Fréttatíminn - 06.06.2014, Síða 52
S ólveig er fullkomin fyrir sumar-stemninguna. Þetta er kjörbjór fyrir alla dagana sem hitinn fer
yfir tuttugu gráður,“ segir Valgeir Val-
geirsson, bruggmeistari í
Borg brugghúsi.
Valgeir og félagar hafa
í nógu að snúast þessa
dagana því í vikunni var
bjór númer 25 frá Borg
settur í sölu í Vínbúðunum.
Nýi bjórinn er sumarbjór
Borgar og kallast Sólveig.
Auk þess getur bjóráhuga-
fólk nú nælt sér í flösku af
Garúnu nr. 19 sem til þessa
hefur eingöngu verið seld
erlendis. Garún hefur vakið
athygli og er til að mynda
með 98 í einkunn af 100
mögulegum á Ratebeer.
com. Þá gleðjast trúlega
einhverjir Borgaraðdá-
endur yfir Sumargulli, nýja
sumarbjórnum frá Ölgerð-
inni, en þar er endurnýtt
uppskriftin af Bjarti nr. 4,
einum af fyrstu Borgar-
bjórunum. Hann er af
blond-gerð, ljós og undir-
gerjaður bjór með þýskum
og slóvenskum humlum. Hann er jafn-
framt ferskur með blómlega angan og
ávaxtaríkan maltkeim.
„Við höfum því miður ekki undan
í framleiðslunni í Borg og urðum að
hætta framleiðslu á Bjarti fyrir um ári
síðan. Það var mikil eftirsjá að honum,
bæði hér innanhúss og hjá viðskipta-
vinum. Það er því ákveðið gleðiefni að
Bjartsbragðið sé að finna í nýju Sumar-
gullsdósunum,“ segir Valgeir.
Hann segir að þeir
Borgar-menn hafi gert
þó nokkrar tilraunir með
hveitibjór og Sólveig nr.
25 sé afrakstur þeirrar
tilraunavinnu. „Hún er
þýskur hveitibjór í grunn-
inn sem búið er að poppa
upp með mjög miklu magni
af amerískum humlum,“
segir bruggarinn.
Sérstakt ger er notað
við bruggunina sem gefur
Sólveigu ákveðna bragð-
og lyktarundirstöðu þar
sem tónar banana og
neguls koma skýrt fram.
Í bragðinu má svo einnig
greina mangó, ástaraldin,
greipaldin og fleiri suðræna
ávexti.
Nú eru komnir 25 bjórar
frá ykkur í Borg. Er enda-
laust hægt að koma með
nýja bjóra?
„Já. Bjór er gríðarlega
víðfeðmt viðfangsefni. Það
eru óendanlega margar hliðar sem
hægt er að skoða og pæla í. Og við
bruggmeistararnir erum áhugasamir
um að þróa okkur áfram og höfum verið
heppnir að fá tækifæri til þess. Þetta
geta verið mjög góðir dagar í vinnunni,“
segir Valgeir Valgeirsson.
52 matur & vín Helgin 6.-8. júní 2014
vín vikunnar
Jæja það hlaut að koma að því; góð veð-
urspá fyrir allt landið. Og það um helgi og
hvítasunnuhelgi að auki. Loksins eru veður-
guðirnir að verðlauna okkur fyrir að hafa
þraukað harðan veturinn. Þjóðin hlýtur að
flykkjast út á þjóðvegina og dusta rykið af
ferðagræjunum. Það verður sungið á hverju
einasta tjaldsvæði landsins um helgina og
þá er nú gott að vera praktískur í vínvali.
Gleymdu vínflöskum með korktappa, það er
bara vesen. Þú gætir tekið vín með skrúfu-
tappa með þér en í ferðalögin slær ekkert
út beljuna, vín í kassa. Það þarf að vísu ekki
mikið að segja Íslendingum frá kassavínum
því um samkvæmt ársskýrslu ÁTVR 2013
er um helmingur alls léttvíns sem selt er á
Íslandi kassavín í þriggja
lítra umbúðum.
