Fréttatíminn - 04.04.2014, Blaðsíða 44
44 fjölskyldan Helgin 4.-6. apríl 2014
rúningur Sauðfjárbændur í höfuðStaðnum
Meðlagsgreiðslur og annar fjárhagslegur stuðningur
m ér finnst svo ósanngjarnt að við skulum vera látin borga tvöfalt meðlag með stráknum sem er aðra hvora viku hjá okkur. Það er ekkert pælt í því hvaða tekjur mamma hans hefur eða maðurinn hennar, en þau eru mun betur stæð
en við.“
Óhætt er að fullyrða að flestir foreldrar vilja sjá um framfærslu barna sinna og margir
stjúpforeldrar greiða ýmislegt fyrir stjúpbörn sín eins og tómstundir, sumarfrí, fatnað
og mat og fleira. Jafnvel þó bæði innlendar og erlendar rannsóknir sýni að stjúpforeldr-
ar séu síður tilbúnir til þess að styðja stjúpbörn sín en eigin börn. Ef tengsl stjúpforeldra
og stjúpbarna eru góð er líklegra að þá langi til að veita þeim fjárhagslega stuðning en
ef þau eru erfið eða engin.
Foreldrum ber lagalega skylda til að framfleyta börnum sínum. Skiptir engu
hvort þeir fari með forsjá þeirra eða ekki. Annað á við um stjúpforeldra og í raun
hefur minnihluti þeirra framfærsluskyldu gagnvart stjúpbörnum sínum. Ástæðan
er sú að um 90% foreldra fara með sameiginlega forsjá við skilnað. Þýðir það að
minnihluti stjúpforeldra hefur forsjá stjúpbarna sinna. Hafi þeir hana, fellur hún
niður við skilnað.
Því er hinsvegar ekki að neita að ákveðnar væntingar eru til stjúpforeldra um
framfærslu stjúpbarna. Hvað varðar hið opinbera þá virðist sem að lögheimili
barns sé látið ráða en ekki hvort stjúpforeldrið hafi forsjá þess eða ekki. Eða er hið
opinbera ekki að gera ráð fyrir því að stjúpforeldri sem á sama lögheimili og stjúp-
barn taki þátt í framfærslu barnsins, þar sem bætur tengdar börnum skerðast og
afsláttur fellur niður þegar breytingar verða á hjúskaparstöðu foreldrisins?
Ég er að reyna átta mig á þessu en það virðist einhver önnur hugsun í gangi
þegar kemur að stjúpforeldri sem er maki meðlagsgreiðanda. Í því tilviki virðast
tekjur stjúpforeldrisins ekki skipta máli þegar verið er að ákvarða hvort foreldri
geti greitt eitthvað umfram einfalt meðlag með barni sínu eða ekki. Auk þess sem
það foreldri telst ekki foreldri samkvæmt skattalögum og nýtur engra bóta sem
tengjast börnum sem greitt er með meðlag, jafnvel þó barn dvelji hjá því aðra hvora
viku. Ég velti fyrir mér af hverju sumir telja það þurfi að breyta lögheimilislögum
til að jafna betur opinberar bætur á milli heimila. Af hverju eru umgengnissamn-
ingar eða foreldrasamningar, eins og ég kýs að kalla þá, ekki látnir ráða?
Meðal almennings eru skiptar skoðanir um það hvort stjúpforeldri eigi að sjá um
framfærslu stjúpbarna sinna eða ekki. Í könnun sem send var út á vegum Félags stjúp-
fjölskyldna í fyrra töldu 52% svarenda að stjúpforeldrar ættu að borga til jafns við for-
eldra fyrir þau börn sem eru búsett á heimilinu.
