Fréttatíminn - 16.05.2014, Qupperneq 24
Því ein-
faldari sem
maturinn
er því betri
er hann.
www.odalsostar.is
Þessi margverðlaunaði ostur, framleiddur í
Mjólkursamlagi KS á Sauðárkróki frá því árið 1965,
rekur ættir sínar til danska bæjarins Maribo á Lálandi.
Það sem gefur Maribó-ostinum sinn einkennandi
appelsínugula lit er annatto-fræið sem mikið er notað
í suðurameríska matargerð. Áferðin er þétt en bragðið
milt með votti af valhnetubragði. Frábær ostur til
að bera fram með fordrykk, í kartöflugratín eða á
hádegisverðarhlaðborðið.
MARIBÓ
HLÝLEGUR
É
g kom hingað í frí sum-
arið 2007 og féll kylliflöt
fyrir landinu,“ segir
Soledad, eða Sol eins og
hún er kölluð, sem hefur
nú búið hér í tæpt ár og starfað sem
kokkur á Bergsson Mathús. „Ég kom
beint frá London þar sem ég hafði
búið og starfað í tvö ár en var alveg
búin að fá mig fullsadda af stórborg-
inni. Eftir fríið var frekar að losna
við Ísland úr huganum en planið var
að yfirgefa London og finna vinnu í
Kanada eða Ástralíu,“ segir Sol sem
ákvað á endanum að prófa Ísland á
leið sinni til Kanada. „Það hefur verið
ótrúleg lífsreynsla að eyða þessu
tæpa ári hér og mig langar ekkert að
halda ferðalaginu áfram. Mig langar
bara til að vera hér.“
Alin upp á Benidorm
Sol er frá Madríd en ólst upp í sól-
ríkum bæ sem er Íslendingum góðu
kunnur, Benidorm. Að alast þar upp
á átti stóran þátt í vali Sol á fram-
tíðarstarfi sínu. „Það kom eiginlega
ekkert annað til greina hjá mér. Á
Benidorm vinna flestir íbúar við ein-
hverskonar ferðaþjónustu og ég hékk
ég alltaf með eldri krökkum sem
unnu öll sumur. Oftar en ekki hékk
Aldrei viljað gera annað
en að kokka og ferðast
Soledad Sanchez hefur unnið
sem kokkur á mörgum helstu
veitingastöðum Spánar, þar á
meðal „El Bulli“, sem er talinn
hafa verið einn besti veitinga-
staður heims. Ísland átti að
vera stutt stopp en eftir að
hafa verið hér í tæpt ár vill hún
hvergi annarsstaðar vera. Í
dag nýtur hún þess að ferðast
um landið og kokka einfaldan
heimilismat á Bergsson Mathús.
ég fyrir utan hótelveitingastað sem
vinur minn vann á, gerði ekki neitt og
beið eftir að vinur minn lyki vaktinni.
Þá vildi svo til að það vantaði aðstoð í
eldhúsinu og ég var dregin inn, bókstaf-
lega,“ segir Sol sem hefur verið í eldhús-
inu meira og minna síðan. „Ég byrjaði í
uppvaskinu en vann mig hægt og rólega
upp metorðastigann, fór svo í skóla og
hef ekki hætt að vinna síðan.“ Sol segir
Valencia-héraðið, þar sem Benidorm er
að finna, vera kjörinn stað fyrir fólk sem
vill læra til kokksins því þar séu margir
góðir kokkar og mjög góðir skólar.
„Mér hefur alltaf þótt gaman að elda og
aldrei viljað starfa við annað. Það besta
við þetta starf er frelsið sem það hefur
veitt mér, frelsi til að ferðast og kynnast
nýjum stöðum, nýjum matarvenjum og
nýju fólki.“
Erfitt að klífa metorðastigann í
karlaveldi
Sol hefur unnið á mörgum fínustu
veitingastöðum Spánar og þar á meðal
á hinum sögufræga katalónska stað,
Sol vann á hinum sögufræga
veitingastað „El Bulli“
en það er ekkert grín að
komast þar að. Ekki bara
vegna vinsælda staðarins
heldur segir Sol vera erfitt
að komast að sem kona á
Spáni. Á „El Bulli“ störfuðu
55 kokkar, tveir þeirra voru
konur. Ljósmynd/Hari
24 viðtal Helgin 16.-18. maí 2014