Fréttatíminn - 06.06.2014, Blaðsíða 48
48 ferðalög Helgin 6.-8. júní 2014
SnjallSímanotkun í utanlandSferðinni
Þ að eru sennilega ófáir snjallsíma-notendur sem
freistast til þess að setja
myndir úr utanlands-
ferðinni inn á Facebook.
Jafnvel þegar þeir eru
ekki tengdir þráðlausu
neti. Sá sem það gerir má
búast við að símareikn-
ingurinn hækki um leið
um 45 krónur. Verðið á
þessari þjónustu lækkar
hins vegar um meira
en helming þann 1. júlí
þegar ný hámarksverð
ESB, á símaþjónustu
innan EES svæðisins
taka gildi. Þá mun kosta
um 20 krónur að setja inn
færslu með mynd en til
samanburðar kostar um
700 krónur að uppfæra
Facebook úr íslenskum
snjallsíma í Bandaríkj-
unum.
Það borgar sig því að
takmarka notkunina við
þann tíma sem síminn er
tengdur þráðlausu neti,
til dæmis á hótelinu eða á
kaffihúsi. Eins gæti verið
hagstætt að kaupa áskrift
að sérstökum þjónustum
sem símafyrirtækin
bjóða þeim sem vilja nota
símann í útlöndum því
eins og sjá má hér fyrir
neðan getur reikningur-
inn rokið upp við það eitt
að nota Google Maps í
smástund eða fylgjast
með fréttum að heiman.
Símtölin lækka líka
Allur götur síðan árið
2007 hefur Evrópusam-
bandið sett verðþak á
notkun farsíma milli að-
ildarlandanna. Ástæðan
er sú að verð á símanotk-
un í útlöndum fylgdi ekki
almennum lækkunum
á notkun farsíma innan
hvers lands samkvæmt
því sem kemur fram á vef
Póst- og fjarskiptastofn-
unar. En stofnunin gefur
út hvert hámarksverðið
skuli vera hér á landi.
Fyrst um sinn náði
verðþakið aðeins til sím-
tala og skilaboða en síð-
ustu ár hafa einnig verið
sett takmörk á verðlagn-
ingu á gagnanotkun.
Eins og sjá má á töfl-
unni hér fyrir neðan þá
hefur verð á símtölum frá
einu Evrópulandi til ann-
ars lækkað um helming
frá árinu 2011 og sama
má segja um kostnað
við að senda sms. Verð á
gagnanotkun verður hins
vegar nærri fjórfalt lægri
eftir mánaðamót en það
var þremur árum síðan.
Ódýrara að deila fríinu
með fólkinu heima
Um mánaðamótin lækkar hámarksverð Evrópusambandsins á símakostnaði innan
Evrópska efnahagssvæðisins. Íslenskir túristar njóta góðs af því.
Þróun hámarksverða ESB í íslenskum krónum að viðbættum virðisaukaskatti.
Að hringja Að svara Sent SMS Móttaka SMS Gagnamagn
Sumarið 2011 72,52 kr./mín. 22,79 kr./mín. 22,79 kr./mín. frítt —
Sumarið 2012 60,90 kr./mín. 16,80 kr./mín. 18,90 kr./mín. frítt 147,02 kr./MB
1. júlí 2013 47,63 kr./mín. 13,89 kr./mín. 15,87 kr./mín. frítt 89,30 kr./MB
1. júlí 2014 37,04 kr./mín. 9,74 kr./mín. 11,69 kr./mín. frítt 38,99 kr./MB
Heimild: Heimasíða Póst- og fjarskiptastofnunnar
Það er að ýmsu að hyggja þegar
snjallsíminn er notaður ytra.
Kristján
Sigurjónsson
kristjan@turisti.is
Kostnaður við að nota netið í íslenskum síma á meginlandi Evrópu
Mb*
Kostnaður
í dag
Kostnaður
frá 1.júlí
Netið, 5 síður 2,5 223.3 97.5
Facebook, 5 mín. 2 178.6 78.0
Facebook, færsla með mynd 0,5 44.7 19.5
Tölvupóstur, senda 10 stk. 1 89.3 39.0
Youtube, 4 mín. 8 714.4 311.9
Google maps, 10 mín. 4 357.2 156.0
Sækja eitt app 5 446.5 195.0
*fjöldi megabæta er byggður á upplýsingum af heimasíðum nokkurra
símafyrirtækja. Heimild: Heimasíða Póst- og fjarskiptastofnunnar
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
SMART CONSOLE
LEIKJATÖLVA
16.900
Öflug spjald- og leikjatölva,
5” kristaltær HD snertiskjár
ÓGRYNNILEIKJANÆR ÓTAKMARKAÐ ÚRVAL AF LEIKJUM OG FORRITUM FYRIR ÞESSA ÓTRÚLEGU GRÆJU
NÝR BÆKLINGUR STÚTFULLURAF SPENNANDI TÖLVUBÚNAÐI
4BLS
SMELLTUÁ KÖRFUNANETBÆKLINGUR Á WWW.TOLVUTEK.IS MEÐ GAGNVIRKUM KÖRFUHNAPP
SUMARHÚSGÖGN
tekk company og habitat
kauptún 3
sími 564 4400
vefverslun á www.tekk.is
opið mánudaga til laugardaga kl. 11-18
og sunnudaga kl. 13-18
Zeno garðsett – borð og fjórir stólar
hægt að leggja saman. – yfirbreiðsla fylgir.
99.200 kr.
blanche
fjölbreytt garðhúsgagnalína
hvít epoxylökkuð álgrind
sólstóll m/höfuðpúða 48.000 kr.
sólbekkur 79.000 kr.
garðborð 149.000 kr.
klappstóll 24.500kr.
safaristóll 39.000 kr.
maui sólstóll
með taubaki 17.250 kr.
summer plastáhöld
verð frá 750 kr.
birDy plastdiskar
verð frá 750 kr. stk.
teva sólstóll/bekkur
fjórir litir – 14.500 kr.