Fréttatíminn


Fréttatíminn - 06.06.2014, Síða 30

Fréttatíminn - 06.06.2014, Síða 30
á hið hefðbundna helgarfrí. Kannski var ekki nægilega mikið talað um þetta í kristinfræðinni í gamla daga, eða kannski er bara almennt áhugaleysi fyrir tilgangi helgidaganna, allavegana veistu þetta núna lesandi góður. Hér á árum áður var þetta mikil ferða­ helgi og kjörin til þess að bregða undir sig betri fætinum og halda í útilegu eða ein­ hverskonar ferðalag, alveg sama hvernig viðraði þá þráaðist fólk við að þetta yrði fyrsta útileguhelgin, þó yfirleitt hafi há­ tíðin verið í maí og veður ekki orðið neitt sérlega gott fyrir nætursvefn í tjaldi. Við Íslendingar upplifum veður á allt annan hátt en fólk í öðrum löndum heimsins. Saltvík ´71 Einnig var mikið um skemmtanir um allt land áður fyrr, en þó flestar á vegum kirkjunnar. Frægasta skemmtun sem haldin hefur verið um þessa helgi er án nokkurs vafa Saltvíkurhátíðin sem haldin var í maí árið 1971 af Æskulýðs­ ráði Reykjavíkur og hljómsveitinni Trú­ brot, og þá helst trommara sveitarinnar, Gunnari Jökli Hákonarsyni, sem bar hitann og þungann af skipulagningu. Tónlistarhátíðin átti að vera í anda er­ lendra hátíða eins og Woodstock í Banda­ ríkjunum og Isle of Wight í Bretlandi sem höfðu verið árin áður, og nú átti að fá þessa menningu til Íslands, með viðeigandi rútu­ ferðum, músík og frelsi frá foreldrunum sem voru svo gamaldags í allri hugsun. Allar helstu hljómsveitir landsins komu fram á þessari hátíð, að sjálfsögðu var Trúbrot þeirra stærst en ásamt þeim voru þarna vinsælar sveitir eins og m.a. Ævin­ týri, Náttúra og Rooftops í bland við þekkt­ ustu nöfnin úr þjóðlagageiranum sem að sjálfsögðu sungu um stríðshrjáða Amerík­ ana og andúð á kerfinu í heild sinni, mjög nauðsynlegt á hátíðum sem þessari. Í fjölmiðlum dagana eftir þessa hvíta­ sunnuhelgi mátti lesa fréttir og greinar um mikla unglingadrykkju og eiturlyfja­ neysla var af einhverju tagi, eitthvað af hassi og LSD fannst á einhverjum ung­ mennum í Saltvík og foreldrar voru áhyggjufullir um þróun ungu kynslóðar­ innar. Einnig var skrifað um það að um­ gengni hafi verið slæm og eitthvað um slagsmál og einn blaðamaður talaði um að það væri almennur leiðindabragur yfir þessari hátíð. Foreldrar áhyggjufullir Foreldrar leyndu ekki skoðunum sínum og voru alls ekki ánægðir með þessa há­ tíð og fordæmdu hana mjög í fjölmiðlum, enda var aldurstakmarkið ekki nema 14 ár, sem er í yngri kantinum. Foreldrum gafst þó tækifæri til þess að kaupa sig inn um afmarkaðan tíma á há­ tíðinni til þess að kíkja á aðstæður og hafa auga með börnunum, Fyrir þessa heim­ sókn var miðaverðið 700 krónur og í kjöl­ farið af einni slíkri var þetta skrifað í Vel­ vakanda Morgunblaðsins af reiðri móður; „Ekki var aðkoman fögur, þarna þvæld­ ust börnin um eins og heimilislausir aum­ ingjar köld og blaut, svo ekki sé minnst á þann hluta sem var drukkinn eða átti við timburmenn að stríða.“ Ekkert ósvipað því sem maður sér um verslunarmannahelgina í dag, en ég er ekki viss um að það verði í boði fyrir for­ eldra að kaupa sig inn á Þjóðhátíð í Eyjum part úr degi til þess að fylgjast með, en það væri kannski ráð? Þó var eitthvað um það að foreldrarn­ ir hafi bara skemmt sér jafn vel, ef ekki betur en margur unglingurinn, miðað við mörg greinaskrif. Þessi hátíð fór misvel ofan í landann, og aðallega skrifaði fólk um þessa hátíð af mikilli neikvæðni, lýsti henni sem miklu svalli og fordæmdu gróðahugsun þeirra sem að henni stóðu, hvað það varðar hef­ ur lítið breyst. Í dag eru flestar hátíðir for­ dæmdar nema þær séu í tengslum við fjár­ öflun íþróttafélaga. Tónlistarmennirnir voru þó almennt ánægðir með framtakið, en veðrið var leið­ inlegt þessa helgi og þetta sagði Björgvin Halldórsson í bók sinni „Bo & Co“; „Það var ekkert sérstaklega gaman að spila þarna. Samt elska popparar að koma Í upphafi vikunnar fóru margir