Fréttatíminn - 04.04.2014, Blaðsíða 70
Græjaðu fermingargjafirnar!
Kláraðu
kaupin hér!
Hljómskærustu pakkarnir
Bose SoundLink Mini hljómtæki
Verð: 39.990 kr.
Bose SoundLink Mini hljómtæki
Verð: 39.990 kr.
Sony Bluetooth hljómtæki
Tilboð: 15.192 kr.
Plantronics RIG heyrnartól
Verð: 21.900 kr.
Þráðlaus og létt
græja. Tengist við
snjallsíma. Flott
hulstur fylgir.
Ótrúlega fínn
hljómur sem hægt
er að tengja við
snjallsíma.
Frábær heyrnatól fyrir
tölvuleikjasnillinginn.
Þráðlaus og létt græja. Tengist við snjallsíma. Flott hulstur
fylgir.
Ótrúlega fínn hljómur sem hægt
er að tengja við snjallsíma.
Frábær heyrnatól fyrir tölvuleikjasnillinginn.
Borgartúni 37 / Kaupangi Akureyri
nyherji.is/fermingar
N
M
62
01
80
TVEIR HRAFNAR
listhús, Art Gallery
Baldursgata 12 101 Reykjavík
+354 552 8822 +354 863 6860 +354 863 6885
art@tveirhrafnar.is www.tveirhrafnar.is
Opnunartímar
12:00-17:00 miðvikudaga til föstudaga
13:00-16:00 laugardaga
og eftir samkomulagi
Óli G.
Jóhannsson
– In Memoriam –
13. mars - 5. apríl 2014
Vortónleikar Karlakórs Reykjavíkur verða fjögur kvöld í næstu
viku, mánudag, þriðjudag, miðvikudag og laugardag.
TónlisT VorTónleikar karlakórs reykjaVíkur
Kom vornótt og syng
Væntanlegt söngferðalag Karlakórs
Reykjavíkur til Pétursborgar í Rúss-
landi síðar á þessu ári litar dagskrá vor-
tónleika kórsins því rússnesk lög munu
hljóma í bland við íslensk, skandinavísk,
bresk og kanadísk. Tónleikarnir verða
haldnir í Langholtskirkju mánudaginn
7. apríl klukkan 20, þriðjudaginn 8. apríl
klukkan 20, miðvikudaginn 9. apríl
klukkan 20 og laugardaginn 12. apríl
klukkan 15.
Þá staldrar kórinn við og minnist Jóns
frá Ljárskógum en í ár er liðin öld frá
fæðingu hans. Jón léði Karlakór Reykja-
víkur rödd sína um nokkurra ára skeið á
fjórða áratug síðustu aldar og enn þann
dag í dag eru leikin lög í útvarpi með
honum og félögum hans í MA kvar-
tettnum góðkunna. Yfirskrift vortón-
leikanna, Kom vornótt og syng, er sótt í
kvæði hans Næturljóð sem sungið er við
fallega noktúrnu Frédérics Chopin.
Einsöngvarar á tónleikum kórsins
þetta árið eru tveir. Annars vegar
Natalía Druzin Halldórsdóttir mezzó-
sópran sem er af rússneskum ættum,
en hún mun fylgja kórnum á ferðalag-
inu um gerska grund í haust. Natalía
lauk fullnaðarprófi í söng árið 2006 og
hefur komið víða fram, meðal annars í
Íslensku óperunni og sem einsöngvari
á útvarpstónleikum með Sinfóníuhljóm-
sveit árið 2009. Karlakór Reykjavíkur
væntir mikils af samstarfi við þessa
raddfögru söngkonu. Hinsvegar Bene-
dikt Gylfason drengjasópran en hann
vakti mikla hrifningu áhorfenda er
hann söng einsöng á aðventutónleikum
kórsins í desember síðastliðnum, að því
er fram kemur í tilkynningu hans.
Anna Guðný Guðmundsdóttir er sem
fyrr við flygilinn á vortónleikum Karla-
kórs Reykjavíkur og stjórnandi kórsins
í hartnær aldarfjórðung er Friðrik S.
Kristinsson. -jh
nýlisTasafnið kVeður skúlagöTuna með „æ ofaní æ“
Innblásin af verkum Hreins
og sýn hans á lífið og tilveruna
Nýlistasafnið er að missa húsnæði sitt við Skúlagötu og kveður með sýningunni „æ ofaní æ“ þar
sem sýnd verða verk eftir Hrein Friðfinnsson og kvikmynd sem Markús Þór Andrésson og Ragn-
heiður Gestsdóttir hafa gert og er innblásin af verkum og lífi Hreins.
H reinn Friðfinnsson og verk hans eru í brennidepli sýningarinnar „æ ofaní
æ“ sem opnar í Nýlistasafninu á
morgun og verður síðasta sýning-
in sem sett verður upp í safninu í
núverandi húsnæði við Skúlagötu.
