Fréttatíminn - 06.06.2014, Síða 64
Þ að eru keppnir í hjólreiða-árinu sem alvöru hjólreiða-menn kalla „Grand Tours“
og „Monuments“. Tour de France
hjólreiðakeppnin er sennilega sú
eina sem er þekkt meðal almenn-
ings. Við eigum okkar eigin Tour
de France á Íslandi – það er Bláa-
lónsþrautin. Hún er ef til vill ekki
af sömu stærðargráðu og Tour
de France en í einn dag í júní ár
hvert snúast hjólreiðar á Íslandi
allar um Bláa lónið.
Keppnin var fyrst háð árið
1996 og hefur síðan náð því að
verða mikilvægasta hjólakeppnin
sem fram fer árlega. Hjólreiða-
menn, sem þykjast ekkert vera
uppteknir af keppnum, æfa sig í
leyni allan veturinn í því skyni
að skafa mínútur af tímanum sín-
um frá fyrra ári, endalausar um-
ræður fara fram á umræðusíðum
á netinu um hvaða drykki best
sé að innbyrða, hvaða tegund af
hjóli skuli nota, hvers konar dekk
og þar fram eftir götunum.
Keppnin hefst í Hafnarfirði, þar
sem 709 keppendur munu raða
sér upp við rásmarkið í ár. Sum-
ir munu láta kappið bera skyn-
semina ofurliði og sprengja sig í
upphafi til að verða meðal þeirra
fyrstu til að ná á malarveginn,
aðrir munu vinna sig jafnt og þétt
í gegnum brautina. Mitt ráð er:
vinnið saman í hópum og látið síð-
ustu 10 kílómetrana skera úr um
hver er bestur. Allir munu keppast
um að komast yfir endamarkið.
Eitt það sem gerir Bláalóns-
þrautina svona eftirsóknarverða
er það sem gerist að keppni lok-
inni. Eftir tvær til þrjár klukku-
stundir í hvaða aðstæðum sem
veðrið og brautin bjóða upp á
í það skiptið, hvað er meira af-
slappandi en hið róandi umhverfi
Bláa lónsins þar sem baráttan er
endurupplifuð og rýnt er í hverja
einustu sekúndu sem sparast
hefði mátt í tíma?
Þetta verður erfitt – á því leik-
ur enginn vafi – en ég lofa því að
þú munt koma aftur á næsta ári
– með það að markmiði að bæta
tímann þinn.
Keppni allra keppna
David Robertson
Formaður hjólreiðanefndar ÍSÍ
ritstjorn@frettatiminn.is
B láalónsþrautin fer fram á morgun, laugardag. Þetta er árleg fjallahjólakeppni
þar sem keppendur hjóla 60 km leið
frá Hafnarfirði um Krýsuvíkurveg,
inn Djúpavatnsleið, vestur Suður-
strandarveg alla leið að Bláa lóninu
og enda svo á sundspretti í lóninu
sem þó er ekki hluti af keppninni.
Keppt er í karla- og kvennaflokki og
5 aldursflokkum. Einnig er liða -og
firmakeppni með 3-5 þátttakendum
í hverju liði. Það er elsta starfandi
hjólreiðafélag Íslands, hið sjötuga
HFR (Hjólreiðafélag Reykjavíkur)
sem stendur að þessari keppni
ásamt Bláa lóninu og Erninum í
nítjánda sinn. Það mættu þó aðeins
12 keppendur til leiks í fyrsta mótið
árið 1996 en í ár er uppselt þar sem
keppnin þolir aðeins 600 keppend-
ur, það komast hreinlega ekki fleiri
ofan í lónið.
Einfaldar reglur
Lengi vel voru ekki margir sem tóku
þátt í þessari jaðarkeppni og það tók
heil 10 ár að ná 100 keppendum en
í takt við hjólreiðabyltinguna hér-
lendis en sprenging hefur orðið
í fjölda keppenda undanfarin 3
ár. Reglurnar eru einfaldar. Þú
átt (helst) að vera á fjallahjóli,
þetta er jú fjallahjólakeppni,
og hjólið verður að vera
mannaflsdrifið, Þú mátt
ekki nota liggistýri, þú
átt að vera með hjálm
og þar sem keppnin
fer fram á opnum
vegum ber kepp-
endum að fylgja
umferðarreglum
sem ætti ekki að vera mikið mál á fá-
förnum sveitavegum en verra þegar
þú lendir á rauðu ljósi í Grindavík á
lokasprettinum.