Íslendingar að velta fyrir sér hvað gerðist um hvítasunn­ una? Af hverju er þessi helgi haldin hátíðleg hjá kirkjunnar mönnum og hverju megum við þakka þessa þriggja daga helgi? Hvítasunnnan er þriðja stærsta trúarhátíðin á Íslandi, á eftir pásk­ um og jólum. Á vef kirkjunnar er fjallað um hvítasunnuna og þar stendur: Hvítasunna er stofndagur kirkjunnar, og einskonar vígsludag­ ur hinnar almennu kirkju, og haldin 7 vikum eftir páska. Margir Íslendingar hafa ekki hugmynd um þessa staðreynd og flestir hafa alltaf litið á þessa helgi sem trúarlega verslunarmanna­ helgi og fagnað auka frídegi ofan Trúarhátíð - eða bara löng helgi Fyrsta ferðahelgi ársins er fram undan, en veit fólk almennt hvað hvítasunnan merkir í kirkjudagatalinu? Krakkarnir í Saltvík voru í það minnsta ekki að hugsa um það árið 1971. Við Ævin- týramenn gerðum margar tilraunir í þessa átt. Margar heppnuðust ágætlega. fram á útitónleikum. Undir berum himni getur skapast göldrótt stemning. En það þarf að venja fólk við þetta. Ala upp púp­ likum sem er reiðubúið að koma og hlýða á gott rokk utandyra án þess að missa heilsuna af drykkjuskap. Við Ævintýra­ menn gerðum margar tilraunir í þessa átt. Margar heppnuðust ágætlega“. Útihátíðarflopp Margar útihátíðir hafa verið haldnar eftir þetta sem fengu ekki brautargengi. Fræg er hátíðin sem haldin var í Viðey um verslunarmannahelgina 1984, þar sem afskaplega fáir mættu. Húsafell 1969 þar sem 300 manns vissu ekki hvernig átti að skemmta sér, þar sem þetta var nýlunda hér á landi. Á tíunda áratugnum voru nokkrar hátíðir haldn­ ar í Þjórsárveri og við Eldborg, sem var að vísu endurtekin árið 2001 og einn blaðamaður skrifaði grein sem nefndist „Aldrei aftur Eldborg“, svo ekki hefur hún verið endurtekin, ennþá. Biskupinn steig ekki dans Kirkjan hefur alltaf haldið hvítasunn­ una mjög hátíðlega og lét ekki sitt eftir liggja þessa helgi árið 1971, á meðan 10 þúsund ungmenni hurfu úr bænum í Saltvík þá gaf biskup út þá reglu að bannað væri að dansa á öldurhúsum Reykjavíkur þessa helgina, og voru veitingahúsaeigendur neyddir til þess að setja borð á öll dansgólf svo enginn slysaðist til þess að dansa, en bannið gekk ekki yfir barsölu. Það mátti sem­ sagt fara út og fá sér í glas, en alls ekki dansa. Þetta fór afskaplega illa í fólk og var ekki gert aftur, þó svo að biskup hafi sagt þetta vera skiljanlegt þar sem Guð væri allsstaðar, líka á öldurhúsum Reykjavík­ ur. Guð lét samt ekki sjá sig í Saltvík, þar var dansað alla helgina. Hvað á að gera um helgina? Íslendingar tuða og rífast yfir þjóðkirkj­ unni og margir eru á móti kristinfræði í skólum og óþarfa trúboði, en við fögn­ um öllum helgidögunum sem trúnni fylgja. Margir þora ekki að segja sig úr þjóðkirkjunni því það er svo gott að fá svona auka sunnudaga, eða miðviku­ daga og fimmtudaga inn í vinnuvikuna. Kannski er það hræsni, en það væri það kannski líka ef við svæfum út á upp­ stigningardag fegin fríinu, nýbúin að segja okkur úr þjóðkirkjunni, svo margir láta sig bara hafa það. Engin er útihátíðin um hvítasunnuna þetta árið svo það verður að finna sér eitthvað annað til dundurs í þetta sinn, kannski er bara best að fara í sund svona miðað við veðurspá, en í guðanna bænum ekki dansa. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Ævintýri í Saltvík ´71. - Samkvæmt 840.000 notendum GoodReads! Sástu myndina? Hér er framhaldið „Roth kann að skrifa. Flókin fléttan og ógleymanleg umgjörðin skapa sögu sem mun ekki svíkja aðdáendur fyrstu bókarinnar“ - Publishers Weekly um Andóf www.bjortutgafa.is JÚNÍTILBOÐ! Önnur bókin í hinum geysivinsæla Divergent bókaflokki, er komin út í kilju og er á sérstöku útgáfutilboði hjá öllum betri bóksölum! Framhald myndarinnar! 2,799,- Fullt verð 3.299,- www.siggaogtimo.is Verð kr 144.000.- parið 30 hvítasunnan Helgin 6.-8. júní 2014

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.