Fréttatíminn - 21.03.2014, Side 14
www.volkswagen.is
Fullkominn ferðafélagi
Tiguan kostar aðeins frá
5.360.000 kr.
Volkswagen Tiguan eyðir aðeins frá 5,8l /100 km
Volkswagen Tiguan
Í Volkswagen Tiguan sameinast fullkomið fjórhjóladrif, sparneytin dísilvél
og einstakir aksturseiginleikar sem veita þér algjört ferðafrelsi. BlueMotion
tæknin frá Volkswagen leggur áherslu á lágmarks eyðslu eldsneytis og
hámarks umhyggju fyrir umhverfinu. Kynntu þér kosti Volkswagen Tiguan
og veittu þér sannkallað frelsi til að ferðast.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d:
á
lfe
lg
ur
, s
va
rt
ir
þ
ak
bo
ga
r
og
lj
ós
ka
st
ar
ar
í
fr
am
st
uð
ar
a
.
Gæti kostað tíu þúsund kall
að skoða landið sitt
Verði ákveðið að innheimta gjald á helstu ferða-
mannastöðum landsins gæti það kostað hjón
með tvo stálpaða unglinga rúmlega fjörutíu
þúsund krónur að fara hringinn í kringum
landið, auk Vestfjarða og Snæfellsness, og
heimsækja þá alla. Nýverið hófst gjald-
taka á Geysissvæðinu og þurfa gestir
að reiða fram 600 krónur. Nú þegar
er innheimt 350 króna gjald fyrir
að fá að skoða Kerið í Grímsnesi og
einnig varð gerð tilraun á hverasvæðinu
við Hveragerði með að innheimta 200 krónur
fyrir heimsókn þangað. Fréttatíminn gerði
lista yfir helstu ferðamannaperlur
landsins óháð eignarhaldi og reiknaði
út hvað það myndi kosta að heimsækja
þær allar - ef aðgangseyrir yrði líkt og í
Kerinu, 350 krónur, sem er samt sem áður
250 krónum minna en aðgangur að Geysissvæðinu kostar.
Frítt er á Geysi fyrir börn 15 ára og yngri og því þyrftu
stálpaðir unglingar, 16 og 17 ára hins vegar að reiða
fram aðgangseyri. Hver og einn þyrfti að greiða
rúmar tíu þúsund krónur fyrir að fá að skoða landið
sitt. Velji landeigendur að rukka sama aðgangseyri
og eigendur Geysissvæðisins myndi það kosta
rúmar 17 þúsund krónur á mann.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is Sjá fréttASkýringu á Síðu 30.
SAMTALS 10.250 krónur
Geysir
600 kr.
Gullfoss
350 kr.
ÞinGvellir
350 kr.
Glymur
350 kr.
Barnafossar
350 kr.
GráBrók
350 kr.
látraBjarG
350 kr.
Dritvík/lónDranGar
350 kr.
Goðafoss
350 kr.
ásByrGi
350 kr.
DimmuBorGir
350 kr.
Dettifoss
350 kr.
mývatn
350 kr.
jökulsárlón
350 kr.
skaftafell
350 kr.
Dyrhólaey
350 kr. reynisfjara
350 kr.
inGólfshöfði
350 kr.
skóGafoss
350 kr.
selárDalur
350 kr.
rauðisanDur
350 kr.
DynjanDi
350 kr.
kerið
350 kr.krísuvík
350 kr.
námaskarð
350 kr.
seljalanDsfoss
350 kr.
Þórsmörk
350 kr.
lanDmannalauGar
350 kr.
hverasvæðið
hveraGerði
200 kr.
14 fréttir Helgin 21.-23. mars 2014