Þarna verður frumsýnd kvik-
mynd, sem einnig ber heitið „æ
ofaní æ“. Hana hafa Markús Þór
Andrésson og Ragnheiður Gests-
dóttir gert en Markús er jafn-
framt sýningarstjóri. Myndin
endurspeglar líf og lists Hreins
Friðfinnssonar sem sjálfur er þar
meðal leikenda.
„Hún er samin út frá nokkrum
verkum eftir Hrein,“ segir Markús
Þór og nefnir að alveg eins og það
er algengt að smásögu sé breytt í
kvikmyndahandrit hafi þau búið
til sögu upp úr verkum Hreins.
Markús segir að þau Ragnheið-
ur hafi heillast bæði af verkum
Hreins og af honum sem mann-
eskju og að myndin sé innblásin
af sýn Hreins á lífið og tilveruna.
Hann sé stöðugt að leita sér nýrra
upplýsinga og viðfangsefna og hafi
fræðilegan áhuga á menningu,
vísindum og listum og sé mikill
sögumaður og búi til ljóðræn og
heimspekileg verk sem spinnast
úr atburðum í hversdagslífinu.
Í „æ ofaní æ“ eru verk Hreins
notuð sem burðarás í spennu-
þrunginni frásögn þar sem mörk
veruleika og skáldskapar eru máð
út og sannleiksleit vísindanna og
sköpunarþrá listarinnar takast
á, eins og segir í lýsingu Nýlista-
safnsins.
Hreinn Friðfinnsson er í röð
fremstu myndlistarmanna þjóðar-
innar af sinni kynslóð. Hann er
sjötugur og hefur verið búsettur
í Amsterdam frá því á áttunda
áratugnum. Hann kemur heim til
að vera viðstaddur frumsýninguna
á laugardaginn. Þar verður einnig
finnska leikkonan Kati Outinen
sem er þekkt úr ýmsum kvik-
myndum Aki Kaursimaki en hún
fer með burðarhlutverk í kvik-
mynd Ragnheiðar og Markúsar
Þórs.
Kvikmyndin verður sýnd á
klukkutíma fresti í sérrými í
safninu meðan sýningin stendur
en verk Hreins verða sýnd í fremra
rými. Þar á meðal er verk sem
Hreinn hefur gert sérstaklega af
þessu tilefni og er tileinkað Ný-
listasafninu og húsnæðinu við
Skúlagötu sem safnið kveður um
leið og sýningunni lýkur þann 5.
júní en síðustu tvær sýningarvik-
urnar verða hluti af Listahátíð í
Reykjavík.
Pétur Gunnarsson
petur@frettatiminn.is
Markús Þór Andrésson og Ragnheiður Gestsdóttir nota verk Hreins Friðfinns-
sonar sem hráefni í söguna sem er sögð í myndinni „æ ofan í æ“ sem verður frum-
sýnd á samnefndri sýningu Nýlistasafnsins á morgun. Ljósmynd/Hari
selTjarnarnes HáTíð í næsTu Viku
Seltjarnarnesbær minnist fjörutíu ára afmælis
Seltirningar ætla að fagna því í næstu
viku að 40 ár eru liðin frá því sveitar-
félagið fékk kaupstaðarréttindi og Sel-
tjarnarnesbær varð til.
Afmælishátíðin hefst á miðvikudag
og er dagskráin þéttskipuð fram á
laugardag. Heiðursgestur í afmælishátíð
á Eiðistorgi síðdegis á miðvikudag
verður Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, en hann bjó áratugum saman á
Seltjarnarnesi áður en hann var kjörinn
forseti og flutti sig yfir á Bessastaði.
Jóhann Helgason mun við það tækifæri
frumflytja lag sem hann hefur samið til
bæjarins. Kristín Gunnlaugsdóttir og fleiri
myndlistarmenn á Seltjarnarnesi munu
einnig opna sýningu með nýjum verk í
sýningarsalnum Eiðisskeri og síðan mun
bæjarlistamaðurinn Ari Bragi Kárason
trompetleikari halda tónleika með Sigríði
Thorlacius, Eyþóri Gunnarssyni, Einari
Schecving og Richard Anderson.
Síðan rekur hver viðburðurinn annan
á þéttskipaðri dagskrá fram á laugardag
þar sem skiptast á fyrirlestrar, sýningar,
tónleikar og sitthvað fleira.
Seltirningar ætla að minnast af-
mælisins með ýmsu móti allt árið. Meðal
annars verður gefið út sérstakt afmælis-
rit sem kemur út á Jónsmessunni. Eins
hefur verið gerð sérstök afmælisútgáfa
af merki bæjarins. -pg
70 menning Helgin 4.-6. apríl 2014