Fréttatíminn - 04.04.2014, Blaðsíða 52
52 matur & vín Helgin 4.-6. apríl 2014
vín vikunnar
Santa Digna Sauvignon Blanc Reserve
Gerð: Hvítvín
Þrúga: Sauvignon Blanc
Uppruni: Chile
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum: kr. 2.229
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
Uppskrift vikunnar
Robertson Winery
Chardonnay
Gerð: Hvítvín
Þrúga: Chardonnay
Uppruni: S-Afríka
Styrkleiki: 13%
Verð í Vínbúðunum:
kr. 1.999
Chardonnay er
vinsælasta vínþrúga
veraldar og stíllinn
getur verið ansi misjafn.
Þetta Chardonnay frá
S-Afríku lætur ekki
mikið yfir sér, er á
ágætu verði og skilar
sínu hlutverki ágætlega
en ekkert stórkostlega.
Milt með sítrus og
smá suðrænum,
mildum ávaxtakeim og
oggoponsu eikarkeim.
Fínt með skelfisknum.
Altano Douro
Gerð: Hvítvín
Þrúga: Blanda af Vios-
hino, Malavasia Fino og
Moscatel Galego
Uppruni: Portúgal
Styrkleiki: 12,5%
Verð í Vínbúðunum:
kr. 1.998
Hvítvín frá Portúgal og
úrvalið af þess konar er
kannski ekki svo mikið
hér. Þetta er blanda af
þremur þrúgum og er
auðdrekkanlegt vín,
þurrt en létt og ávaxta-
ríkt, skilur kannski ekki
mikið eftir sig en ágætt
sem slíkt og fínt að
prófa eitthvað nýtt.
Faustino VII
Gerð: Hvítvín
Þrúga: Viura
Uppruni: Spánn
Styrkleiki: 12%
Verð í Vínbúðunum:
kr. 1.699
Hér er á ferðinni Viura,
vinsælasta hvítvín-
sþrúga Rioja-héraðsins.
Þetta vín er á góðu
verði en er heldur
ekkert sparivín. Þetta er
vín til að drekka núna.
Það er þurrt með ferskri
sýru og sítruskeim.
AIRWEIGHT
TITANIUM
UMGJÖRÐ
MEÐ TVEGGJA
ÁRA ÁBYRGÐ
Á
VIÐ KAUP Á
GLERJUM FYLGIR:
prooptik.is
KRINGLUNNI 2. HÆÐ
HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI
SPÖNGINNI, GRAFARVOGI
SÍMI 5 700 900 | WWW.PROOPTIK.IS
SEGLAGERÐIN ÆGIR
Þar sem ferðalagið byrjar
Korputorg
112 Reykjavík
Sími 551 5600
utilegumadurinn.is
FERÐAVAGNAR
KAUPLEIGA
GRÆNIR BÍLAR
Opið mán-fös kl. 10-18 - lau-sun kl. 12-16
Falleg
hjólhýsi
Verð frá 4.190.000 kr.
Hamarshöfði 4 - sími 587-1960 - www.mosaik.is
Mikið úrval - Vönduð vinna
legsteinar og fylgihlutir
10-50% afsláttur
Steinsmiðjan Mosaik
TILBOÐSDAGAR
Bruschetta
með
mozzarellu og
tómötum
Ólífuolía
1 hvítlauksgeiri
1 stk ferskur mozzarella
Aðferð:
Grillið brauðið. Penslið
með ólífuolíu. Nuddið
hvítlauksgeiranum við
brauðið. Setjið „tómatak-
lassík“ ofan á brauðið.
Rífið mozzarella í fallega
bita og raðið ofan á.
Skreytið með ofnbök-
uðum tómat.
Ciabatta-brauð
11 g þurrger
18 g salt
250 ml volgt vatn
500 g hveiti
35 g olía
Hveitinu, þurrgerinu og
saltinu er hrært saman.
Því næst er vatninu og
olíunni hellt í mjórri bunu
saman við blönduna og
hnoðað þar til deigið
hefur fengið slétta áferð.
Þá er það látið hefa sig
í 30 mínútur. Síðan er
deigið mótað í lengjur og
látið hefa sig aftur í um
30 mínútur. Loks er það
bakað á 220 °C í um 13
mínútur eða þar til það er
orðið gullinbrúnt.
