Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.04.2014, Síða 44

Fréttatíminn - 04.04.2014, Síða 44
44 fjölskyldan Helgin 4.-6. apríl 2014  rúningur Sauðfjárbændur í höfuðStaðnum Meðlagsgreiðslur og annar fjárhagslegur stuðningur m ér finnst svo ósanngjarnt að við skulum vera látin borga tvöfalt meðlag með stráknum sem er aðra hvora viku hjá okkur. Það er ekkert pælt í því hvaða tekjur mamma hans hefur eða maðurinn hennar, en þau eru mun betur stæð en við.“ Óhætt er að fullyrða að flestir foreldrar vilja sjá um framfærslu barna sinna og margir stjúpforeldrar greiða ýmislegt fyrir stjúpbörn sín eins og tómstundir, sumarfrí, fatnað og mat og fleira. Jafnvel þó bæði innlendar og erlendar rannsóknir sýni að stjúpforeldr- ar séu síður tilbúnir til þess að styðja stjúpbörn sín en eigin börn. Ef tengsl stjúpforeldra og stjúpbarna eru góð er líklegra að þá langi til að veita þeim fjárhagslega stuðning en ef þau eru erfið eða engin. Foreldrum ber lagalega skylda til að framfleyta börnum sínum. Skiptir engu hvort þeir fari með forsjá þeirra eða ekki. Annað á við um stjúpforeldra og í raun hefur minnihluti þeirra framfærsluskyldu gagnvart stjúpbörnum sínum. Ástæðan er sú að um 90% foreldra fara með sameiginlega forsjá við skilnað. Þýðir það að minnihluti stjúpforeldra hefur forsjá stjúpbarna sinna. Hafi þeir hana, fellur hún niður við skilnað. Því er hinsvegar ekki að neita að ákveðnar væntingar eru til stjúpforeldra um framfærslu stjúpbarna. Hvað varðar hið opinbera þá virðist sem að lögheimili barns sé látið ráða en ekki hvort stjúpforeldrið hafi forsjá þess eða ekki. Eða er hið opinbera ekki að gera ráð fyrir því að stjúpforeldri sem á sama lögheimili og stjúp- barn taki þátt í framfærslu barnsins, þar sem bætur tengdar börnum skerðast og afsláttur fellur niður þegar breytingar verða á hjúskaparstöðu foreldrisins? Ég er að reyna átta mig á þessu en það virðist einhver önnur hugsun í gangi þegar kemur að stjúpforeldri sem er maki meðlagsgreiðanda. Í því tilviki virðast tekjur stjúpforeldrisins ekki skipta máli þegar verið er að ákvarða hvort foreldri geti greitt eitthvað umfram einfalt meðlag með barni sínu eða ekki. Auk þess sem það foreldri telst ekki foreldri samkvæmt skattalögum og nýtur engra bóta sem tengjast börnum sem greitt er með meðlag, jafnvel þó barn dvelji hjá því aðra hvora viku. Ég velti fyrir mér af hverju sumir telja það þurfi að breyta lögheimilislögum til að jafna betur opinberar bætur á milli heimila. Af hverju eru umgengnissamn- ingar eða foreldrasamningar, eins og ég kýs að kalla þá, ekki látnir ráða? Meðal almennings eru skiptar skoðanir um það hvort stjúpforeldri eigi að sjá um framfærslu stjúpbarna sinna eða ekki. Í könnun sem send var út á vegum Félags stjúp- fjölskyldna í fyrra töldu 52% svarenda að stjúpforeldrar ættu að borga til jafns við for- eldra fyrir þau börn sem eru búsett á heimilinu. En þegar tölurnar voru greindar nánar kom í ljós mikill munur á afstöðu fólks til þessa máls eftir samsetningu stjúpfjölskyldunnar. En 65% þeirra sem áttu börn saman og báðir komu með börn í sambandið