Fréttatíminn - 06.06.2014, Side 19
inu. Talað er um hana sem upphaf
kirkjunnar. Þarna er Jesú ekki lengur
með lærisveinum sínum heldur farinn
til himna en hafði birst þeim ítrekað. Á
hvítasunnunni var saman kominn hóp-
ur fólks sem hafði mótast af boðskap
Jesú og vildi halda honum á lofti. Þetta
er saga sem kallast svo skemmtilega á
við samtímann og lýsir því sem gerist í
fjölmenningarsamfélagi. Þau eru stödd
í Jerúsalem þegar heilagur andi kemur
yfir þau og lærisveinarnir fara að tala
tungum. Þarna er fólk frá ýmsum þjóð-
um en allt skilur það hvað þeir segja
og hugsa með sér að þeir séu að tala
sitt tungumál. Aðrir túlkuðu þennan
viðburð þannig að fólkið hefi einfald-
lega verið drukkið og sé að bulla tóma
vitleysu, en í kjölfar þessa varð kirkjan
til og þeir sem hlýddu á lærisveinana
voru skírðir. Fjölmenningarsamfélagið
er eitt af stóru málunum í dag og mér
þykir svo vænt um þessa hvítasun-
nufrásögn þar sem lögð er áhersla á að
kristin trú máir út þröskulda, múra,
tungumál og stétt. Hvítasunnan er í
raun fjölmenningarhátíð kirkjunnar.
Fagnaðarboðskapurinn er ætlaður
öllum og það er okkar hlutverk að búa
til rými þar sem allir eru velkomnir.“
Hlynnt byggingu mosku
Hún segir trúmál alltaf skipta máli
jafnvel þó hlutverk kirkjunnar sé
annað en áður fyrr. „Kirkjan er
ekki lengur dómari yfir því hvað er
gott og hvað er slæmt, eða hvernig
fólk á að haga lífi sínu. Í raun erum
við komin inn í samfélag sem
sumir myndu lýsa sem afhelguðu
þar sem trúin hefur verið fjarlægð
en ég held að þar með sé ekki öll
sagan sögð. Trúin er áfram afl sem
mótar líf einstaklingsins og hann
kemur með það inn í sameiginlega
rýmið.“ Hún tekur dæmi af þeirri
hitaumræðu sem kom upp fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar vegna
byggingar mosku í Reykjavík eftir
að oddviti Framsóknarflokksins í
borginni sagðist mótfallinn því að
úthluta lóð fyrir moskuna. „Í því
máli vil ég að kirkjunnar fólk standi
fast á því að við viljum hafa trúfrelsi
og hluti af því er að hafa frelsi og
rými til að byggja sér helgidóma.
Við eigum að standa vörð um það,“
segir hún og tekur fram að hún
hafi „að sjálfsögðu ekkert á móti
því“ að hér sé byggð moska. „Mér
fannst illa gert að nota þetta mál
til að auka við og ýta undir ótta við
fámennan hóp. Múslimar eru algjör
minnihlutahópur sem á erfitt upp-
dráttar í samfélaginu. Við megum
vera ósammála um margt, til
dæmis hvar flugvöllurinn á að vera,
en þegar kemur að mannvirðingu
verðum við að standa saman.“
Enn er um mánuður þar til séra
Jóna Hrönn Bolladóttir snýr aftur
úr sínu námsleyfi til starfa við Ví-
dalínskirkju og Kristín heldur því
sinni hefðbundnu rútínu eitthvað
áfram, að hjóla niður á Laugaveg
og keyra þaðan í Garðabæinn. Áður
en þau hjónin mæta til vinnu á
morgnana hafa þau komið sér upp
þeirri hefð að eiga smá hjónastund
á kaffihúsinu Reykjavík Roasters
við Kárastíg. „Það er frábært þegar
við erum búin að koma öllum út á
morgnana að setjast þarna saman
í kannski hálftíma, drekka topp-
kaffi og tala saman. Síðan bara
byrjar dagurinn. Yfir daginn eru
allir í sínu og jafnvel langt fram
á kvöld. Stundum eftir langan og
erfiðan dag hugsa ég með mér að
við höfum ekki náð að tala neitt
saman en gleðst svo þegar ég man
eftir að við erum að fara að hittast í
kaffi morguninn eftir.“ Það verður
síðan mun styttra í vinnuna þegar
Kristín tekur við Laugarnessókn í
haust. „Það er jákvætt að búa svona
nálægt,“ segir hún og klykkir út
með: „Ég get þá loksins hjólað í
vinnuna.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
viðtal 19 Helgin 6.-8. júní 2014
3 m/s - raforkuframleiðsla hefst 15 m/s 28 m/s 34 m/s - raforkuframleiðsla stöðvastKjöraðstæður til raforkuvinnslu
Það er allt í lagi
að það blási svolítið
Í Búrfellsstöð við Þjórsá er gagnvirk orkusýning og skammt
norður af stöðinni eru fyrstu vindmyllur Landsvirkjunar.
Þeim er ætlað að veita vísbendingar um framtíðarmöguleika
í beislun íslenska roksins. Við vonum auðvitað að sumarið
verði gott en okkur finnst líka allt í lagi þó það blási hressilega
í 50 metra hæð yfir hraunsléttunni fyrir norðan Búrfell.
Gagnvirk orkusýning í Búrfellsstöð er opin alla daga kl. 10-17.
Einnig tekur starfsfólk á móti gestum við vindmyllurnar norðan Búrfells
alla laugardaga í júlí kl. 13-17.
Jarðvarmasýning í gestastofu Kröflu er skemmtilegur áfangastaður fyrir
norðan. Þar er opið alla daga kl. 10-17.
Við Kárahnjúkastíflu tekur leiðsögumaður á móti gestum alla miðvikudaga
og laugardaga kl. 14-17.
Velkomin í heimsókn í sumar!
www.landsvirkjun.is/heimsoknir