Tómataklassík
500 g tómatar
25 g basil
Hvítlaukur eftir smekk
Skerið tómatana í tvennt,
saxið hvítlaukinn og
bakið í um 10 mínútur
á 180°C. Takið hýðið af
tómötunum. Saxið basilið
og blandið öllu saman.
Skerið tómatana í grófa
teninga. Kryddið með
salti og pipar. Munið eftir
að sigta vökvann frá.
Aperitivo – ítalskur lystauki
Aperitivo er ítölsk
matarhefð eða eiginlega
frekar drykkjarhefð því
hefðbundin ítölsk máltíð
hefst á þessum lystauka
sem oftast er í formi
drykkjar. Freyðivín, eins
og hið ítalska Prosecco
auk rauð- og hvítvína, eru
vinsælustu lystaukarnir.
Á börum og veitinga-
stöðum Ítalíu er líka sterk
hefð fyrir því að bjóða
upp á fingramat með.
Ítalski veitingastaðurinn
UNO í miðbæ Reykja-
víkur er farinn að bjóða
Aperitivo milli klukkan 17
og 19 og líkt og á Ítalíu
er maturinn innifalinn
í verði drykkjarins og í
boði er hlaðborð með
ólífum og öðrum smá-
réttum, skinkum, pylsum
auk sýnishorna af réttum
á matseðlinum. Hér eru
uppskriftir frá Halldóri
Eini Guðbjartssyni, yfir-
kokki á UNO, að grilluðu
flanini sem er flatbrauð
í bitum með áleggi og
klassískri bruchettu sem
falla fullkomlega að formi
Aperitivo.
Flanini
Deig
500 gr semolina hveiti
35 ml pilsner
5 gr sykur
5 gr salt
1/3 tsk þurrger
12 ml ólífuolíu
330 ml vatn
Þurrefnum er blandað
saman í hrærivélarskál,
vökvanum er svo blandað
út í hægt og rólega.
Hnoðið á hægum hraða
þar til deigið er orðið þétt
silkiáferð.
Sóltómatamauk
200 gr sólþurrkaðir
tómatar
30 gr furuhnetur
2 geirar hvítlaukur
30 gr parmesanostur
4 msk ólífuolía
Setjið hráefnið allt saman
í matvinnsluvél og vinnið
vel saman, kryddið til
með örlitlu salti og pipar.
Deigið er skorið í
litla parta sem eru svo
flattir út með kökukefli
þar til deigið er orðið 2
mm þykkt. Gætið þess
að sáldra hveiti yfir
þannig að deigið festist
ekki við vinnuflötinn eða
kökukeflið. Gott er að
kæla deigið áður en það
er grillað.
Grillið deigið í 20-25
sekúndur á hvorri hlið á
heitum grillfleti. Botninn
er svo penslaður með
ólífuolíu og svo er smurt
þunnu lagi af sóltómata
maukinu yfir. Þar næst er
klettasalati dreift yfir og
hráskinkunni raðað ofan
á. Loks er skorið í litla
bita og fært upp á fat eða
disk. Stráið parmesanosti
yfir í lokin.
ASTORIA PROSECCO
freyðivín frá Ítalíu er
frábær lystauki. Verð í
vínbúðunum 2.298 kr.
Fréttatíminn mælir með
Eftir svellkaldan vetur hlýtur að fara að vora. Og ef ekki þá tökum við
Íslendinginn á þetta, smellum okkur í lopann, kveikjum á pallahitar-
anum, teljum okkur trú um að veðrið sé bara ágætt og fáum okkur smá
hvítvín til að fagna vorinu. Þetta er vín frá Chile úr Sauvignon Blanc
þrúgunni, framleitt á einni af
hinum fjölmörgu vínekrum
hinnar spænsku Torres-fjöl-
skyldu þar í landi og fellur
undir flokk „fair trade“
vína.
Þetta er ekta sumarvín til
þjófstarta vorinu og koma
okkur í sumarskapið. Það er ávaxtaríkt og ferskt, léttdrukkið og gott
til söturs sem lystauki. Þetta vín hentar líka vel með mildum mat, aðal-
lega fiskmeti og fersku salati. Muna bara að drekka það ekki beint úr
ísskápnum, þannig kemur bragðið betur fram.
Þjófstart á vorið