Fréttatíminn - 21.03.2014, Side 46
46 matur & vín Helgin 21.-23. mars 2014
vín vikunnar
Montalto Organic
Cataratto
Gerð: Hvítvín.
Þrúga: Catarratto.
Uppruni: Ítalía, 2013.
Styrkleiki: 12%
Verð í Vínbúðunum:
1.850 kr. (750 ml)
Umsögn: Eitt mest selda
lífrænt ræktaða hvítvínið
í Vínbúðunum kemur í
beinu flugi frá mafíós-
unum á Sikiley. Létt og
ferskt og ávaxtaríkt með
sítrus. Eiginlega best eitt
og sér sem fordrykkur
eða söturvín en gengur
líka með léttum pasta-
og fiskréttum.
Beronia Viticultura
Ecologica Tempranillo
Gerð: Rauðvín.
Þrúga: Tempranillo.
Uppruni: Spánn, 2010.
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum:
2.298 kr. (750 ml)
Umsögn: Lífrænt
ræktaði Spánverinn í
hópnum kemur frá hinu
eina sanna Rioja-héraði
á Spáni. Hérað sem við
Íslendingar elskum jafn
mikið og Spánverjarnir
saltfiskinn okkar. Þetta
vín hefur hin spænsku
Tempranillo einkenni auk
þess að hafa skemmti-
legan ferskleika og
berjaðan keim. Rauðvín í
léttari kantinum.
Bonterra Cabernet
Sauvignon
Gerð: Rauðvín.
Þrúga: Cabernet
Sauvignon.
Uppruni: USA, 2009.
Styrkleiki: 13,5%
Verð í Vínbúðunum:
2.999 kr. (750 ml)
Umsögn: Þetta ágæta
lífræna vín kemur frá
Bandaríkjunum, nánar
tiltekið frá norðanverðri
Kaliforníu. Það ber líka
vel einkenni þess að vera
Cabernet Sauvignon frá
þessum heimshluta, þétt
með eikarkeim og vanillu.
Passar með steikinni, kjöt-
réttum, mygluosti og öllu
þessa helsta sem einkennir
vín í þyngri kantinum.
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is Fréttatíminn mælir með lífrænum vínum
Réttur vikunnar
Lífræn nautasteik
Böðvar Sigurvin Björnsson er yfir-
matreiðslumaður hjá Lifandi markaði
og er sem slíkur ábyrgur fyrir þeim
kræsingum sem þar bjóðast. Við
fengum Böðvar til að töfra fram steik
sem fólk ætti að spreyta sig á um
helgina.
Kartöflukaka
400 gr kartöflur soðnar
1 box kastaníusveppir
1 msk smjör
Salt og pipar
Byrja skal á að sjóða kartöflurnar og
skræla þær, saxa svo sveppina smátt
og steikja við miðlungs hita uns þeir
eru brúnaðir.
Setja smjörið á pönnuna og taka
hana af hitanum, setja kartöflurnar
saman við og blanda vel saman við þar
til þær verða eins og þykk kartöflumús.
Þá skal músin sett í form með
bökunarpappír og slétta að ofan.
Baka kartöflukökuna í ofni við 170°c í
15-20 mínútur. Svo skal hún tekin út
og skorinn í 4 bita og borin fram með
kjötinu.
Blómkálsmauk.
1 haus blómkál
4 dl rjómi
2 msk smjör
Salt
Byrja skal á að hreinsa
blómkálið og sjóða svo í
smjörinu og rjómanum uns blómkálið
er mjúkt. Þá skal það tekið uppúr með
fiskispaða og maukað í blandara uns
áferðin er slétt, smökkuð svo til með
salti.
Nautalundin
800 gr af nautalund er hreinsuð og
skorin í steikur, hver um sig um 200 gr.
Salt og pipar eftir smekk. Einnig er
gott að nota timian og smjörklípu.
Steikja hana á báðum hliðum uns
hún verður gullinbrún.
Svo sett í ofn við 160-170°c í um
4-5 mínútur, tekin út og hvíld í um 6
mínútur.
Sett svo aftur inni í ofn og elduð
eftir smekk, allt frá 4 mínútum eða
lengur eftir því hvernig hver vill hafa
sína steik.
Svo er hún hvíld í um 8-10 mínútur
og borin fram.
Grænolíu sósa, með kirsuberja
tómötum
1 box kirsuberjatómatar
½ búnt steinselja
½ búnt oregano
½ búnt estragon
4 hvítlauksrif
1 dl ólífu olía
Salt/ pipar/ sítróna eftir smekk
Allt sett í blandara nema tómat-
arnir og maukað uns eiturgrænn litur
kemur, þá skal smakka til með salti/
pipar og sítrónusafa.
Tómatarnir skornir í tvennt og græni
þurri kjarninn skorinn frá, setja
tómatabitana í grænolíuna og bera
fram.
Brokkólíið, skal hreinsa og
pönnusteikja við miðlungs hita uns
það er mjúkt undir tönn, salta eftir
smekk.
Ljósmyndir/Hari
Morande Pionero Merlot
Gerð: Rauðvín.
Uppruni: Chile, 2010.
Styrkleiki: 14%
Verð í Vínbúðunum:
1.799 kr. (750 ml)
Passar vel með kjötinu en
ekki síður með olíusósunni
með tómötunum.
Mars er mánuður lífrænt ræktaðra vína hjá ÁTVR og úrvalið er sífellt að batna. Piccini-fjöl-
skyldan er einn stærsti vínframleiðandi Toskanahéraðsins á Ítalíu og það sést
vel í hillum okkar ágætu séríslensku vínbúða þar sem Piccini-úrvalið er
ríkulegt. Þar finnur þú í hillunum rauðvín, hvítvín, rósavín og freyðivín
frá þessum ágæta framleiðanda. Piccini-
vínin eru svona ekta súpermarkaðsvín,
fín vín en verðið er í aðalhlutverki.
Það kemur því ekki á óvart að Piccini
skuli blanda sér í baráttuna með lífrænt
ræktuðu og bara ansi vel heppnuðu víni
sem sómir sér vel innan um bræður sína og systur úr Picc-
ini-fjölskyldunni. Þetta vín sver sig vel í ætt við önnur ávaxtarík og fersk
Toskana-vín með sínum létt berjaða keim og frískleika sem kallar á pasta og
pítsur og léttari rétti. En í guðanna bænum ekki para þetta vín með steikinni.Piccini Chianti Organic
Gerð: Rauðvín.
Þrúga: Sangiovese.
Uppruni: Ítalía, 2011.
Styrkleiki: 13%
Verð í Vínbúðunum: 1.999 kr. (750 ml)
Ávaxtaríkt og ferskt með föstudagspítsunni
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • sala@rv.is • rv.is
gluggafilmur – fyrir skóla, sjúkrahús,
skrifstofur, verslanir og
aðra vinnustaði
Glerfínar
gluggafilmur
– aukin vellíðan á vinnustað
Fagmenn RV sjá um
uppsetningu!
Leitið upplýsinga á auglýsingadeild
Fréttatímans í síma 531 3310 eða á
auglysingar@frettatiminn.is
Fréttatímanum
er dreift á heimili á
höfuðborgarsvæðinu
og Akureyri auk
lausadreifingar um land allt.
Dreifing með
Fréttatímanum á
bæklingum og fylgiblöðum
er hagkvæmur kostur.
Ert þú að huga
að dreifingu?