Fréttatíminn - 21.03.2014, Blaðsíða 22
gefandi að vinna svona einstaklings-
miðað starf því á þann hátt byggir
maður upp traust og gott meðferðar-
samband, og þannig næst árangur,”
segir Halldóra.
Fíkniefni og glötuð sjálfsmynd
algengir fylgikvillar
Þegar einstaklingur greinist með
geðrof hefur oft verið mikið álag inn-
an fjölskyldunnar. Skyndilega finnur
svo nærumhverfið að hjálp er nauð-
synleg. Oft á tíðum spila fíkniefni inn
í ferlið því fólk með geðrofssjúkdóma
á það til að leita að betri líðan í efnum
sem auðvelt er að nálgast, eins og
kannabis.
Ein af afleiðingum geðrofssjúk-
dóma er að fólk tapar sjálfsmyndinni
og missir trúna á eigin getu. Þar af
leiðandi felst stór þáttur bataferilsins
í að finna styrkleika hvers og eins,
það er fyrsta skrefið út í daglega
lífið. Þar spilar hreyfing stórt hlut-
verk en á Laugarási starfa 3 íþrótta-
fræðingar. „Fólk þarf minna á með-
ferðarstofnunum að halda en áður því
úrræðin eru fleiri í dag auk þess að
nú er gríðarlega mikil ígrundun hvað
varðar lyfjagjafir. Það er áhugavert
að eftir að við fórum að vinna svona
mikið með hreyfingu þá hefur dregið
verulega úr notkun verkjalyfja, kviða-
stillandi lyfja og svefnlyfja. Nætur-
svefninn er betri og fólk blómstrar
í líkamlegri tjáningu og fasi,“ segir
Magnús, en Laugarásinn hefur sett
íþróttir og hreyfingu í forgrunn í sínu
starfi með stuðningi World Class.
Alltaf biðlisti
Þjónustan á Laugarási miðast við 3-5
ár sem þýðir að innan veggja hússins
er fólk komið mislangt í sínum bata.
„Sumir eru komnir í vinnu eða skóla
og koma hér við kannski einu sinni
í mánuði en svo eru aðrir sem þurfa
á okkur að halda allan sólarhring-
inn,”segir Halldóra. „Það er alltaf
biðlisti hjá okkur en við reynum að
bregðast við öllum umsóknum. Við
lítum á það sem okkar skyldu að taka
einstaklinga með fyrsta geðrof inn
til okkar. Það er bara of mikið í húfi.
Batahorfur eru svo miklu betri ef grip-
ið er inn í sem fyrst. Það er
mjög sjaldgæft að fólk fari
úr þjónustunni hjá okkur
þegar það er komið inn.
Þegar fólk er búið að átta
sig á aðstæðum og komið
hérna inn þá vill það vera
hér. Hér eru allir á sínum
forsendum og okkur hefur
tekist að mynda góð tengsl
og traust í nær öllum tilfell-
um við okkar þjónustuþega
og fjölskyldur þeirra“ seg-
ir Halldóra en á Laugarási
fer fram mikil fræðsla fyrir
bæði þjónustuþega og að-
standendur þeirra.
Sunnudagar á
miðvikudögum
Það er algengur mis-
skilningur að ekki sé
hægt að ná bata eftir geð-
rof. Á Laugarási er alltaf
stefnt að bata, það er að
uppfylla og fullnægja
lífsgæðum hvers og eins
þrátt fyrir sjúkdóminn.
„Margir losna við ein-
kennin, sem eru oftast
skerðing á tengslum
við raunveruleikann, á
meðan aðrir eru alltaf
með væg einkenni sem
þeir þó ná að lifa með.
Sumir fá geðrofsein-
kenni aðeins einu sinni sem hægt
er að vinna bug á með lyfjameðferð.
Sjúkdómurinn er bara svo misjafn
eftir einstaklingum og þess vegna
er einstaklingsmiðuð meðferð svo
mikilvæg,” segir Halldóra og bætir
því við að auk hreyfingar séu heil-
brigðir lífshættir eitt af lykilatrið-
unum þegar kemur að bata og gott
mataræði sé þar af leiðandi mikil-
vægur þáttur í starfinu. Á Laug-
arási er lögð áhersla á að allir taki
þátt og eldi saman. „Hér elda allir
og borða saman, þjónustuþegar og
starfsfólk. Það eru svo margir sem
eyða sunnudögum með fjölskyld-
um sínum að við ákváðum að elda
alltaf hátíðlega sunnudagsmatinn
á miðvikudögum,” segir Magnús.
Erum hrædd við
geðsjúkdóma
„Starfsemin hér er skref
út í lífið. Það er mjög mikill
misskilningur að fólk með
geðrofssjúkdóma þurfi að
dvelja á meðferðarstofnun
alla ævi,” segir Halldóra en
þau Magnús eru sammála
um það að umræðan um
geðheilbrigðismál þurfi
að vera jákvæðari og fela
í sér góðar upplýsingar.
„Meginástæða þess að það
þrífast enn fordómar gagn-
vart geðsjúkdómum er
þörf mannsins til að hafa
skýringar á öllum hlutum
og að við erum hrædd við
það sem við þekkjum ekki.
Þegar um geðsjúkdóma er
að ræða þá eru oft á tíðum
engar skýringar, við vitum
ekki orsakir sjúkdómsins.