En þegar tölurnar voru greindar nánar kom í ljós mikill munur á afstöðu fólks til
þessa máls eftir samsetningu stjúpfjölskyldunnar. En 65% þeirra sem áttu börn saman
og báðir komu með börn í sambandið voru sammála jafnri framfærslu foreldra og stjúp-
foreldra en aðeins 25% stjúpforeldra sem ekki átti börn sjálfir. Tölurnar benda til þess
að það að eignast barn saman skipti töluverðu um afstöðu bæði foreldra og stjúpforeldra
varðandi þátttöku stjúpforeldris í kostnaði vegna barna sem búsett eru á heimilinu.
Önnur afstaða virðist vera gagnvart börnum sem koma í „umgengni“ samkvæmt upp-
lýsingum í nýlegri MA ritgerð í félagsráðgjöf. Þau börn virðast fá minni fjárhagslega
aðstoð en börnin sem teljast búsett á heimilinu. En hvenær teljast börn búa á heimili og
hvenær eru þau í umgengni?
Jafnframt kom í ljós í fyrrgreindri könnun sem send var út á vegum Félags stjúpfjöl-
skyldna að 25% svarenda voru þeirrar skoðunar að foreldri ætti ekki að borga meðlag
með barni sem býr með foreldri og stjúpforeldri. Þessi hugmynd hefur ekki farið hátt í
umræðunni um meðlagsmál hér á landi – enda spurning hversu raunhæf eða sanngjörn
hún er.
Hvað sem því líður þarf að skoða framfærslu barna sem eiga foreldra á tveimur heim-
ilum svo tryggja megi þeim góð lífsskilyrði óháð hjúskaparstöðu foreldra og draga úr
deilum sem kerfið skapar. Líklega þarf að endurskoða kerfið frá grunni sem virðist taka
mið af öðrum veruleika en við búum við í dag. Félag stjúpfjölskyldna ætlar að standa
að málþingi um meðlagsmál ásamt fleiri félögum þann 9. maí næstkomandi og verður
áhugavert að heyra fjölbreytt sjónarmið. Verið velkomin!
Hver borgar hvað fyrir hvern?
Valgerður
Halldórs-
dóttir
félagsráðgjafi
og kennari
heimur barna
Skoða þarf fram-
færslu barna sem
eiga foreldra á
tveimur heimilum
svo tryggja megi
þeim góð lífs-
skilyrði, óháð
hjúskaparstöðu
foreldra.
Í dag, föstudag, gefst
tækifæri á því að fylgjast
með rúningu sauðfjár í
miðborginni því sauðfjár-
bændur fjölmenna í höfuð-
staðinn föstudaginn 4.
apríl til þess að halda aðal-
fund. Að því tilefni bjóða
þeir gestum og gangandi
til mannfagnaðar á KEX
Hostel á Skúlagötu 28
milli klukkan 16 og 18.
Þar munu þaulvanir rún-
ingsmenn kynna verk-
lagni sína og keppa um
Gullklippurnar. Verð-
launin eru veitt þeim sem
rýir með hvað mestum
glæsibrag. Meðal gesta
verður sauðfé frá Hraða-
stöðum í Mosfellsdal en
því verður ekið í þar til
gerðum sauðfjárvagni
til og frá rúningsstað og
mun dýralæknir sjá um að
velferð þess sé í hávegum
höfð. Rúið verður í portinu
á KEX og mun viðburður-
inn hefjast klukkan 16.
Sauðfé rúið í miðborginni
Laugavegi 53 Sími 552 3737 opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Iana Reykjavík
Vor/Sumar
2014
Ný sending
frá
Flottir litríkir kjólar og
ott spariföt á stráka .
Tilboð á sumar jökkum
20% afsl.
2 FYRIR 1
4.00 / cyl -2.00
KRINGLUNNI 2. HÆÐ
HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI
SPÖNGINNI, GRAFARVOGI
SÍMI 5 700 900 | WWW.PROOPTIK.IS
prooptik.is
ATHUGIÐ:
Á EKKI VIÐ
MARGSKIPT GLER
fermingar
veisluna
Allt fyrir2014
Nóatún býður upp á
úrval af hlaðborðum fyrir
fermingarveisluna!
sjá www.noatun.is
H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t