norðurlandabúar. Í sumum
lyjaflokkum er notkunin fimm sinnum
meiri hér en í Danmörku. Ekki eigi að
nota svefnlyf eins og Imovane lengur
en í tvær til fjórar vikur en hér á landi
séu mörg dæmi um að slík lyf séu notuð
mánuðum eð árum saman. Það auki mjög
líkur á þolmyndun og fíkn og hættuleg frá-
hvarfseinkenni geti komið fram ef notkun
er hætt skyndilega.
Grísa rilette slær í gegn
Jón Þorsteinsson, kjötmeistari hjá Slátur-
félagi Suðurlands, hlaut um síðastliðna
helgi verðlaun fyrir bestu vöruna unna úr
svínakjöti í Fagkeppni Meistarafélags kjöt-
iðnaðarmanna. Jón hlaut verðlaun fyrir
Grísa rilette sem unnið er á svipaðan hátt
og paté en hráefnið er að stórum hluta
svínakjöt. Í umsögn dómnefndar kom fram
að Grísa rilette Jóns væri ljúfengt, byggt
á franskri hefð og hentaði vel með snittu-
brauði sem for- eða aðalréttur. -eh
Nýtt app, Já.is appið, er
komið í loftið. Þetta er í
fyrsta skipti sem upplýs-
ingar af Já.is, sem geymir
upplýsingar um 94%
landsmanna, eru gefnar
út á app-formi. Þriðjungur
þeirra sem heimsækja
Já.is gerir það í gegnum
spjaldtölvur eða snjall-
síma og mun appið bæta
aðgengi þeirra notenda
að upplýsingum vefjarins
til muna. Hönnun og
framsetning upplýsinga í
appinu er bylting frá því
sem Íslendingar þekkja í
númeraleit. Til að mynda
tekur aðeins 5-10 sek-
úndur að opna appið og
fá þær upplýsingar sem
óskað er eftir í saman-
burði við 30-50 sekúndur
sé farið í gegnum Já.is í
vafra símtækis.
Ókeypis verður að fletta
upp í appinu líkt og á
vefnum Já.is. Ásamt því
að geta fundið upp-
lýsingar um símanúmer
er einnig hægt að hringja,
senda sms skilaboð
eða tölvupóst, skoða
staðsetningu á korti,
fá vegvísun, finna af-
greiðslutíma, samfélags-
miðla og finna umsagnir
um fyrirtæki í gegnum
appið. - eh
Byltingarkennt Já-app
10 fréttir Helgin 4.-6. apríl 2014