Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.06.2014, Síða 12

Fréttatíminn - 06.06.2014, Síða 12
V erulegur skortur er á fjármagni til nýsköpunarfyrirtækja hér á landi þó svo að gífurleg gróska sé í nýsköpun að sögn sérfræðinga. Helga Val- fells, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, og Gunnar Páll Tryggvason, framkvæmdastjóri Icora Partners, voru meðal þeirra sem héldu erindi á nýsköpun- arráðstefnunni Startup Iceland sem fram fór í Hörpunni fyrr í vikunni. „Það er skortur á fjármagni fyrir alla fasa „start-up“ fyrir- tækja,“ segir Helga í samtali við Fréttatím- ann. Gunnar Páll tekur undir þetta: „Það er einkennilegt að á sama tíma og rosalega mikill kraftur er í nýsköpun og sprota- fyrirtækjum hér á landi vantar fjármagn til að geta virkjað þann kraft.“ Hann segir nokkrar ástæður liggja þar að baki: „Mest af fjármagninu hér á landi er bundið í lífeyris- sjóðum. Þó svo að við viljum að sjálfsögðu að þeir passi peningana okkar vel geta þeir alveg farið í áhættusamari fjárfestingar eins og raunin er með sprota- og nýsköpunar- fyrirtæki, bara ef það er gert rétt,“ segir Gunnar Páll. „Slíkar fjárfestingar geta verið mjög arðbærar og það eru alltaf ákveðin fyrirtæki sem ná árangri og geta þannig skilað verulegum arði í þjóðarbúið, bæði í formi arðsemi af fjárfestingunni en líka í störfum og oft með því að skapa nýjar gjald- eyristekjur,“ segir Gunnar Páll. Nýsköpunarsjóður nær eini sjóðurinn Nýsköpunarsjóður (NSA) er eins og stendur eini sjóðurinn sem er að fjárfesta í sprota- fyrirtækjum að sögn Helgu, utan sjóðsins Eyrir sprotar, sem fjárfestir aðeins. „Sjóður- inn hefur bolmagn til að fjárfesta í tveimur nýjum fyrirtækjum á árinu en vildum gjarn- an fjárfesta í 5-6,“ bendir hún á. NSA hefur haldið fundi með lífeyrissjóðum með það að markmiði að hvetja þá til að fjárfesta í auknum mæli í nýsköpun. „Þetta er eigna- flokkur sem lífeyrissjóðirnir hafa ekki verið að fjárfesta mikið í undanfarin 15 ár eða svo. Þeir fjárfestu á árinu 1999 þegar þeir fóru beint inn í fyrirtæki. Svo kom netbólan og hún sprakk og ætli þeir hafi ekki brennt sig á því,“ segir Helga. „Það virðist hins vegar vilji hjá nokkrum lífeyrissjóðum að koma að þessum eignaflokki á faglegum forsendum með vönduðum vinnubrögðum þannig að ekki sé verið að taka óþarfa áhættu. Þetta er náttúrulega áhættusöm fjárfesting en það þarf hins vegar ekki að taka óþarfa áhættu með henni,“ segir Helga. Nýlega fóru fulltrúar nokkurra lífeyris- sjóða með fulltrúum NSA í heimsókn til fag- fjárfesta í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn til að kynna fyrir þeim með hvaða hætti þeir fjárfesti í nýsköpunar- og sprotafyrirtækj- um og hvernig sjóðirnir hagnast á þessum eignaflokki. Gunnar Páll segir að það hafi verið ákveðinn samhljómur í fjármálakerfinu, að fjárfestingar í nýsköpunar- og sprotafyrir- tækjum gangi ekki upp á Íslandi. „Íslenskir fjárfestar hafa misst af frábærum tækifær- um og eiga sem dæmi engan hlut í Plain Vanilla sem nýlega var metið á 12 milljarða króna. Slík fyrirtæki þurfa að fara út fyrir landsteinana og ná í peninga og þekkingu til þess að styðja við sinn vöxt. Því má spyrja: Hver ber ábyrgðina á þessum glötuðu tæki- færum hér á landi?“ segir Gunnar. Nóg af fjármagni í kerfinu Hann segir nóg af fjármagni í kerfinu. „Við höfum hins vegar ekki rétta strúktúrinn til að koma fjármagni í vinnslu við að byggja upp ný fyrirtæki. Við þurfum á þessum nýju fyrirtækjum að halda til að skapa hagvöxt og ekki er endalaust hægt að skiptast á hlutabréfum í gömlum fyrirtækjum,“ segir hann og bendir jafnframt á að nú séu 550 milljarðar í 12 skráðum fyrirtækjum hér á landi og 85 milljarðar í framtakssjóðum (Private Equity). Hins vegar séu einungis 8 milljarðar í Frumtaki og Nýsköpunarsjóði sem sinna öllum hinum stigum fjárfestinga, sprotastigi og vaxtarstigi, og það fjármagn hefur að mestu verið fjárfest fyrir löngu síð- an. „Það er pottur brotinn í þessu umhverfi. Við þurfum viðhorfsbreytingu, sérstaklega hjá lífeyrissjóðunum sem ættu að fjárfesta í sjóðum sem eru sérstaklega ætlaðir til að vinna með fyrirtækjunum, skilja