voru sammála jafnri framfærslu foreldra og stjúp- foreldra en aðeins 25% stjúpforeldra sem ekki átti börn sjálfir. Tölurnar benda til þess að það að eignast barn saman skipti töluverðu um afstöðu bæði foreldra og stjúpforeldra varðandi þátttöku stjúpforeldris í kostnaði vegna barna sem búsett eru á heimilinu. Önnur afstaða virðist vera gagnvart börnum sem koma í „umgengni“ samkvæmt upp- lýsingum í nýlegri MA ritgerð í félagsráðgjöf. Þau börn virðast fá minni fjárhagslega aðstoð en börnin sem teljast búsett á heimilinu. En hvenær teljast börn búa á heimili og hvenær eru þau í umgengni? Jafnframt kom í ljós í fyrrgreindri könnun sem send var út á vegum Félags stjúpfjöl- skyldna að 25% svarenda voru þeirrar skoðunar að foreldri ætti ekki að borga meðlag með barni sem býr með foreldri og stjúpforeldri. Þessi hugmynd hefur ekki farið hátt í umræðunni um meðlagsmál hér á landi – enda spurning hversu raunhæf eða sanngjörn hún er. Hvað sem því líður þarf að skoða framfærslu barna sem eiga foreldra á tveimur heim- ilum svo tryggja megi þeim góð lífsskilyrði óháð hjúskaparstöðu foreldra og draga úr deilum sem kerfið skapar. Líklega þarf að endurskoða kerfið frá grunni sem virðist taka mið af öðrum veruleika en við búum við í dag. Félag stjúpfjölskyldna ætlar að standa að málþingi um meðlagsmál ásamt fleiri félögum þann 9. maí næstkomandi og verður áhugavert að heyra fjölbreytt sjónarmið. Verið velkomin! Hver borgar hvað fyrir hvern? Valgerður Halldórs- dóttir félagsráðgjafi og kennari heimur barna Skoða þarf fram- færslu barna sem eiga foreldra á tveimur heimilum svo tryggja megi þeim góð lífs- skilyrði, óháð hjúskaparstöðu foreldra. Í dag, föstudag, gefst tækifæri á því að fylgjast með rúningu sauðfjár í miðborginni því sauðfjár- bændur fjölmenna í höfuð- staðinn föstudaginn 4. apríl til þess að halda aðal- fund. Að því tilefni bjóða þeir gestum og gangandi til mannfagnaðar á KEX Hostel á Skúlagötu 28 milli klukkan 16 og 18. Þar munu þaulvanir rún- ingsmenn kynna verk- lagni sína og keppa um Gullklippurnar. Verð- launin eru veitt þeim sem rýir með hvað mestum glæsibrag. Meðal gesta verður sauðfé frá Hraða- stöðum í Mosfellsdal en því verður ekið í þar til gerðum sauðfjárvagni til og frá rúningsstað og mun dýralæknir sjá um að velferð þess sé í hávegum höfð. Rúið verður í portinu á KEX og mun viðburður- inn hefjast klukkan 16. Sauðfé rúið í miðborginni Laugavegi 53 Sími 552 3737 opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17 Iana Reykjavík Vor/Sumar 2014 Ný sending frá Flottir litríkir kjólar og ott spariföt á stráka . Tilboð á sumar jökkum 20% afsl. 2 FYRIR 1 4.00 / cyl -2.00 KRINGLUNNI 2. HÆÐ HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI SPÖNGINNI, GRAFARVOGI SÍMI 5 700 900 | WWW.PROOPTIK.IS prooptik.is ATHUGIÐ: Á EKKI VIÐ MARGSKIPT GLER fermingar­ veisluna Allt fyrir2014 Nóatún býður upp á úrval af hlaðborðum fyrir fermingarveisluna! sjá www.noatun.is H a m r a b o r g – N ó a t ú n 1 7 – H r i n g b r a u t – A u s t u r v e r – G r a f a r h o l t

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.