Þegar í bústaðinn eða
á tjaldsvæðið er komið er
um að gera að vera ekkert
að pæla mikið í fínum vín-
glösum, bara nota það sem
hendi er næst. Eitt breytist
þó ekki. Það er alveg jafn
mikilvægt að velja vínið
vel, jafnvel mikilvægara í útileguna, því ef
vínið er vont situr þú uppi með heila 3 lítra í
stað einnar flösku. Því er gott að vanda valið
og prófa sig áfram. Eðli málsins samkvæmt
eru vínin sem rata í kassana flest af ódýrari
gerðinni en inn á milli reynast fínustu vín.
Sum kassavín fást einnig í
flöskum og það er ágætis
hugmynd að prófa sig áfram
með því að kaupa fyrst
flöskuna og ef vel reynist
þá er óhætt að skella sér í kassann, skutla
honum í bílinn og leggja í hann.
Sérstaklega er hægt að gera fín kaup í
vínum frá hinum svo kölluðu Nýja-heims-
löndum sem eru öll lönd nema Evrópulönd.
Í Chile, Argentínu, Bandaríkjunum og
Ástralíu er greinilega töluverður metnaður
í að setja ágætisvín í kassaumbúðir og það
sama á reyndar við um Gamla-heimslöndin
Þýskaland og Ítalíu. Vín vikunnar kemur
einmitt frá Chile þar sem hinum ágæta
framleiðanda Chonco Y Toro hefur tekist vel
upp með blöndu af þrúgunum Carmenere og
Cabernet Saugvignon og það er reserva að
auki. Fyrst og fremst er gott að hafa þetta
vín með í bústaðinn eða útileguna vegna
þess að það er frábært með grilluðu kjöti og
það er skylda að grilla í útilegunni. Það nær
líka að vera nógu milt og létt eikað til þess
að vera gott til að sötra á meðan steikin grill-
ast – þó auðvitað ættir þú að vera með góðan
og dökkan sumarbjór við það tækifæri.
Reserva Concha y Toro
Carmenere Cabernet Sauvignon
Gerð: Rauðvín
Þrúga: Blanda af Carmenere og
Cabernet Saugvignon
Uppruni: Chile, 2012
Styrkleiki: 13%
Verð í Vínbúðunum: kr. 6.269 fyrir 3L
Beljuna í bílinn
Sumargull
500 ml. 5%
395 kr. í Vínbúðunum.
Bjór Tveir nýir Bjórar frá Borg og einn undir nýju merki
Sólveig kemur með sumarið
Valgeir Valgeirsson og félagar í Borg brugghúsi senda frá sér sumarbjórinn Sólveigu sem er
ferskur hveitibjór. Þar að auki er Garún loks fáanleg hér á landi en hún hefur til þessa eingöngu
verið seld í Bandaríkjunum.
Valgeir bruggmeistari var glaður þegar fyrstu flöskurnar af Sólveigu komu úr framleiðslu.
Sólveig
nr. 25
Sumarbjór
6%
330 ml.
494 kr. í Vín-
búðunum.
Garún
nr. 19
11,5%
330 ml.
757 kr. í Vín-
búðunum.
LAGERSALAN | KAUPTÚNI 3 - GARÐABÆ (GEGNT IKEA) | SÍMI 861 7541
NÝ SENDING AF SÓFUM
Á FRÁBÆRU VERÐI
OPIÐ MÁNUDAGA TIL LAUGARDAGA KL. 11-18
OG SUNNUDAGA KL. 13-18
SÍMI 861 7541
SVEFNSÓFI
59.000 KR.
TUNGUSÓFI / SVEFNSÓFI
169.000 KR.
SÓFI 3ja sæta
95.000 KR.
SÓFI 2ja sæta
78.000 KR.