Áður fyrr einangruðust
fjölskyldur því ekki var
hægt að útskýra veikindin
og fólk var oft hlaðið sekt-
arkennd. Þetta má samt
ekki trufla okkur í að þróa
jákvæða umræðu,”segir
Magnús.
Það má segja að starfs-
fólkið á Laugarási vinni
brautryðjendastarf. Þau
hafa enga aðra starfssemi
á Íslandi til að miða sig við en horfa
út fyrir landsteinana þegar kemur að
því að afla sér þekkingar. Þau reyna
stöðugt nýjar leiðir til að auka lífs-
gæði þjónustuþeganna og sækja t.d.
ráðstefnur erlendis og flytja með sér
nýja þekkingu heim. Í sameiningu
hefur starfsfólkið á Laugarási skapað
það sem þau kalla „íslenska módelið“
í bataferli ungs fólks með geðrofs-
sjúkdóma. Magnús og Halldóra eru
sammála um að galdurinn bak þetta
kröftuga starf sé einstaklega gott og
metnaðarfullt starfsfólk sem og húsið
sjálft, sem búi yfir góðum anda sem
næri alla sem að starfseminni koma.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Eins og náttúran hafði í hyggju
• Magnesíumsprey sem virkar strax!
• Slakandi, bætir svefn og slær á
fótaóeirð og sinadrátt
• Frábær upptaka
Sefurðu illa?
MagnesiumOil
Spray
Fæst í flestum apótekum, Lifandi Markaði, Heilsuhúsinu,
Fjarðarkaup og Systrasamlaginu
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
og á Facebook síðunni Better You Ísland
PREN
TU
N
.IS
Goodnight
Erum hrædd við það
sem við þekkjum ekki
Við Laugarásveginn
stendur fallegt hús sem
hýsir metnaðarfulla starfs-
semi. Þar vinnur starfsfólk
sem leggur alla sína krafta
í að veita ungu fólki með
geðrofssjúkdóma þá allra
bestu þjónustu sem völ er
á. Laugarás, er deild innan
geðsviðs Landspítalans
fyrir fólk á aldrinum 18-25
ára sem er með byrjandi
geðrofssjúkdóma.
Á ður fyrr voru fyrstu kynni ungs fólks sem var að veikjast í fyrsta sinn af blandaðari
deild þar sem fólk var misveikt. Þar
að auki var meðferðin sú sama fyrir
alla en í dag er lögð áhersla á einstak-
lingsmiðaðan bata,” segir Magnús
Ólafsson deildarstjóri Laugaráss, en
hann hefur starfað við geðsvið Lands-
spítalans í 30 ár. „Það hefur alltaf
verið minn draumur að sjá sérúrræði
fyrir þennan hóp. Ef grunur leikur
á um geðrof skiptir snemminngrip
meðferðaraðila öllu máli og þá er
alveg nauðsynlegt að viðeigandi
endurhæfing sé í boði. Einkenni
geðrofssjúklinga eru mjög marg-
breytileg. Þú getur verið með nokkra
einstaklinga með geðrofssjúkdóm en
þeir eru allir með mjög ólík einkenni,”
segir Magnús. Halldóra Friðgerður
Víðisdóttir aðstoðardeildarstjóri segir
einstaklinginn alltaf fá að ráða ferð-
inni sjálfur og enginn sé nauðugur á
Laugarási. „Forræðishyggjan sem ef
til vill stýrði áður ferðinni er sem bet-
ur fer að líða undir lok. Það er mjög
Ungt fólk og geðsjúkdómar
geðrofssjúkdómar
1 Geðrofssjúkdómar eru geðsjúk-dómar sem einkennast meðal
annars af geðrofi. Geðrof er ástand
þar sem tengslin við raunveruleikann
rofna.
2 Í geðrofi koma fram ranghug-myndir, ofskynjanir, hugs-
unin getur orðið ruglingsleg og oft
breytast tilfinningar og hegðun.
3 af 100
3 Geðrof er algengara en flestir halda, en þrír af hverjum
hundrað fara í geðrof einhvern-
tímann á lífsleiðinni.
16-30 ára
4 Í langflestum tilfellum kemur fyrsta geðrof fram á aldrinum
16-30 ára.
5 Hægt er að meðhöndla geðrof með góðum árangri en mjög
mikilvægt er að greina það snemma
og hefja meðferð til að draga úr
framgangi sjúkdómsins.
Á Laugarási starfar 28
manna þverfaglegur
hópur sem leggur
allan sinn metnað í að
hjálpa ungu fólki sem
hefur upplifað geð-
rofssjúkdóma að stíga
aftur út í samfélagið.
Það er
áhugavert
að eftir að
við fórum
að vinna
svona mikið
með hreyf-
ingu þá
hefur dregið
verulega
úr notkun
verkjalyfja,
kvíðastill-
andi lyfja og
svefnlyfja.
Frá vinstri: Magnús Ólafsson deildarstjóri, Þorri Snæ-
björnsson ráðgjafi/stuðningsfulltrúi, Jenný S. Níelsdóttir
sjúkraliði, Rafn Haraldur Rafnsson íþróttafræðingur,
Heiðrún Hafþórsdóttir ráðgjafi/stuðningsfulltrúi, Ólína G.
Viðarsdóttir sálfræðingur, Gunnar Þór Andrésson íþrótta-
fræðingur, Valur Bjarnason félagsráðgjafi og Halldóra F.
Víðisdóttir aðstoðardeildarstjóri. Ljósmyndir/Hari
22 úttekt Helgin 21.-23. mars 2014