Fréttatíminn - 06.06.2014, Blaðsíða 8
Fyrsta skóflu-
stungan að
Norðurljósa-
rannsóknar-
stöð á Kárhóli
í Reykjadal
var tekin á
mánudaginn.
Ljósmynd/Utan-
ríkisráðuneytið.
Háloftafyrirbæri „Galin“ HuGmynd Einars bEn orðin að vErulEika
Norðurljósarannsóknar-
stöð rís á jörðinni Kárhóli
Fyrsta skóflustungan tekin að húsi stöðvarinnar. Það mun hýsa tæki og vinnuaðstöðu fyrir
vísindamenn auk gestastofu fyrir ferðamenn.
v eit duftsins son nokkra dýrlegri sýn en drottnanna hásal
í rafurloga? Þannig hefjast
Norðurljós Einars Benedikts-
sonar og kunn er sú saga að
skáldið og athafnamaðurinn
hafi viljað selja þetta náttúru-
undur á myrkum himni. Það
þótti framúrstefnulegt en
óraunhæft á sínum tíma, en
svo er ekki lengur. Ferða-
menn streyma til Íslands
til að sjá himnana dansa.
Nú nægir hins vegar ekki
að skoða norðurljósin, þau
á líka að rannsaka. Fyrsta
skóflustunga að Norðurljósa-
rannsóknarstöð á Kárhóli í
Reykjadal í Þingeyjarsveit var
tekin á mánudaginn en upp-
bygging stöðvarinnar er liður
í samkomulagi milli Rannís
og Heimskautastofnunar
Kína í Shanghæ, að því er
utanríkisráðuneytið greinir
frá.
Íslensk sjálfseignarstofnun,
Aurora Observatory sem
stofnuð var á síðasta ári,
mun annast uppbyggingu
og rekstur allrar aðstöðu á
Kárhóli en stofnaðilar eru At-
vinnuþróunarfélag Þingey-
inga og Atvinnuþróunarfélag
Eyjafjarðar, Atvinnuefling
Þingeyjarsveitar, Kjarni ehf
og Arctic Portal, að því er
segir á síðu ráðuneytisins.
Byggð verður rúmlega 700
fermetra bygging sem hýsa
mun rannsóknartæki og
vinnuaðstöðu fyrir vísinda-
menn auk gestastofu fyrir
ferðamenn með sýningar-
rými og litlum ráðstefnusal til
kynningar á norðurljósunum
og öðrum háloftafyrirbærum.
Rannsóknarstarfsemi hófst
haustið 2013 en starfsemi
stöðvarinnar útvíkkar frekar
þær mælingar sem þegar eru
stundaðar hér á landi þar sem
fyrirhuguð tæki og búnaður
geta gefið ítarlegri upplýsing-
ar um eiginleika norðurljósa
en núverandi búnaður.
Ýmsar stofnanir geta tekið
þátt í rannsóknum stöðvar-
innar, m.a. Veðurstofa Ís-
lands, Raunvísindastofnun
Háskóla Íslands, Háskólinn
á Akureyri, Norðurslóðanet
Íslands og Heimskautastofn-
unin, stofnun um jarðvísindi
í Kína, vísinda- og tæknihá-
skóli Kína auk annarra þar-
lendra stofnana.
Af þessu tilefni segir
Gunnar Bragi Sveinsson
utanríkisráðherra á síðu ráðu-
neytisins að alþjóðlegt sam-
starf íslenskra mennta- og vís-
indastofnana sé mikilvægur
þáttur í stefnu stjórnvalda um
þekkingaruppbyggingu og
vísindasamstarf í málefnum
norðurslóða.
Í framhaldi af skóflustung-
unni var haldið tveggja daga
málþing á Akureyri, þar sem
vísinda- og fræðimenn frá
Norðurlöndunum og Kína,
auk fulltrúa ríkja Norður-
skautsráðsins fjölluðu um
málefni norðurslóða.
Kastljós Ríkisútvarpsins
greindi frá því í október síð-
astliðnum að sveitarfélög og
opinber fyrirtæki á Norður-
landi hefðu gengið inn kaup-
samninga fyrirtækis Halldórs
Jóhannssonar, talsmanns
kínverska fjárfestisins Hu-
angs Nubo, á Kárhóli. „Fyrir-
tækið hafði keypt jörðina fyrir
ári ásamt kínverskri heim-
skautastofnun en ekki staðið
við greiðslur,“ sagði á vef
Ríkisútvarpsins í endursögn
af umfjöllun Kastljóss.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Norðurljós yfir Grundarfirði. Ljósmynd/NordicPhotos/GettyImages
Sumar 18 19. - 24. ágúst
Brussel & Brugge
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Brussel er um margt merkileg menningarborg og á sögu
allt aftur til 10. aldar. Skoðum glæsilegar byggingar
og njótum lífsins á Grand Place torginu. Heimsækjum
Brügge sem var löngum ein aðal hafnarborg landsins
og njótum náttúrufegurðar við Maas ána,
ásamt því að skoða dropasteinshella.
Verð: 128.200 kr. á mann í tvíbýli. Örfá sæti laus
Allar skoðunarferðir innifaldar!
Sp
ör
e
hf
.
Fararstjóri: Aðalheiður Jónsdóttir
PI
PA
R\
TB
W
A
-S
ÍA
Vinur við veginn
11 kg
2 kg
5 kg
10 kg
Smellugas fyrir
grillið, útileguna
og heimilið
Smellugas
Einfalt, öruggt og þægilegt!
Viktoría krónprinsessa Svíþjóðar sækir Ísland heim
síðar í mánuðinum. Ljósmynd/NordicPhotos/Getty
stjórnsýsla Góðir GEstir á lEiðinni
Viktoria prinsessa í heimsókn
Viktoría krónprinsessa
Svíþjóðar og eiginmaður
hennar, Daníel prins, eru
væntanleg hingað til lands
í boði forseta Íslands, Ólafs
Ragnars Grímssonar, dagana
18. og 19. júní.
Krónprinsessan og föru-
neyti hennar mun eiga
samverustund með Ólafi
Ragnari og Dorrit Moussa-
ieff forsetafrú, fá kynningu
á íslensku tónlistarlífi og
menningu í Hörpu, heim-
sækja Hellisheiðarvirkjun og
fyrirtækið Össur auk þess að
fara í hvalaskoðun á Húsavík.
Þá býður Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson forsætisráð-
herra þeim til hádegisverðar.
Í fréttatilkynningu frá for-
setaembættinu kemur fram
að á undanförnum árum
hafi ríkisarfar Noregs og
Danmerkur heimsótt Ísland
í boði Ólafs Ragnars. Með
þessari heimsókn Viktoríu
krónprinsessu hafa því allir
ríkisarfar Norðurlanda sótt
Ísland heim.
8 fréttir Helgin 6.-8. júní 2014