Aðstæður oft erfiðar
Um þriðjungur keppninnar
er á malbiki en restin er
á fáförnum malar-
vegum þar sem
fleiri hjól komast
fyrir hlið við
hlið. Ef það er
mikil bleyta á
malarvegunum
verður keppnin
hið mesta drullu-
mall og ekki þurr
þráður á keppend-
um. Í þurru veðri,
eins og lítur út fyrir
í ár, verður keppnin
hins vegar mun
hraðari og mikil-
vægt að
hafa
gott plan um hvernig er best að
hjóla leiðina. Það getur verið
mjög árangursríkt að finna sér
hóp keppenda sem hjólar á svip-
uðu tempói og þú og skiptast
svo á að leiða hópinn. Það er
miklu léttara að hjóla í
hóp. Það verður svo
væntanlega hart
barist um efstu
3 sætin. Bar-
áttan verður
þó varla
harðari en í
fyrra þegar
hjólreiða-
maður ársins,
Hafsteinn
Ægir Geirs-
son, sigraði
Norðmanninn
Martin Haugo
með einnar
sekúndu mun eftir
tæplega tveggja
klukkustunda
baráttu þeirra í
milli. Keppnin
verður vonandi
jafn æsispenn-
andi í ár. -tj
Drullumall á Reykjanesi
600
500
400
300
200
100
0
9́6 9́7 9́8 9́9 0́0 0́1 0́2 0́3 0́4 0́5 0́6 0́7 0́8 0́9 1́0 1́1 1́2 1́3 1́4
Þáttakendur í Blue lagoon challange
keppnisleiðin
1996-2014
12 12 20
42 52
73 82
94 100
132 129
300
323
385
400
550
600
188
gaffall
Hinn alíslenski Lauf
gaffall er laufléttur og
fullkominn í keppnina.
stell
Það er best að vera
á s.k. hardtail fjalla-
hjólum með enga
dempun að aftan.
dekk
Dekkin eiga að
vera sem fínust
og grennst og
komast hratt yfir.
í Bláalónsþrautinni er hjólað á malbiki og malarvegum, í drullu og lausamöl, auk þess
sem sumir vegir eru eins og að
hjóla á þvottabretti. Til að ná sem
bestum árangri er nauðsynlegt að
velja rétta hjólið í verkið. Frétta-
tíminn fékk einn fremsta hjólreiða-
mann landsins, Óskar Ómarsson,
til aðstoðar.
„Í þessari keppni þarftu hjól sem
rúllar hratt og er eins létt og hægt
er. Þú þarft ekki mikla fjöðrun
þannig að svokölluð hardtail eða
fjallahjól eingöngu með fjöðrun að
framan er besti kostur-
inn. Svo er ennþá
betra ef hjólið er
með 29 tommu
dekkjum og með
hinn alíslenska
Lauf gaffal sem
framdempara,“
segir Óskar.
Að hans sögn er
munurinn sá um-
fram aðra fram-
dempara að Lauf
gaf fallinn er miklu
léttari og byrjar að dempa
Svona hjól er best
í Bláa lónið
Hafsteinn Ægir
Geirsson sigur-
vegari Bláalóns-
þrautarinnar í
fyrra drullugur
upp fyrir haus
eftir harða
keppni.
fyrr en aðrir gafflar því hann er
næmari fyrir ójöfnum. „Það hlífir
þér betur og kemur þér hraðar yfir
ójöfnur eins og er mikið um í þess-
ari keppni.“
Aðspurður um dekkjaval segir
hann að það þurfi ekki gripmikil
dekk í keppnina og best að vera á
eins fínum dekkjum og hjólið leyfir.
Svo er bara að drífa sig af stað. -tj
GOLD PLATED
SPECIALIZED BICYCLES & COMPONENTS
KRÍA HJÓL GRANDAÐGARÐUR 7 101 REYKJAVÍK s.5349164
THE FSR EPIC - THE ONLY FULL-SUSPENSION
XC BIKE TO WIN OLYMPIC GOLD
AND MULTIPLE WORLD CHAMPIONSHIP GOLD MEDALS
GOLD STANDARD REDEFINED. SPECIALIZED.COM
64 frítíminn Helgin 6.-8. júní 2014