áhættuna og hámarka þannig líkurnar á góðri arð- semi. Ég er bjartsýnn á að það muni takast,“ segir Gunnar Páll. Helga tekur undir það. „Af samtölum mínum við fulltrúa lífeyrissjóðanna er ég bjartsýn á að eitthvað fari að gerast. Ég veit af átta teymum sem eru að vinna í því að setja á stofn nýja fjárfestingarsjóði þar sem ætlunin er að fjárfesta í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum. Nýsköpunarsjóður er að fara af stað að fjármagna nýjan sjóð sem gengur undir vinnuheitinu Silfra. Við erum að fara af stað með fjármögnun í þann sjóð og ef allt gengur eftir er von til þess að við getum farið að fjárfesta úr honum í byrjun næsta árs,“ segir Helga. „Allir sjóðirnir átta eru að tala við lífeyris- sjóðina um aðkomu þeirra. Við fögnum því ef við verðum ekki lengur eini sjóðurinn sem er að fjárfesta í nýsköpun. Það er gott að hafa nokkra sjóði til að örva samkeppni og auka samstarf og jákvætt fyrir frum- kvöðla að hafa val. Það eru að minnsta kosti jákvæð teikn á lofti,“ segir Helga. Orkan fer í peningaleit „Ástandið er hins vegar ömurlegt fyrir nýsköpunar- og sprotafyrirtæki sem vantar fjármagn strax í dag,“ segir hún, „hvort sem þau eru á fyrstu stigum eða að leita að fjár- magni til að vaxa. Þau þurfa annað hvort að leita út fyrir landsteinana eða hægja á vexti því það fer svo mikill tími og kraftur í að leita að peningum í stað þess að selja vöruna, það er sorglegt,“ segir Helga. Gunnar Páll segir að í skýrslu McKin- sey sé talið að það þurfi að setja um þrjá milljarða árlega í nýsköpun en sú tala hefur verið um þrefalt lægri. „Þetta eru ekki háar tölur ef horft er til þess að árlega þurfa líf- eyrissjóðir að ráðstafa 150-200 milljörðum til fjárfestingar. Lífeyrissjóðir ættu að hafa mikla hagsmuni af því að skapa hagvöxt til framtíðar því styrkur þeirra er afleidd stærð af styrk hagkerfisins. Ólíkt fjárfestingu í „nýju“ hlutafé þá hefur fjárfesting í „notuðu“ hlutafé ekki áhrif á hagvöxt þótt verð þess hækki.“ „Þetta er hins vegar ekki bara spurning um peninga. Við þurfum líka að skapa hér kúltúr þar sem við verðum sífellt betri fjár- festar. Við þurfum aðila sem skilja mis- munandi viðskiptamódel, eru með puttann á púlsinum í þessum nýsköpunarheimi og geta hjálpað fyrirtækjum að koma sér á markað erlendis og mynda tengsl sem gagnast þeim. Við þurfum að byggja þessa þekkingu upp hér heima ásamt því að auka fjárfestingu í þessum geira,“ segir Gunnar Páll. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Þrátt fyrir að gífurleg gróska sé í nýsköpun og sprotastarfsemi hér á landi er verulegur skortur á fjármögnun. Helga Valfells, framkvæmdastjóri Nýsköp- unarsjóðs, segir ástandið ömurlegt fyrir sprota- og nýsköpunarfyrirtæki sem þurfa fjármagn. Sérfræðingar vilja að lífeyrissjóðir komi í auknum mæli að fjárfestingum á fyrstu stigum fyrirtækja, en þó aðeins í gegnum sérstaka sjóði sem takmarka og dreifa áhættunni. Helga Valfells, fram- kvæmdastjóri Nýsköp- unarsjóðs atvinnu- lífsins, er bjartsýn á að lífeyrissjóðirnir fari að fjárfesta meira í nýsköpun og sprota- fyrirtækjum. Gunnar Páll Tryggva- son, framkvæmda- stjóri Icora Partners, segir að skapa þurfi hér kúltúr þar sem við verðum sífellt betri fjárfestar. Ömurlegt ástand fyrir sprotafyrirtæki er hlutverk þitt að sjá um bókhaldið?- snjallar lausnir Kynntu þér lausnina á www.navaskrift.is 545 3200 navaskrift.is sala@wise.isGold Enterprise Resource Planning Silver Independent Software Vendor (ISV) TM Borgartún 26, Reykjavík » Hafnarstræti 93-95, Akureyri sími: 545 3200 » wise@wise.is » www.wise.is Fullbúin viðskiptalausn í áskrift - Microsoft Dynamics NAV Verð frá kr. pr. mán. án vsk 11.900- Mánaðarlegt gjald veitir aðgang að einu mest selda bókhaldsker landsins ásamt kostnaði við uppfærslu- og þjónustugjöld, hýsingu, afritun á gögnum, öryggisvarnir og SQL gagnagrunn. Breytilegur öldi notenda eftir mánuðum sem lágmarkar kostnað. Kernu fylgir rafræn sending reikninga, samskipti við RSK og eira. Fjöldi sérlausna í boði fyrir þá sem þurfa aukna virkni. 12 fréttaskýring Helgin 6.-8. júní 2014

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.